Gríma - 01.09.1945, Blaðsíða 72
Huldufólkssögur,
a. Huldukona gefur Þorlóks-kver.
[Eftir handriti frú Jóhönnu S. Jónsdóttur i Viðvík. — Sögn Péturs
Guðmundssonar x Kílholti 1906].
Einhverju sinni var vinnukona hjá mér, sem hét
Guðbjörg og var Pálsdóttir; hún var í alla staði vönd-
uð og sannorð. Þegar hún var unglingsstúlka, átti
hún heima í Gilhaga hér í sýslu og var látin sitja yfir
kvíám á sumrin. Sá hún þá stundum ær í högunum,
hugði þær vera af sínum ám og var vön að fara fyrir
þær og halda þeim við hópinn. — Veturinn eftir
dreymdi hana, að til hennar kæmi kona og segði að
hún mætti eiga það, sem hún legði á hilluna fyrir
ofan rúmið hennar, í þóknunar skyni fyrir það, að
hún hefði vikið ánum sínum til hagræðis fyrir sig um
sumarið. Þegar Guðbjörg vaknaði, taldi hún draum-
inn vera eins og hvert annað rugl og kom eigi til hugar
að gá upp á hilluna. En síðar um daginn þurfti hún
einhvers með, sem á hillunni var, og sá þá, að þar lá
Þorláks-kver í gylltu bandi; sýndi hún heimafólkinu
það og spurði, hver það ætti, en enginn kannaðist við
að hafa séð það fyrr. Taldi Guðbjörg þá ví'st, að kverið