Gríma - 01.09.1938, Page 66

Gríma - 01.09.1938, Page 66
64 ÞÁTTUR AF ÞJÓFA-GÍSLA Sýslumaður stóð þar hjá þeim. Allt í einu segir hann: „Varið ykkur nú, piltar, að missa ekki böndin, því að þarna kemur helvítið hann Þjófa-Gísli á Lang- húsum. Haldi nú hver um sitt, ekki mun af veita!“ Gísli hafði heyrt orð sýslumanns; heilsaði hann mönnunum og fór að stjáka í kringum þá með mesta málanda, þar til er hann sá sér færi og stakk tveim einhögldungum undir hempu sína. Síðan fór hann heim. — Nokkru síðar færði hann sýslumanni ein- högldungsól og kvaðst hafa tekið hana, þegar þeir hefðu verið að búast til að sækja viðinn á dögunum. „En reyndar tók eg þær tvær“, mælti hann, „og hinni skila eg ekki; er hún lítil þóknun, sem eg skenki mér sjálfur á yðar kostnað fyrir nafnið, sem þér gáfuð mér“. Sýslumaður kvað hann mega eiga hana. Hafði ólanna ekki verið saknað, og undruðust menn lagni Gísla við þjófnaðinn. En nafnið festist við hann, svo að hann var upp frá því nefndur Þjófa- Gísli. Sú er sögn gamalla manna, og' styðst hún við ýms- ar heimildir, að á dögum Gísla voru vetur harðir. — Það var einn vetur, að við sjálft lá að margir hor- felldu. Varð Gísli bjargþrota fyrir naut sín, en þó dróst hann fram með þau; þótti það sæta kyngjum, og var hann grunaður um þjófnað. Nautamaður á Valþjófsstað varð þess áskynja, að taða hvarf úr nautahlöðu á nóttum; grunaði hann Gísla, því að beðið hafði hann um töðu, en verið synjað. Tók nautamaður sig til og vakti í hlöðunni, og er leið á nótt, kom maður í hlöðuna með poka mikinn. Var það Gísli. Tróð hann töðunni fast í pokann og bjóst síðan til brottferðar. Gaf nautamaður sig þá í ljós, bað hann láta lausan pokann og hætta að stéla töð-

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.