Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 60

Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 60
58 GALDRASÖGUR [Gríma kistu sína, dró upp svart pils og fékk það dóttur sinni. „Ef þú ferð í pils þetta næst klæða,“ hélt hún áfram, „og ferð aldrei úr því aftur, hvorki á degi né nóttu, þá mun jóðsótt a'ldrei þjá þig.“ Stóð þá eigi lengur á samþykki stúlkunnar, og giftist hún prestinum. Bún- aðist þeim hjónum vel, því að prestskonan reyndist dugleg og hagsýn og virtist hverjum manni vel. Liðu svo nokkur ár, að hagur prestshjónanna stóð með miklum blóma, en engin börn eignuðust þau; voru þó samfarir þeirra hinar ástúðlegustu. Prestur hafði óljósan grun um, að svarta pilsið konunnar hans væri engin happaflík, og bað hana bæði með góðu og illu að fara úr því, en þótt konan væri eftirlát og auð- sveip manni sínum í öllu öðru, var hún ófáanleg til að þægja honum í þessu og sat föst við sinn keip. Tók prestur sér þetta mjög nærri, en fékk eigi að gert. Það var eitt sumar, daginn fyrir Jónsmessu, að æsku- vinur og skólabróðir prests úr öðrum landsfjórðungi kom í heimsókn til hans; var hann fróðleiksmaður og kunni ýmislegt fyrir sér. Tóku prestshjónin honum tveim höndum, og höfðu þeir vinirnir margs að minn- ast og margt hvor öðrum í fréttum að segja. Meðal annars spurði gesturinn að börnum prests, en hann varð daufur við og kvaðst engin eiga. Vinur hans kvað það mikið mein, að svo myndarleg hjón ættu engin afkvæmi, og spurði, hvort hann gæti hugsað sér nokkra sennilega ástæðu til þess. Trúði prestur honum þá fyrir því, að kona hans væri í svörtu pilsi næst sér jafnt á degi sem nóttu og fengist ekki með nokkru móti til að fara úr því. Þá varð vinur hans hugsi, þagði um stund og mælti síðan: „Reynt get eg að kippa þessu í lag, svo að ykkur verði báðum til góðs. Nú fer heilög Jónsmessunótt í hönd, en um lágnættið skalt þú syngja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Gríma

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.