Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Búvörusamningar í garðyrkju:
Hafa aukið fjölbreytni og
framboð á gæðavörum allt árið
Fyrsti búvörusamningurinn í
garðyrkju var gerður árið 2002.
Til að gæta nákvæmni hét samn-
ingurinn reyndar því óþjála nafni
„Aðlögunarsamningur um starfs-
skilyrði framleiðenda garðyrkju-
afurða milli ríkisstjórnar Íslands
og Bændasamtaka Íslands /
Sambands garðyrkjubænda“.
Búvörusamningar eru
samstarfssamningar ríkis og
bænda
Sennilega væri meira lýsandi að
búvörusamningar hétu samstarfs-
samningar. Það eru þeir í raun þar
sem allir aðilar hafa réttindi og skyld-
ur er lúta að því að uppfylla sameig-
inleg markmið. Í samningagerðinni
felst að aðilar koma sér saman um
með hvaða hætti umgjörð framleiðsl-
unnar verði í tiltekinn tíma. Slíkur
rammi er mikilvægur til að auðvelda
áætlanir um starfsgreinina, svo sem
áform um fjárfestingar og mat á þátt-
um svo sem nauðsynlegu landrými,
ræktunarþörf, eftirspurn, menntunar-
þörf í starfsgreininni, vinnuaflsþörf
og fjölmörgu öðru. Þótt búvörusamn-
ingar séu mikilvægir bændum eru
þeir ekki síður nauðsynlegt stjórn-
tæki fyrir hið opinbera, sem mótar
umgjörð landbúnaðarins í samræmi
við aðra stefnumótun í landinu. Rétt
eins og framleiðsluferlar í landbún-
aði geta verið mjög langir, á það ekki
síður við um verkefni hins opinbera,
s.s. uppsetningu nýrra námsbrauta í
takt við breytingu á menntunarþörf-
um, aðlögun laga og reglugerða að
nýjum framleiðsluháttum í mat-
vælaframleiðslu, þróun landbúnaðar
og löggjafar erlendis o.fl. Það er því
nauðsynlegt fyrir alla samningsaðila
að hafa skýran ramma um samstarfið
til lengri tíma. Endurskoðunarákvæði
í samningum tryggja að samningsað-
ilar geti brugðist sameiginlega við
ófyrirsjáanlegum aðstæðum sem upp
kunna að koma.
Breytingar
Engum þarf að blandast hugur um
að þróun í garðyrkju hefur verið ör
síðustu ár og miklar breytingar hafa
orðið frá því fyrsti samningurinn var
gerður fyrir 14 árum. En af hverju –
hvað gerðist?
Fyrst ber að nefna að fjölmargir
áhrifaþættir í ytra umhverfi greinar-
innar hafa tekið miklum stakka-
skiptum, s.s. fjöldi ferðamanna,
matarvenjur þjóðarinnar, tækni í
garðyrkjustöðvum og samfélaginu
öllu. Eftirspurn eftir innlendum
garðyrkjuafurðum hefur vaxið
mjög á þessu tímabili en það hefur
framleiðslugetan líka gert. Líkt og í
öðrum greinum landbúnaðar hefur
framleiðendum fækkað en bú þeirra
jafnframt stækkað. Fjölbreytni í
ræktun hefur aukist og nú má einnig
fá fleiri tegundir yfir lengra tímabil,
þ. e. fleiri vikur á ári hverju.
Markmið með búvörusamningum
í garðyrkju
Við gerð samningsins árið 2002
voru sett fram markmið og hafa
þau í raun verið kjarni samstarfsins
síðan.
Markmiðin hafa m.a. falist í því
að:
• Lækka verð til neytenda á garð-
yrkjuafurðum.
• Auka hagkvæmni og sam-
keppnishæfni innlendrar græn-
metisframleiðslu.
• Treysta tekjugrundvöll fram-
leiðenda.
Til að ná fram markmiðum samn-
ingsins hafa m.a. verið farnar eft-
irfarandi leiðir:
• Ríkið hefur með samningi við
orkufyrirtækin greitt niður hluta
ingu raforku til garðyrkjustöðva
í ylrækt.
• Tollvernd hefur verið afnumin
af tómötum, gúrkum og papr-
ikum en beingreiðslur teknar upp
í staðinn.
• Stutt hefur verið við bændur
vegna úreldingar gróðurhúsa
og uppsetningu lýsingarbúnaðar.
• Árlega hafa verið veitt fram-
lög til verkefna á sviði kynn-
ingar, rannsókna, þróunar og
endurmenntunar. Svipar þeim
stuðningi mjög til ýmissa an-
narra atvinnulífssjóða sem styðja
Hvað hefur tekist best?
Það er fróðlegt að velta því upp
hvort þau markmið sem sett voru
hafi náðst. Á því hafa verið gerðar
samantektir og fyrir liggja ýmsar
tölulegar upplýsingar sem ekki er
svigrúm til að birta hér. Ekki er um
það deilt að verð á grænmeti til neyt-
enda, bæði innlendu og innfluttu,
hefur lækkað. Þróun í lýsingu hefur
orðið mjög veruleg, bæði hvað varð-
ar aukinn ræktunarárangur en ekki
síður þegar litið er til hagkvæmari
nýtingar á þeirri orku sem til lýs-
ingarinnar fer.
