Gríma - 15.03.1931, Side 53

Gríma - 15.03.1931, Side 53
VöLUDYSIN í LEYNINGSHÓLUM 5Í menn að hann er að bæjarbaki og er að tauta eitt- hvað. Svanhvít gengur að honum og spyr, hvað hann sé að gera. Kippist hann þá við. Les hún siðan yfir honum, þar til er hann fer að sökkva ofan í jörðina; sér seinast í iljar honum, og setur hún þar kross- rnark yfir. Gengur hún síðan til bónda og segir, að hann sé laus við þennan ófögnuð, »og er það guð- rækni þinni að þakka, því að þetta var djöfullinn sjálfur, og var ég send af guði til að frelsa þig og fólk þitt«. Sló síðan bjarma utan um hana og hún leið upp í loftið. Þakkaði bóndi guði frelsunina. Var prestur síðan fenginn til að vígja bæinn, og varð eigi vart við kölska þar síðan. 12. Vðlndfsin í leyningshðlnm. (Handrit Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði). Skammt frá vatni því, sem kallað er Tjarnargerð- isvatn í Leyningshólum í Eyjafirði, er dys ein forn. Mælt er að vala nokkur hafi verið dysjuð þar í forn- öld. Steinn mikill liggur á dysinni og er hann höggv- inn rúnum eða öðru letri, sem reynt hefur verið að lesa, en ekki tekizt, enda er steinninn brotinn og letrið máð. Sagt er að smalamaður frá Leyningi hafi skemmt steininn og brotið hann allan. Nóttina eftir hafði hann dreymt völuna. Var hún hin reiðasta og lagði það á hann, að upp frá þessu skyldi hann verða hinn mesti ólánsmaður, og á sömu leið skyldi fara 4*

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.