Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 51
Gríraa]
DRAUGASÖGUR
49
verið karlmaður, myndarlegur, gáfaður og skapfestu-
mikill. Hafði Guðmundur mikinn áhuga fyrir fundi
þessum, og hyggur sögumaður minn, að víst hafi hann
skrifað lýsingu og nákvæma mælingu af hauskúpunni.
Þorsteinn á Hjaltastöðum var, sem fyrr getur,
draumspakur og dulskyggn. Hann vildi nú freista þess,
hvort sér eigi tækist að verða neins vísari um þann,
sem höfuð þetta hefði borið í lifanda lífi. Tók Þor-
steinn höfuðið, lét það undir kodda sinn og svaf þann-
ig á því í þrjár nætur. — Tvær fyrstu næturnar
dreymdi hann ekkert né varð neins var, en þriðju nótt-
ina heyrði hann, er hann svaf, sárt neyðaróp kven-
manns, svo hátt og skerandi, að hann vaknaði við það
þegar í stað. — Um morguninn sagði Þorsteinn þeim
sonum sínum, að eigi væri sem hann og þeir hefðu
ætlað, að höfuðið væri af karlmanni. — Guðmundur
Þorláksson kom þar þenna sama dag. Mótmælti hann
því mjög ákveðið, að höfuðið gæti verið konuhöfuð;
til þess væri heilabúið of stórt. Stældu þeir um þetta,
og hélt Þorsteinn fast við sitt. Loks varð það úr, að
Guðmundur mældi höfuðstærð allra karlmanna þar á
bænum og áætlaði húð, hár og hold. Reyndist það svo,
að höfuðið, þótt stórt sýndist, hafði dálítið minna
heilabú en höfuð nokkurs af karlmönnum þeim, sem
þarna voru mæld. Þótti það þá sýnt, að hauskúpa þessi
mundi vera af konu. — Hauskúpa þessi var síðar sett
niður í leiði í kirkjugarðinum að Flugumýri.
Hjaltastaðir eru gamalt stórbýli, (100 hdr. að fornu
mati) og brann bærinn tvisvar sinnum á síðastliðinni
öld; fyrra sinni í tíð séra Ólafs Þorvaldssonar og síðara
sinni, þá er Eggert Briem sýslumaður hinn eldri bjó
þar. Þegar þarna var grafið, fundust menjar brunanna,
bæði aska og einnig fannst þar innsigli Skagafjarðar-
4