Framlög til kynningarstarfs,
rannsókna og vöruþróunar hafa
verið greininni afar mikilvæg og
átt stóran þátt í að tekist hefur að
auka fjölbreytni og framboð á gæða-
vörum árið um kring. Sífellt fjölgar
einnig þeim vörum sem unnar eru
úr innlendum garðyrkjuafurðum og
rík áhersla er lögð á gæðastarf, bæði
í höndum bænda og afurðastöðva
þeirra.
Sú markvissa þekkingaryfirfær-
sla sem átt hefur sér stað með reglu-
legum komum erlendra ráðunauta
hingað til lands er ánægjulegt dæmi
um góðan og skilvirkan stuðning
sem skilað hefur framúrskarandi
árangri. Framlag í búvörusamn-
ingum hefur m.a. verið nýtt til
að niðurgreiða kostnað við komu
erlendu ráð gjafanna sem eðlilega
er verulegur. Með endurteknum
heimsóknum í garðyrkjustöðvar
í fylgd innlendra ráðunauta hafa
erlendu ráðunautarnir kynnst rækt-
unaraðstæðum hérlendis og geta nú
í auknum mæli sniðið ráðgjöf sína
og þjónustu að íslenskri garðyrkju.
Innlendu ráðunautarnir fylgja eftir
ráðgjöf og þjónustu þeirra erlendu
og njóta góðs af þekkingu kollega
sinna og eiga við þá samstarf um
nýjungar í garðyrkju o.fl. Þeir garð-
yrkjubændur sem rætt var við vegna
ritunar þessarar greinar voru allir á
einu máli um að þessi aðstoð erlendu
ráðunautanna og uppbygging þekk-
ingar meðal bænda og ráðunauta
innanlands væri annað af tveimur
atriðum sem mestan árangur hefði
borið frá því samstarf á vettvangi
búvörusamninga í garðyrkju hófst.
Hitt atriðið er sú jákvæða og mikla
þróun í lýsingu í ylræktinni sem
skilað hefur prýðilegum árangri.
Enn er verk að vinna
Þótt hér hafi verið rakin dæmi um
þau markmið sem náðst hafa fram
er björninn ekki unninn þegar kemur
að afkomu bænda. Nauðsynlegt er
að vinna áfram að því að styrkja
þann þátt og gera þarf sérstakt átak
til að auðvelda nýliðun í greininni.
Slíkt verkefni þarf að vinna með
langtímasjónarmið í huga, þróunin
á Norðurlöndunum og víðar sýnir
að nýliðun í landbúnaði er mikil og
vaxandi áskorun.
Það er einnig viðvarandi verk-
efni hjá garðyrkjubændum að njóta
ásættanlegra kjara vegna kaupa á
raforku til ylræktar. Það er verkefni
Íslendinga, sem þjóðar, að forgangs-
raða með hvaða hætti nýta eigi sam-
eiginlegar auðlindir. Þar hlýtur garð-
yrkjan að njóta vaxandi skilnings
og forgangs í framtíðinni. Kannanir
sýna að innlendar garðyrkjuafurðir
njóta mikils velvilja íslenskra neyt-
enda og kolefnisfótspor íslenska
grænmetisins er í öllum tilfellum
mun minna en þess innflutta skv.
þeim mælingum sem gerðar hafa
verið.
Framangreindir þættir verða
áfram til úrlausnar í þeim samstarfs-
samningum sem kallast í daglegu
tali búvörusamningar. Framtíðin er
björt – og græn.
Katrín María Andrésdóttir,
framkvæmdastjóri SG
kma@gardyrkja.is
BOGAHÝSI ÝMSARÚTFÆRSLUR
GRÓÐURHÚS 5x6 METRAR ÚTDRAGANLEGT BOGAHÚS Á AKUREYRI
REIÐHÖLL Í KJÓS
FJÁRHÚS REIÐHÖLL Í KJÓS FJÖLNOTA ÍÞRÓTTAHÚS Á BORGARFIRÐI EYSTRI
Hýsi - Merkúr hf. / Sími 534 6050 / hysi@hysi.is / www.hysi.is
VIÐ FINNUM
LAUSNINA
MEÐ ÞÉR
FLUGSKÝLI
Tollvernd hefur verið afnumin af tómötum, gúrkum og paprikum en bein-
greiðslur teknar upp í staðinn.
Stutt hefur verið við bændur vegna
uppsetningar lýsingarbúnaðar.
Garðyrkjubændur hafa verið duglegir að tileinka sér nýjungar í ræktun og
miðla þekkingu sín á milli. Innlendir og erlendir garðyrkjuráðunautar gegna
lykilhlutverki í framþróun greinarinnar. Myndir / Samband garðyrkjubænda
Í umræðunni