Gríma - 01.09.1945, Page 79
10.
Skrímslasögur.
a. Skrímsli í Torfdalsvatni.
[Handr. Ingibjargar Benediktsdóttur frá Bergstöðum í Hallárdal,
eftir sögn Péturs bónda Björnssonar á Tjörn í Nesjum.]
Það var haustið 1907, fimmtudaginn á milli rétta,
að eg fór í fjársmölun frá heimili mínu. Leið mín lá
fram með Torfdalsvatni, sem er hér um bil miðja vega
milli Tjarnar og Hafna á Skaga. Eg gekk út með vatn-
inu að austan. Sá eg þá á vatnsbakkanum suðaustan
megin skepnu nokkra, sem eg hélt fyrst að væri hestur;
en þegar eg kom nær, þóttist eg viss um, að svo væri
ekki, heldur einhver óþekkt skepna úr vatninu. Eg
varð ekki hið minnsta skelkaður, heldur hugsaði mér
statt og stöðugt að vinna á þessu, hvað sem það væri. —
Um morguninn hafði verið landnorðanrigning, svo að
eg var í vaxkápu og með sjóhatt á höfði. Svipu hafði eg
í hendi. Bjóst eg svo til harðrar viðureignar eftir beztu
getu. Vettlingana mína lagði eg frá mér, hneppti káp-
unni frá og leysti sjóhattinn, til þess að allt skyldi liggja
laust, ef í mig væri glefsað eða leitazt við að draga mig
út í vatnið. Sjálfskeiðinginn minn tók eg upp úr vasa
mínum og hélt honum opnum í hægri hendi, en svip-
unni í vinstri. Þannig vopnaður fór eg ofan fyrir vatns-