Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016 Ofurfæðan hindber Hindber eru af brómberja- og rósa- ætt og eru að margra mati ofurfæða enda innihalda þau mikið magn andoxunarefna, C-vítamína ásamt A og B-vítamínum. Þau innihalda í raun meira magn C-vítamína en appelsínur, eru trefjarík, innihalda lítið af kaloríum og eru rík af fólin- sýru. Um 200 hindberjaplöntutegund- ir eru til í heiminum. Plönturnar eru gríðarlega öflugar og er í raun erfitt að halda þeim í skefjum því þær breiða úr sér með síðuskotum sem koma upp rétt við aðalplöntuna. Hindber eru sæt á bragðið og henta við ýmis tækifæri, sem eftirréttur með rjóma, í ís, saft, sultur og eða í salat. Hvert ber samanstendur af nokkrum litlum ávöxtum sem settir eru saman af einu fræi sem er þakið rauðu ávaxtakjöti. Klasi af slíkum ávöxtum verður síðan að heilu hindberi. Hvert hindber getur innihaldið á bilinu 100–120 fræ. Hindber geta verið rauð, fjólublá, gyllt eða svört á lit, þau gylltu eru sætasta tegundin og eru mjög bragðgóð. Villihindber gegn reiði og gráti Samkvæmt grískri goðafræði voru það hindber sem hjálpuðu Júpíter frá því að verða svikinn af sínum eigin föður. Satúrnus, sem var afbrýðisamur og hafði fyrir vana að borða börn sín. Þegar Júpíter var nýfæddur var hann sendur í skjól til Krítar þar sem Ida nokkur hugsaði um hann. Hún gaf honum hunang og geitamjólk til matar en það besta sem hún gat gefið honum voru hvít villihindber sem uxu í fjöllunum. Þau slógu á bæði grát og reiði en Júpíter hafði mikið skap. Þess vegna gerður Rómverjar hann að guði þruma og eldinga. Sem ungbarn var skap Júpíters svo mikið að móðirin hafði sent hann í burtu með nokkra djöfla, sem nefndust korybantar sem gátu með þrumuháum trommuslætti og eldgnístandi dansi yfirgnæft öskr- in svo faðir hans gæti ekki komist á snoðir um hvar drengurinn var falinn. Dag einn yfirgnæfði þó Júpíter yfir djöflunum og það var einmitt þá sem Ida greip til villihindberjanna í þeirri von að það myndi róa hann niður. Á meðan hún tíndi átti hún á hættu að skaða sjálfa sig á þyrni stráðum runnunum. Slíkt gerðist og blóðið rann niður á berin sem gaf þeim hinn rauða lit. Berin gerðu það að verkum að þau þögguðu niður í skapsmunum Júpíters, felustaður hans var áfram leyndur og hann óx upp og varð kon- ungur guðanna. Upp frá þessu hafa guðirnir séð til þess að hindber séu ávallt rauð á lit. Lækningamáttur hindberjaplantna Ida var verðlaunuð ríkulega fyrir sína viðleitni af bæði guðum og mann- eskjum. Júpíter þakkaði henni fyrir umhyggju sína með því að senda hana til himna þar sem hún lifir um ókomna tíð sem stjörnumyndin Litli-Björn. Fólk kallaði fjöllin á Krít, þar sem Júpíter var alinn upp, Ida-fjöllin og berin sem voru svo skapgerðar-still- andi rubus idaeus eða rauðu berin hennar Idu. Rubus er heiti úr latínu og kemur af ruber sem þýðir rauður og er sam- eiginleg lýsing á plöntufjölskyldu sem samanstendur af nokkur hund- ruð tegundum. Innan þeirra eru meðal annars brómber og moltuber. Samkvæmt Hippokrates (460–370 f.Kr. ), voru hindber ræktuð bæði til matar- og lyfjagerðar í Grikklandi á hans tíma. Rómverjar voru einnig uppteknir af lækningamætti hindberja- plantna. Pedanioa