Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Ofurfæðan hindber
Hindber eru af brómberja- og rósa-
ætt og eru að margra mati ofurfæða
enda innihalda þau mikið magn
andoxunarefna, C-vítamína ásamt
A og B-vítamínum. Þau innihalda
í raun meira magn C-vítamína en
appelsínur, eru trefjarík, innihalda
lítið af kaloríum og eru rík af fólin-
sýru.
Um 200 hindberjaplöntutegund-
ir eru til í heiminum. Plönturnar eru
gríðarlega öflugar og er í raun erfitt að
halda þeim í skefjum því þær breiða
úr sér með síðuskotum sem koma
upp rétt við aðalplöntuna. Hindber
eru sæt á bragðið og henta við ýmis
tækifæri, sem eftirréttur með rjóma,
í ís, saft, sultur og eða í salat. Hvert
ber samanstendur af nokkrum litlum
ávöxtum sem settir eru saman af einu
fræi sem er þakið rauðu ávaxtakjöti.
Klasi af slíkum ávöxtum verður síðan
að heilu hindberi. Hvert hindber getur
innihaldið á bilinu 100–120 fræ.
Hindber geta verið rauð, fjólublá, gyllt
eða svört á lit, þau gylltu eru sætasta
tegundin og eru mjög bragðgóð.
Villihindber gegn reiði og gráti
Samkvæmt grískri goðafræði voru það
hindber sem hjálpuðu Júpíter frá því
að verða svikinn af sínum eigin föður.
Satúrnus, sem var afbrýðisamur og
hafði fyrir vana að borða börn sín.
Þegar Júpíter var nýfæddur var hann
sendur í skjól til Krítar þar sem Ida
nokkur hugsaði um hann. Hún gaf
honum hunang og geitamjólk til
matar en það besta sem hún gat gefið
honum voru hvít villihindber sem uxu
í fjöllunum. Þau slógu á bæði grát og
reiði en Júpíter hafði mikið skap. Þess
vegna gerður Rómverjar hann að guði
þruma og eldinga. Sem ungbarn var
skap Júpíters svo mikið að móðirin
hafði sent hann í burtu með nokkra
djöfla, sem nefndust korybantar sem
gátu með þrumuháum trommuslætti
og eldgnístandi dansi yfirgnæft öskr-
in svo faðir hans gæti ekki komist á
snoðir um hvar drengurinn var falinn.
Dag einn yfirgnæfði þó Júpíter yfir
djöflunum og það var einmitt þá sem
Ida greip til villihindberjanna í þeirri
von að það myndi róa hann niður.
Á meðan hún tíndi átti hún á hættu
að skaða sjálfa sig á þyrni stráðum
runnunum. Slíkt gerðist og blóðið
rann niður á berin sem gaf þeim hinn
rauða lit. Berin gerðu það að verkum
að þau þögguðu niður í skapsmunum
Júpíters, felustaður hans var áfram
leyndur og hann óx upp og varð kon-
ungur guðanna. Upp frá þessu hafa
guðirnir séð til þess að hindber séu
ávallt rauð á lit.
Lækningamáttur hindberjaplantna
Ida var verðlaunuð ríkulega fyrir sína
viðleitni af bæði guðum og mann-
eskjum. Júpíter þakkaði henni fyrir
umhyggju sína með því að senda hana
til himna þar sem hún lifir um ókomna
tíð sem stjörnumyndin Litli-Björn.
Fólk kallaði fjöllin á Krít, þar sem
Júpíter var alinn upp, Ida-fjöllin og
berin sem voru svo skapgerðar-still-
andi rubus idaeus eða rauðu berin
hennar Idu.
Rubus er heiti úr latínu og kemur
af ruber sem þýðir rauður og er sam-
eiginleg lýsing á plöntufjölskyldu
sem samanstendur af nokkur hund-
ruð tegundum. Innan þeirra eru meðal
annars brómber og moltuber.
