Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 20

Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016 Búvörusamningar í garðyrkju: Hafa aukið fjölbreytni og framboð á gæðavörum allt árið Fyrsti búvörusamningurinn í garðyrkju var gerður árið 2002. Til að gæta nákvæmni hét samn- ingurinn reyndar því óþjála nafni „Aðlögunarsamningur um starfs- skilyrði framleiðenda garðyrkju- afurða milli ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands / Sambands garðyrkjubænda“. Búvörusamningar eru samstarfssamningar ríkis og bænda Sennilega væri meira lýsandi að búvörusamningar hétu samstarfs- samningar. Það eru þeir í raun þar sem allir aðilar hafa réttindi og skyld- ur er lúta að því að uppfylla sameig- inleg markmið. Í samningagerðinni felst að aðilar koma sér saman um með hvaða hætti umgjörð framleiðsl- unnar verði í tiltekinn tíma. Slíkur rammi er mikilvægur til að auðvelda áætlanir um starfsgreinina, svo sem áform um fjárfestingar og mat á þátt- um svo sem nauðsynlegu landrými, ræktunarþörf, eftirspurn, menntunar- þörf í starfsgreininni, vinnuaflsþörf og fjölmörgu öðru. Þótt búvörusamn- ingar séu mikilvægir bændum eru þeir ekki síður nauðsynlegt stjórn- tæki fyrir hið opinbera, sem mótar umgjörð landbúnaðarins í samræmi við aðra stefnumótun í landinu. Rétt eins og framleiðsluferlar í landbún- aði geta verið mjög langir, á það ekki síður við um verkefni hins opinbera, s.s. uppsetningu nýrra námsbrauta í takt við breytingu á menntunarþörf- um, aðlögun laga og reglugerða að nýjum framleiðsluháttum í mat- vælaframleiðslu, þróun landbúnaðar og löggjafar erlendis o.fl. Það er því nauðsynlegt fyrir alla samningsaðila að hafa skýran ramma um samstarfið til lengri tíma. Endurskoðunarákvæði í samningum tryggja að samningsað- ilar geti brugðist sameiginlega við ófyrirsjáanlegum aðstæðum sem upp kunna að koma. Breytingar Engum þarf að blandast hugur um að þróun í garðyrkju hefur verið ör síðustu ár og miklar breytingar hafa orðið frá því fyrsti samningurinn var gerður fyrir 14 árum. En af hverju – hvað gerðist? Fyrst ber að nefna að fjölmargir áhrifaþættir í ytra umhverfi greinar- innar hafa tekið miklum stakka- skiptum, s.s. fjöldi ferðamanna, matarvenjur þjóðarinnar, tækni í garðyrkjustöðvum og samfélaginu öllu. Eftirspurn eftir innlendum garðyrkjuafurðum hefur vaxið mjög á þessu tímabili en það hefur framleiðslugetan líka gert. Líkt og í öðrum greinum landbúnaðar hefur framleiðendum fækkað en bú þeirra jafnframt stækkað. Fjölbreytni í ræktun hefur aukist og nú má einnig fá fleiri tegundir yfir lengra tímabil, þ. e. fleiri vikur á ári hverju. Markmið með búvörusamningum í garðyrkju Við gerð samningsins árið 2002 voru sett fram markmið og hafa þau í raun verið kjarni samstarfsins síðan. Markmiðin hafa m.a. falist í því að: • Lækka verð til neytenda á garð- yrkjuafurðum. • Auka hagkvæmni og sam- keppnishæfni innlendrar græn- metisframleiðslu. • Treysta tekjugrundvöll fram- leiðenda. Til að ná fram markmiðum samn- ingsins hafa m.a. verið farnar eft- irfarandi leiðir: • Ríkið hefur með samningi við orkufyrirtækin greitt niður hluta ingu raforku til garðyrkjustöðva í ylrækt. • Tollvernd hefur verið afnumin af tómötum, gúrkum og papr- ikum en beingreiðslur teknar upp í staðinn. • Stutt hefur verið við bændur vegna úreldingar gróðurhúsa og uppsetningu lýsingarbúnaðar. • Árlega hafa verið veitt fram- lög til verkefna á sviði kynn- ingar, rannsókna, þróunar og endurmenntunar. Svipar þeim stuðningi mjög til ýmissa an- narra atvinnulífssjóða sem styðja Hvað hefur tekist best? Það er fróðlegt að velta því upp hvort þau markmið sem sett voru hafi náðst. Á því hafa verið gerðar samantektir og fyrir liggja ýmsar tölulegar upplýsingar