Gríma - 01.09.1945, Qupperneq 6
4
SAGA VÍÐIDALS EYSTRA
[Grima
sporð Kollumúlaheiðar rennur Víðidalsá í Jökulsá, en
þar fyrir framan taka við Eskifellsfjöll, öðru nafni
Stafafellsfjöll, sem er afréttarland prestsetursins Stafa-
fells í Lóni. Er það afar mikill fjallgarður og allvíða
grösugur, og sléttar valllendisgrundir meðfram ánni.
Fyrrum voru í þeim fjallgarði þrjú býli, Eskifell, Val-
skógsnes og Smiðjunes, en ekki mun hafa verið búið
í þeim samtímis. Skógar munu vera allmiklir í blíð-
um þessara fjalla. Á fyrri tímum hafði Hofsprestur í
Álftafirði afnot af Víðidal, en Stafafellspresti tilheyrði
land sunnan Jökulsár, andspænis Kollumúla, þangað
til hallar að dal þeim, er tilheyrir Þórisdal. Á þessu
landsvæði er hinn fjölskrúðugasti jurtagróður og ágæt-
is haglendi fyrir sauðfé og geldneyti. Þegar vetrartíð
er sæmileg, gengur fé fram úr í Kollumúla, og nú á
seinni árum koma útigengnar sauðkindur fyrir á
hverju vori. Haustið 1939 vantaði tvær dilkær frá
Múla í Álftafirði, en næsta haust komu þær báðar með
lömbum, og auk þess lambgimbur með lambi og vet-
urgamall hrútur, og þau öll í reyfum. Sami maður átti
báðar ærnar, og fékk hann þarna sjö kindur. Auk þess
komu tveir veturgamlir hrútar sama haust, sem áttu
heima í Álftafirði.
Innan við drög Hofsdals í Alftafirði er Hofsjökull;
hefur hann frá síðustu aldamótum. stöðugt farið
minnkandi, og við suður- og austurhlið jökulsins eru
auðar landspildur, sem á síðustu árum eru að klæðast
gróðri. Hið sama á sér stað umhverfis Þrándarjökul,
sem liggur innst á fjallgarðinum milli Geithellnadals
og Hamarsdals. Hamarsdals megin er, eftir sögn Helga
Einarssonar hreppstjóra á Melrakkanesi við Álftafjörð,
allstór spilda, sem um síðustu aldamót var hulin jökli,
en er nú auð og sem óðast að skrýðast gróðri. Nafn