Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016 Land Rover Discovery Sport. Myndir / HLJ Land Rover Discovery Sport: Lúxus-jepplingur sem hentar vel til ferðalaga Mörgum er eftirsjá í gamla Land Rover, vinsæla jeppanum sem hætt var að framleiða á síðasta ári. Merki Land Rover hefur hins vegar fengið framhaldslíf með meiri lúxusbílum. Fyrir nokkru prófaði ég Discovery Sport sem er að mínu mati meira jepplingur en jeppi vegna þess hversu felgurnar eru stórar og „prófíll“ dekkja er lítill og þar af leiðandi með litla fjöðrun sem jeppadekk. Kraftmikill með níu þrepa sjálfskiptingu Strax og sest er inn í bílinn finnur maður fyrir þægindum alls stað- ar, sætið fellur vel að líkamanum og heldur vel við bak, fótapláss er gott, veghljóð og vélahljóð er lítið inni í bílnum. Öllum stjórntækjum og tökkum sem bílstjóri notar er haganlega komið fyrir á stöðum þar sem gott er að ná til þeirra. Bakkmyndavél er mjög skýr og sýnir vel aftur fyrir bíl (hægt er að vera með kveikt á henni í akstri sem er ekki á mörgum öðrum bílum). 150 hestafla vélin skilar góðri snerpu, er hljóðlítil og togar vel í bröttum brekkum enda er tog vélarinnar 380 Nm á 1.750 snúningum á mínútu. Sjálfskiptingin er níu þrepa og finnur maður nánast aldrei þegar bíllinn skiptir sér, hvorki upp né niður. Eyðsla góð miðað við kraft vélar Í prufuakstrinum ók ég holóttan malarveg og er ekki hægt annað en að hrósa fjöðruninni. Hins vegar er belgurinn á dekkjunum full lágur (oftast nefndur á bílamáli: „prófíll“). Hægt er hins vegar að fá Land Rover Discovery Sport afhentan á 17 tommu felgum sem gefur möguleika á hærri og belgmeiri dekkjum í stað 18 tommu felgna sem var undir bíln- um sem ég prófaði. Með 17 tommu felgunum er bíllinn 250.000 kr. ódýr- ari og kosturinn er betri fjöðrun í vegslóðum og á möl. Jeppinn er fyrir vikið með aðeins svagari fjöðrun og aksturseiginleika á bundnu slitlagi. Uppgefin meðaleyðsla samkvæmt sölubæklingi er 5,3 lítrar í blönduð- um akstri. Nánast aldrei hefur mér tekist að komast nálægt uppgefinni eyðslu, en á þessum rúmu 200 km sem ég ók bílnum var meðaleyðsla mín 7,6 lítrar á hundraðið sem er að mínu mati mjög ásættanleg eyðsla þar sem mér leiddist ekkert að gefa bílnum vel inn í tíma og ótíma til að finna góðan kraftinn. Gott pláss í farangursrými Ef farið er yfir gott og slæmt þá er lítið slæmt að mínu mati fyrir utan 18 tommu felgurnar. Hins vegar var varadekkið í þessum bíl það sem ég kalla „aumingja“ þrátt fyrir að pláss sé fyrir fullbúið varadekk. Speglar á hliðum mjög góðir, hátt undir bílinn, en lægsti punktur er 21,2 cm. Í fyrsta sinn þegar ég hef verið að fletta upplýsingum um nýja bíla tók ég eftir að mesta vatnsdýpt sem bíllinn má fara í er 60 cm djúpt vatn (man ekki eftir að hafa rekið augun í þessar upplýsingar áður). Dráttarkúla kemur sem staðalbún- aður og er dráttargeta bílsins 2,2 tonn. Hiti er í framrúðu og stýri sem ætti að henta íslenskuWm vetrarað- stæðum vel. Farangursrými er mjög gott og með einu handtaki leggur maður niður sætin til að auka það enn frekar. Hægt er að velja á milli 12 mismunandi lita á Land Rover Discovery Sport. Verðið á bíln- um sem ég ók er 8.190.000 kr. en með því að taka bílinn á 17 tommu dekkjum og felgum lækkar hann um 250.000 krónum. Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Þyngd 1.775 kg Hæð 1.724 mm Breidd 2.069 mm Lengd 4.599 mm Helstu mál og upplýsingar Stórir hliðarspeglar sýna vel aftur- fyrir bílinn. Aftursætin eru góð, þægileg og fótapláss nægt. 21,2 cm eru undir lægsta punkt. Sterkleg stálplata er undir vélinni. Framsætin halda vel við bakið.Lágur dekkjaprófíll. Til sölu jarðirnar Stóra-Fjarðarhorn Kollafirð ásamt eyðijörðinni Þrúðardal í Strandabyggð. Á jörðunum er rekið mjög myndarlegt fjárbú með góðum bústofni vélum og húsakosti. Öll uppbygging til fyrirmyndar. Landstærð rúmlega 1800 hektarar. Framleiðsluréttur í suðfé er um 580 ærgildi. Ær, geldingar og hrútar nú um 400. Nægur húsakostur til að fjölga fé umtalsvert. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu Fasteignamiðstöðv- arinnar sími 550-3000 /892-6000. Sjá einnig fasteignamidstodin.is. Tilvísunarnúmer. 10-204 Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi - Sími 550 3000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.