Dioscorides, sem var læknir í rómverska hernum fyrstu árin eftir fæðingu Krists, safnaði saman kunnáttu um heilandi plöntur við Miðjarðarhafið. Í bókinni De Matria Medica eru nákvæmar lýsingar á um fimm hundruð plöntum og hvað hægt væri að nota þær í. Hindberja- og brómberjaplöntur sagði hann meðal annars geta læknað munnangur, linað þjáningar við ristilbólgum, vera góðar gegn lús, gyllinæð og fleiri kvillum. Einnig höfðu plönturnar góða virkni gegn hjartakvillum. Þegar hálf- þroskaðra berja var neytt átti það að stöðva niðurgang og blómin höfðu sömu virkni ef þau voru innbyrt saman með víni vel að merkja. Gott gegn hálsbólgu og munnsárum Hindber eru full af andoxunarefnum og C-vítamíni ásamt fleiri fæðubót- arefnum. Menn uppgötvuðu snemma lækningamátt plantnanna. Þannig tuggðu Rómverjar blöðin til að losna við munnsár og hindberjasaft var talið geta komið í veg fyrir hálsbólgu. Te af hindberjablöðum er hægt að nota við fleiru en munnsári og bólgnum hálskirtlum því innan jurtafræða eru þau talin geta læknað niðurgang og linað túrverki. Efni í blöðunum gerir það að verkum að slímhimnan dreg- ur sig saman. Aðrir hafa haldið því fram að í berjunum séu efni sem komi í veg fyrir krabbameinsmyndun og vírussýkingar. Einnig er mælt með hindberjatei fyrir ófrískar konur því það vinnur gegn flökurleika á meðgöngu og hefur góð áhrif á grindarbotnsvöðvana sem getur haft það að verkum að fæðingin gengur betur fyrir sig. Teið flýt- ir einnig fyrir bata á kviðnum eftir barnsburð. Í kínverskum jurtafræðum eru óþroskuð, þurrkuð ber notuð gegn getuleysi á meðan þroskuð ber áttu að virka styrkjandi fyrir sjónina. Vegur hindberjanna hefur farið víða og virðast vinsældir þeirra aukast með hverju árinu enda eru bragðgæði þeirra mikil og góð. Ekki skemmir heldur fyrir hversu rík þau eru af bætiefnum og hvað hægt er að nota þau sem bragðauka í marga mismunandi rétti. /ehg Grundfos borholudælur fyrir íslenskar aðstæður - til á lager Sparneytnar og öruggar í rekstri Vandað og varanlegt í áratugi Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · isleifur.is Hindberjaheiti á öðrum tungumálum Sænska – Hallon, Skogshallon Danska – Hindbær Finnska – Vattu, Vadelma, Vaapukka Enska – Raspberry, Red rasp- berry, European red raspberry, Wild raspberry Þýska – Himbeere, Waldhim- beere Franska – Framboise, Framboisi- er, Ronce du Mont Ida Spænska - Frambueso Japanska - Ezo-ichigo Hindberjauppskriftir Hindberjasíróp 300 g hindber 3 dl vatn (300 g) 120 g sykur Aðferð: Sjóðir vatn og ber og látið sjóða örlítið þar til berin eru orðin lin. Pressið berin í gegnum síu og kastið steinunum. Sjóðið saftið með sykrinum og látið blönduna sjóða þar til sírópið verður passlega þykkt. Hellið á hreinar og sem bragðaukandi í ýmsa drykki. Hindberjaedik Krukka með þéttu loki er fyllt með ferskum hindberjum og síðan er kruk- kan fyllt með ediki (ýmist eplasíder-, hvívíns- eða venjulegt 7% edik). Lokið krukkunni vel og passið að ekki sé ediksull á henni. Látið standa í kæli í 3–4 vikur og snúið henni við nokkrum sinnum. Síið edikið frá salatdressingu í sósur og í maríneringu. Myndir / EHG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.