Samkvæmt Hippokrates (460–370
f.Kr. ), voru hindber ræktuð bæði til
matar- og lyfjagerðar í Grikklandi
á hans tíma. Rómverjar voru einnig
uppteknir af lækningamætti hindberja-
plantna. Pedanioa Dioscorides, sem
var læknir í rómverska hernum fyrstu
árin eftir fæðingu Krists, safnaði
saman kunnáttu um heilandi plöntur
við Miðjarðarhafið. Í bókinni De
Matria Medica eru nákvæmar lýsingar
á um fimm hundruð plöntum og hvað
hægt væri að nota þær í. Hindberja- og
brómberjaplöntur sagði hann meðal
annars geta læknað munnangur, linað
þjáningar við ristilbólgum, vera góðar
gegn lús, gyllinæð og fleiri kvillum.
Einnig höfðu plönturnar góða virkni
gegn hjartakvillum. Þegar hálf-
þroskaðra berja var neytt átti það að
stöðva niðurgang og blómin höfðu
sömu virkni ef þau voru innbyrt saman
með víni vel að merkja.
Gott gegn hálsbólgu og
munnsárum
Hindber eru full af andoxunarefnum
og C-vítamíni ásamt fleiri fæðubót-
arefnum. Menn uppgötvuðu snemma
lækningamátt plantnanna. Þannig
tuggðu Rómverjar blöðin til að losna
við munnsár og hindberjasaft var talið
geta komið í veg fyrir hálsbólgu. Te
af hindberjablöðum er hægt að nota
við fleiru en munnsári og bólgnum
hálskirtlum því innan jurtafræða eru
þau talin geta læknað niðurgang og
linað túrverki. Efni í blöðunum gerir
það að verkum að slímhimnan dreg-
ur sig saman. Aðrir hafa haldið því
fram að í berjunum séu efni sem komi
í veg fyrir krabbameinsmyndun og
vírussýkingar.
Einnig er mælt með hindberjatei
fyrir ófrískar konur því það vinnur
gegn flökurleika á meðgöngu og hefur
góð áhrif á grindarbotnsvöðvana sem
getur haft það að verkum að fæðingin
gengur betur fyrir sig. Teið flýt-
ir einnig fyrir bata á kviðnum eftir
barnsburð. Í kínverskum jurtafræðum
eru óþroskuð, þurrkuð ber notuð gegn
getuleysi á meðan þroskuð ber áttu að
virka styrkjandi fyrir sjónina.
Vegur hindberjanna hefur farið
víða og virðast vinsældir þeirra
aukast með hverju árinu enda eru
bragðgæði þeirra mikil og góð. Ekki
skemmir heldur fyrir hversu rík þau
eru af bætiefnum og hvað hægt er
að nota þau sem bragðauka í marga
mismunandi rétti. /ehg
Grundfos borholudælur fyrir
íslenskar aðstæður - til á lager
Sparneytnar og öruggar í rekstri
Vandað og varanlegt í áratugi
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · isleifur.is
Hindberjaheiti á
öðrum tungumálum
Sænska – Hallon, Skogshallon
Danska – Hindbær
Finnska – Vattu, Vadelma,
Vaapukka
Enska – Raspberry, Red rasp-
berry, European red raspberry,
Wild raspberry
Þýska – Himbeere, Waldhim-
beere
Franska – Framboise, Framboisi-
er, Ronce du Mont Ida
Spænska - Frambueso
Japanska - Ezo-ichigo
Hindberjauppskriftir
Hindberjasíróp
300 g hindber
3 dl vatn (300 g)
120 g sykur
Aðferð:
Sjóðir vatn og ber og látið sjóða örlítið þar til berin eru orðin lin. Pressið
berin í gegnum síu og kastið steinunum. Sjóðið saftið með sykrinum og
látið blönduna sjóða þar til sírópið verður passlega þykkt. Hellið á hreinar
og sem bragðaukandi í ýmsa drykki.
Hindberjaedik
Krukka með þéttu loki er fyllt með ferskum hindberjum og síðan er kruk-
kan fyllt með ediki (ýmist eplasíder-, hvívíns- eða venjulegt 7% edik).
Lokið krukkunni vel og passið að ekki sé ediksull á henni. Látið standa
í kæli í 3–4 vikur og snúið henni við nokkrum sinnum. Síið edikið frá
salatdressingu í sósur og í maríneringu.
Myndir / EHG