Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 27
Systkinin frá Víðivallagerði.
[Eftir handriti Sigfúss Sigfússonar i Skjögrastöðum 1886, en hann rit-
aði söguna eftir frásögn Helgu Jónsdóttur í Brekkuseli; henni sagði
Magnús Árnason, er lengi var í Kirkjubæ hjá Árna Þorsteinssyni pró-
fasti (fl829). — Áður prentuð i Austra.]
1 tíð Böðvars Sturlusonar, er var prestur á Valþjófs-
stað 1657—1712, bjuggu í Víðivallagerði systkin tvö,
Jón og Sigríður að nafni; var Sigríður bústýra hjá
bróður sínum. Um það leyti bjó á Víðivöllum Jón
Þorláksson, sem var sýslumaður í Múlaþingi 1670—
1712; þótti hann harður og refsingasamur um brot
manna. Litliir voru þeir vinir, Böðvar prestur og Jón
sýslumaður, og elduðu stundum grátt silfur, þótt
skyldir væru nokkuð að frændsemi.
Eitt vor kom sá kvittur á loft, að Sigríður í Víði-
vallagerði færi eigi ein saman, og fylgdi það sögunni,
að Jón bróðir hennar væri að því valdur. Vöktu sókn-
armenn máls á því við Böðvar prest, að full þörf væri
á að skilja þau systkin, en hann eyddi því tali, kvað
menn ávallt gjama á að gera öðrum getsakir, en úr
því sem komið væri, skyldi ekki hreyfa við málinu
fyrr en Sigríður hefði alið barnið og feðrað það. Lá
svo umtal þetta niðri um hríð. Böðvar prestur var vin-
ur Jóns og þótti mikilsvert um hann.