Gríma - 15.03.1931, Blaðsíða 65

Gríma - 15.03.1931, Blaðsíða 65
HVÍTKLÆDDA STÚLKAN 68 dag í góðu veðri, að hann stóð yfir sauðunum í mýri, sem er neðan við beitarhúsin; var lítill snjór á jörðu og því hættara við að sauðirnir rásuðu burtu, svo að hann þorði ekki að fara frá þeim. Þá sótti Jón svefnhöfgi svo mikill, að hann hallaði sér upp að þúfu og blundaði; lá hann þar um stund svo sem milli svefns og vöku. Sá hann þá hvítklæddu stúlk- una koma gangandi til sín; gekk hún hægt að hon- um, laut niður og tók utan um annan fótinn á hon- um, en hann gat sig þá hvergi hrært. Síðan hvarf stúlkan aftur, en Jón reis upp og fór að ganga í kringum sauðina. Ekki leið á löngu, áður en bliku dró í loftið og fór að hríða, svo að Jón rak sauðina saman og hýsti þá í fyrra lagi. Náði hann heim um kvöldið rétt áður en iðulaus stórhríð skall saman. — Ekki var Jón í nokkrum vafa um það, að hvítklædda stúlkan hafi ætlað að vara hann við yfirvofandi ill- viðri og verið að herða á honum að flýta sér, svo að hann drægi undan. Aldrei varð hann stúlkunnar var eftir þetta. Fyrr á öldum voru nokkrir bæir í Þegjandadal; hafa sumir talið, að þeir hafi verið sjö, en lagzt í eyði í svartadauða og stóru-bólu; ganga litlar sögur af þeim. — Svo segir Jón Sæmundsson, að hann hafi heyrt að fyrir allmörgum árum hafi stúlka nokkur orðið úti skammt frá beitarhúsunum. Liggur nærri að telja hana valda að þeim atburðum, sem hér hefur verið sagt frá, en þó er ekki hægt að benda á nein ákveðin líkindi til þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.