Gríma - 01.09.1938, Síða 7
ÞÁTTUR AF BJARNA SÝSLUMANNI Á ÞINGEYRUM 5
legur, en óhamingjusamur11.1) — Ekkert spurðist til
Gríms, og komst hann í hollenzka fiskiduggu um
sumarið og hvarf út í buskann undan refsivendi lag-
anna. Bjarna hefir eflaust þótt illt að missa af Grími,
því að hann var afbrotamönnum harður og refsi-
gjarn og hefir víst ekki ætlað sér að láta fleiri þrjóta
ganga úr greipum sér, því að eftir þetta lét hann
smíða fangakistuna frægu, sem nú er geymd í Þjóð-
minjasafninu, en í kistu þessari geymdi hann alla
gæzlufanga, meðan hann var sýslumaður Húnvetn-
inga, til þess að vera viss um að missa þá ekki.
Úti á Skagaströnd hafði svo borið við, að Pétur
nokkurn Halldórsson hafði hent það ólán að eiga barn
með stjúpdóttur sinni, er Ingibjörg hét. Bjarni hafði
fregnir af þessu og setti bæði tafarlaust í varðhald.
Yfir þau gekk svo dómur á Vindhælisþingi vorið
1734, og sátu 8 meðdómsmenn dóminn með Bjarna.
Þeir dæmdu þau bæði til dauða, svo að ekki var
lint á tekið, en dómi þessum var skotið til lögmanna
á alþingi um sumarið. — Sýslumaður reið nú til al-
þingis með afbrotahjú þessi, en þar vildu menn ekki
taka eins hart á yfirsjón þeirra og færðu þeim fá-
fræði til afsökunar; þó voru þau að lokum dæmd til
lífláts, en skotið til konungs náðunar. Úrskurður há-
tignarinnar gat hins vegar ekki komið hingað út
fyrr en með vorskipunum árið eftir. Bjarni varð því
að hafa Pétur og Ingibjörgu með sér heim aftur.
Um veturinn voru þau svo í haldi á heimili sýslu-
manns og gengu þar að verkum með öðrum hjúum,
en svo kom það óvænta fyrir, að þau eignuðust ann-
að barn um vorið. — Þá þótti Bjarna sýslumanni
) Sbr. Lögþingsbókin 1731.