Gríma - 01.09.1938, Blaðsíða 11
ÞÁTTUR AF BJARNA SÝSLUMANNI Á ÞINGEYRUM 9
á því, að vegabréf þetta hefir verið mergjað, því að
Bjarni var á alþingi árið eftir sektaður fyrir illyrði
um Barna-Elínu í vegabréfinu. —
Skúli átti, eins og kunnugt er, í málaferlum við
Pétur Ovesen kaupmann í Hofsós út af fjársölu o. fl.
Skúli ásakaði hann um að hafa selt svikið járn og
tveir bændur báru það á kaupmann, að hann hefði
selt þeim mjölhálftunnu blandaða með mold. Þessi
málaferli Skúla og Ovesens kaupmanns urðu bæði
hörð og snúin og voru sótt af miklu kappi á báða
bóga. — Bjarni á Þingeyrum tók að sér málsvörn
fyrir kaupmann, en þá var eins og komið væri við
hjartað í Skúla, svo varð hann Bjarna reiður, enda
leið ekki á löngu að þeir leiddu hesta sína saman.
Það var þegar málið kom fyrir lögréttuna á alþingi.
— Þegar Bjarni gekk í lögréttuna, var Skúli þar
fyrir og kallaði: „Þarna kemur þá krummanefið frá
Þingeyrum“. En Bjarna varð ekki svarafátt; hann
hvessti augun á Skúla og svaraði þegar: „Ekki er
það sama krummanefið, sem kroppaði utan af barns-
beinunum í Grafarmóum forðum, karl minn“. — A
þessum orðaskiptum má sjá, að Bjarni var hvergi
smeykur við Skúla, enda hafði hann í fullu tré við
hvern, sem í hlut átti, en þess er oftar getið, að
Bjarni var svo mikill fyrir sér, þegar hann sótti mál
sín í lögréttunni, að þar varð truflun og mikið þvarg
af hans völdum.
Þessi ummæli Bjarna sveigðu að kvitti, sem gaus
upp og legið hafði á Skúla, þegar hann bjó í Gröf á
Höfðaströnd, áður en hann fluttist að Ökrum í
Skagafirði. Þar hafði fundizt barnsbeinagrind í mó-
unum fyrir utan túnið, og var það hald manna, að
vinnukona hjá Skúla sýslumanni hefði borið út barn,