Gríma - 01.09.1938, Page 70

Gríma - 01.09.1938, Page 70
68 ÞÁTTUR AF ÞJÓFA-GÍSLA að vakka yfir klyfjunum. Prófastur var þar líka á varðbergi, því að hann trúði Gísla illa; var líka hans þolinmæði á þrotum. Loksins sagði Gísli, að sér leiddist svo biðin, að hann færi einn af stað; fannst prófasti það sjálfsagt, en í sömu andránni sáu þeir vinnumanninn koma með hestana. „Eg ætla samt að fara“, mælti Gísli, „hann nær mér þá innan stundar. — Viljið þér nú ekki sýna lítillæti yðar og fleygja upp á með mér, prófastur góður?“ Prófastur var fús til þess, teymdi hest Gísli á milli klyfja, er þar lágu sér, hjálpaði til að koma þeim á klakk, og fór svo Gísli leiðar sinnar. Kom lestamaður að stundu lið- inni, saknaði einna klyfja og mælti: „Nú hefur djöf- ullinn hann Langhúsa-Gísli náð einum klyfjunum". „Nei, það getur ekki verið“, svaraði prófastur, „eg var alltaf hérna hjá flutningnum og lét svo seinast upp með honum“. „Þá hefur samt einhver stolið þeim, því að hérna lágu þær bundnar“, svaraði lesta- maður. Prófastur vissi hvorki upp né niður í málinu, tók aftur á hestinn og hélt af stað heimleiðis. — Löngu síðar færði Gísli prófasti tvo poka og þakk- aði honum fyrir það, sem í þeim hafði verið. Þekkti prófastur pokana. Hafði Gísli nýtt innihaldið og tal- ið það þóknun fyrir gæzluna. Öðru sinni kom Gísli að bæ í Fljótsdal til bónda þess, er Guttormur hét. Var hann nú eltur á röndum og hafður sterkur vörður á honum, en þá var hann jafnan skæðastur. Leið nú að því, að hann færi af stað, en á síðustu stundu gat hann gómað sokkhæð frá kerlingu, sem sat að tóskap, og tók enginn eftir því, svo að Gísli komst með hana heim til sín. Dag- inn eftir sendi hann Guttormi aftur sokkbolinn með

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.