Gríma - 01.09.1945, Page 57
6.
Galdrasögur.
a. Frá Agötu fögru.
[Sögu þessa ritaði Helgi Jónasson á Gvendarstöðum eftir Jóhannesi
Guðmundssyni frá Sílalæk. Mun orðalagið vera Jóhannesar, því að
svo sagði hann sögur, sem hann læsi af bók. K. Erl.]
Kona fluttist inn í Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu norðan af Sléttu. Þá var harðæri og bágindi fyrir
norðan. Fluttist hún af þeim orsökum meðfram. Hún
var ekkja. Dóttir hennar fullorðin, er Agata hét,
fylgdist með henni. Var hún svo frábærlega fögur, að
hún bar af öðrum ungum stúlkum um þær slóðir.
Urðu margir til að renna ástaraugum til hennar. Einn
þeirra var Einar, sonur Jónasar hreppstjóra í Yztafelli.
Var hann einn álitlegastur ungra manna hér um slóðir
og að öllu leyti eigulegur maður. Annar var Björn,
sonur Einars prests Hjaltasonar á Þóroddstað.1) Þótti
hann þó eigi jafnoki Einars að áliti. Þriðji var Hall-
dór, sonur Jóns umboðsmanns á Breiðamýri. Sagt var,
að allir þessir menn hefðu beðið Agötu. Kaus hún sér
Einar, en synjaði hinum. Giftist hún Einari, og byrj-
uðu þau búskap að Hóli í Kinn. Voru þau búin að
1) Séra E. H. kom ekki að Þóroddstað fyrr en árið eftir að Agata
dó. - K. E.