Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 1
14. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 21. júlí ▯ Blað nr. 471 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Breytingar á tollalögum og staðfesting samnings ESB og Íslands um viðskipti með landbúnaðarvörur:
Sóttvarnalæknir vill takmarka innflutning á búvörum
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir hefur sent Alþingi
athugasemdir við tillögu til
þingsályktunar um staðfest-
ingu samnings Íslands og
Evrópusambandsins um viðskipti
með landbúnaðarvörur. Ekkert er
fjallað um heilbrigðismál í tolla-
lögunum.
Í athugasemdum sínum segir
Þórólfur að rétt sé að vekja athygli
á að samkvæmt sóttvarnalögum beri
sóttvarnalæknir ábyrgð á opinberum
sóttvörnum hér á landi undir yfir-
stjórn ráðherra og er heilbrigðisyfir-
völdum til ráðgjafar um aðgerðir til
varnar útbreiðslu
smitsjúkdóma.
Á Íslandi hefur
tíðni matarbor-
inna sýkinga
hjá mönnum og
sýklalyfjaónæmi
verið umtalsvert
minna en í flest-
um nágranna-
löndum. Með auknum innflutningi
á ferskum landbúnaðarvörum, eink-
um alifuglakjöti, er hætt við að tíðni
matarborinna sýkinga muni aukast
hér á landi sem og útbreiðsla sýkla-
lyfjaónæmra baktería.
Ekkert fjallað um heilbrigðismál
Í þingsályktunartillögu þeirri sem
hér er til umfjöllunar er einungis
fjallað um tolla og tollkvóta á land-
búnaðarvörur til og frá Íslandi en
ekkert beinlínis um heilbrigðismál
sem snerta innflutning á ferskum
landbúnaðarvörum.
Engu að síður er rétt að vekja
athygli á því að aukinn innflutningur
á ferskum landbúnaðarvörum hing-
að til lands getur haft í för með sér
ákveðin heilbrigðisvandamál sem
íslensk yfirvöld þurfa að vera með-
vituð um og tilbúin að bregðast við.
Sýklalyfjaónæmar bakteríur
mikil heilbrigðisógn
Samkvæmt áliti Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar og Sóttvarna-
stofnunar Evrópu sambandsins
þá er útbreiðsla ýmissa sýkla og
sýklalyfjaónæmra baktería ein
helsta heilbrigðisógn sem steðjar
að mönnum í heiminum í dag.
Margir þættir stuðla að
útbreiðslu sýkla, sýklalyfjanæmra
og -ónæmra, en einn þeirra er
dreifing með ferskum matvæl-
um, einkum fersku alifuglakjöti
eins og bent er á í nýlegri skýrslu
á vegum Sóttvarnastofnunar
Evrópusambandsins (ECDC) og
Matvælaöryggisstofnunar Evrópu
(EFSA).
Sóttvarnalæknir telur því mik-
ilvægt að samningur Íslands við
Evrópusambandið um viðskipti
með ferskar matvörur taki mið
af ofangreindum áhættum og að í
honum verði sett ákvæði sem gefi
Íslandi möguleika á að takmarka
innflutning á vörum sem sýnt þykir
að auka muni ógn við almennt
heilbrigði hér á landi.
/VH
Nú er hásumar og gróður jarðar dafnar vel, hvort heldur sem er nytjajurtir eða tegundir sem fáum verða að gagni.
Hún Þórdís Erla Ólafsdóttir, 11 ára stúlka úr Árbænum, var á göngu í landi Keldna í Reykjavík á dögunum og faldi
sig innan um risavaxnar súrur sem virðast í miklum vexti. Myndin er ein af hundruðum mynda sem hafa borist í
leiknum „Sumarilmi“ þar sem fólk er hvatt til að festa sumarstemningu á mynd og merkja hana með #sumarilmur
á Instagram. Myndirnar birtast á sumarilmur.is og veittir eru veglegir vinningar fyrir bestu myndirnar.
Mynd / Ásthildur Erlingsdóttir
„Það eru þreifingar í gangi, en slát-
urleyfishafar hafa enn sem komið
er lítið gefið upp. Við gerum kröfu
um hækkun á afurðaverði og
bendum á að sáralítið eða engin
hækkun fékkst í fyrrahaust,“
segir Þórarinn Ingi Pétursson,
formaður Landssamtaka sauð-
fjárbænda.
LS sendi frá sér viðmiðunar-
verðskrá haustið 2014, hún var til
þriggja ára og gildir til haustsins
2017. Í viðmiðunarverðskránni er
gert ráð fyrir að bændur fái 25%
hækkun á tímabilinu. „Þetta er það
eina sem við getum gert, að senda út
verðskrá til viðmiðunar, það er svo
alveg undir hælinn lagt hvort farið er
eftir henni. Fram til þessa hefur það
ekki verið gert,“ segir hann.
Sölukippur síðustu vikur
Þórarinn Ingi segir það ekki hafa
farið framhjá sauðfjárbændum að
sláturleyfishafar beri sig illa, afkom-
an á liðnu ári hafi víðast verið slæm.
„Við merkjum það núna að hlutirnir
færast upp á við, júní var mjög góður
sölumánuður og raunar með þeim
bestu. Þá hafa afurðastöðvarnar
verið að taka sig á varðandi bæði
markaðssetningu og vöruþróun og
það hefur örugglega sitt að segja,“
segir hann.
Einn aðili af þremur fitnar
„Það gengur hins vegar ekki til
lengdar að einn aðili af þremur í
framleiðslukeðjunni fitni og hinir
sitji eftir, það er öllum kunnugt að
bændur og sláturleyfishafar hafa
fengið lítið fyrir sinn snúð, en auð-
vitað er það svo að allir sem þátt taka
verða að fá greitt fyrir sína vinnu,
ekki bara einn aðili,“ segir Þórarinn
Ingi og á þar við verslunina.
Hann segir orðið mjög aðkallandi
að bændur fái afurðaverðshækkun
og í ljósi aukinnar eftirspurnar eftir
vöru þeirra segði markaðslögmálið
að hægt væri að greiða þeim hærra
verð. Frumframleiðendurnir vilji fá
sinn skerf af kökunni. Þeir framleiði
hágæðavöru sem eftirspurn sé eftir.
„Einhvers staðar virðist samt málið
stranda og sláturleyfishafarnir bera
sig mjög illa um þessar mundir.“
Of margir sláturleyfishafar
Þórarinn Ingi segir að ná þurfi fram
enn meiri hagræðingu á sláturmark-
aði en þegar er orðin. Hans mat er
það að fækka megi sláturleyfishöf-
um, það séu of margir að sýsla með
of lítið magn og selja í of fáar og
stórar verslanir. „Það er örugglega
hægt að gera þetta með hagkvæm-
ari hætti sem yrði hagstæðara fyrir
bændur og neytendur.“
Sláturleyfishafar eru á önd-
verðum meiði við Þórarin Inga og
gefa flestir í skyn verðlækkanir í
haust.
/MÞÞ
Sjá nánar bls. 2.
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda:
Aðkallandi að bændur fái
hækkun fyrir sínar afurðir
16
Landbúnaðar-
og handverks-
sýning í Eyjafirði
Hindber
eru ofurfæða
38
Rannsaka
manngerða
hella
24
Þórarinn Ingi Pétursson segir að
allir í framleiðslukeðjunni verði að
fá greitt fyrir sína vinnu. Mynd / TB
Þórólfur
Guðnason.