sem ekki er svigrúm til að birta hér. Ekki er um það deilt að verð á grænmeti til neyt- enda, bæði innlendu og innfluttu, hefur lækkað. Þróun í lýsingu hefur orðið mjög veruleg, bæði hvað varð- ar aukinn ræktunarárangur en ekki síður þegar litið er til hagkvæmari nýtingar á þeirri orku sem til lýs- ingarinnar fer. Framlög til kynningarstarfs, rannsókna og vöruþróunar hafa verið greininni afar mikilvæg og átt stóran þátt í að tekist hefur að auka fjölbreytni og framboð á gæða- vörum árið um kring. Sífellt fjölgar einnig þeim vörum sem unnar eru úr innlendum garðyrkjuafurðum og rík áhersla er lögð á gæðastarf, bæði í höndum bænda og afurðastöðva þeirra. Sú markvissa þekkingaryfirfær- sla sem átt hefur sér stað með reglu- legum komum erlendra ráðunauta hingað til lands er ánægjulegt dæmi um góðan og skilvirkan stuðning sem skilað hefur framúrskarandi árangri. Framlag í búvörusamn- ingum hefur m.a. verið nýtt til að niðurgreiða kostnað við komu erlendu ráð gjafanna sem eðlilega er verulegur. Með endurteknum heimsóknum í garðyrkjustöðvar í fylgd innlendra ráðunauta hafa erlendu ráðunautarnir kynnst rækt- unaraðstæðum hérlendis og geta nú í auknum mæli sniðið ráðgjöf sína og þjónustu að íslenskri garðyrkju. Innlendu ráðunautarnir fylgja eftir ráðgjöf og þjónustu þeirra erlendu og njóta góðs af þekkingu kollega sinna og eiga við þá samstarf um nýjungar í garðyrkju o.fl. Þeir garð- yrkjubændur sem rætt var við vegna ritunar þessarar greinar voru allir á einu máli um að þessi aðstoð erlendu ráðunautanna og uppbygging þekk- ingar meðal bænda og ráðunauta innanlands væri annað af tveimur atriðum sem mestan árangur hefði borið frá því samstarf á vettvangi búvörusamninga í garðyrkju hófst. Hitt atriðið er sú jákvæða og mikla þróun í lýsingu í ylræktinni sem skilað hefur prýðilegum árangri. Enn er verk að vinna Þótt hér hafi verið rakin dæmi um þau markmið sem náðst hafa fram er björninn ekki unninn þegar kemur að afkomu bænda. Nauðsynlegt er að vinna áfram að því að styrkja þann þátt og gera þarf sérstakt átak til að auðvelda nýliðun í greininni. Slíkt verkefni þarf að vinna með langtímasjónarmið í huga, þróunin á Norðurlöndunum og víðar sýnir að nýliðun í landbúnaði er mikil og vaxandi áskorun. Það er einnig viðvarandi verk- efni hjá garðyrkjubændum að njóta ásættanlegra kjara vegna kaupa á raforku til ylræktar. Það er verkefni Íslendinga, sem þjóðar, að forgangs- raða með hvaða hætti nýta eigi sam- eiginlegar auðlindir. Þar hlýtur garð- yrkjan að njóta vaxandi skilnings og forgangs í framtíðinni. Kannanir sýna að innlendar garðyrkjuafurðir njóta mikils velvilja íslenskra neyt- enda og kolefnisfótspor íslenska grænmetisins er í öllum tilfellum mun minna en þess innflutta skv. þeim mælingum sem gerðar hafa verið. Framangreindir þættir verða áfram til úrlausnar í þeim samstarfs- samningum sem kallast í daglegu tali búvörusamningar. Framtíðin er björt – og græn. Katrín María Andrésdóttir, framkvæmdastjóri SG kma@gardyrkja.is BOGAHÝSI ÝMSARÚTFÆRSLUR GRÓÐURHÚS 5x6 METRAR ÚTDRAGANLEGT BOGAHÚS Á AKUREYRI REIÐHÖLL Í KJÓS FJÁRHÚS REIÐHÖLL Í KJÓS FJÖLNOTA ÍÞRÓTTAHÚS Á BORGARFIRÐI EYSTRI Hýsi - Merkúr hf. / Sími 534 6050 / hysi@hysi.is / www.hysi.is VIÐ FINNUM LAUSNINA MEÐ ÞÉR FLUGSKÝLI Tollvernd hefur verið afnumin af tómötum, gúrkum og paprikum en bein- greiðslur teknar upp í staðinn. Stutt hefur verið við bændur vegna uppsetningar lýsingarbúnaðar. Garðyrkjubændur hafa verið duglegir að tileinka sér nýjungar í ræktun og miðla þekkingu sín á milli. Innlendir og erlendir garðyrkjuráðunautar gegna lykilhlutverki í framþróun greinarinnar. Myndir / Samband garðyrkjubænda Í umræðunni

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.