Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 33
Gríma] SYSTKININ FRÁ VÍÐIVALLAGERÐI 31
ráð en að leita upp skjáglugga, guða og biðjast gist-
ingar. Var svarað inni fyrir, og kom til dyra gamall
karl, sem studdist við hækju. Tók hann Ólafi vel,
fylgdi honum til baðstofu og lét hann setjast á hrís-
bæli, en tók sér sjálfur sæti á stofurúmi. Var þar fyrir í
baðstofunni gömul kerling, illileg á svip, og tók hún
lítt undir kveðju Ólafs. Ekki spurðu þau hann frétta
né af ferðum hans, en voru að pískra saman í hálfum
hljóðum, og loks tók Ólafur eftir því, að karl tók
laumulega undan höfðalagi sínu hvítskefta sveðju og
stakk henni upp í ermi sína. Þegar á kvöldið leið,
stauluðust þau karl og kerling fram úr baðstofunni og
skildu Ólaf einan eftir, en skömmu síðar kom inn til
hans ungur maður, sem heilsaði honum glaðlega og
tók sér sæti hjá honum. Tók Ólafur þá svo til orða:
„Svo lízt mér á þig, að eigi munir þú vera skyldur hús-
bændunum hér, og vildi eg biðja þig að skjóta mér
burtu héðan, því að eg óttast, að mér séu hér brugguð
banaráð af karli og kerlingu." „Rétt getur þú til um
það,“ svaraði maðurinn, „að eigi er eg þeim. skyldur,
og líkt stendur á um okkur báða. Þórður heiti eg og
villtist eg hingað af Fljótsdalshéraði fyrir sex árum, og
tóku karl og kerling mig nauðugan til sin til að vinna
sér, en eg hef eigi átt annars kost vegna þess, að eg
rata eigi heim til mín aftur. Vaknar nú enn heimþrá
mín við að hitta þig að máli, og skal eg gera allt til að
forða þér héðan og okkur báðum; mun eg ekki horfa
í að bana þeim báðum, karli og kerlingu, því að fús er
eg til frelsisins eftir margra ára þrælkun. — Svo er hér
húsum háttað, að tvennar eru útidyr. Munu það vera
ráð karls og kerlingar, að bera grjót á aðra útihurð-
ina, en leynast þar í göngunum og leggja þig að velli í
myrkrinu með sveðju, ef þú leitar þar útgöngu; en í