Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016 Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Gúmmíbelti - Fyrir smágröfur Tölvupóstur: info@europartar.is · Sími: 777 5800 www.europartar.is Vélar, skiptingar og gírkassar í miklu úrvali Sendu okkur fyrirspurn á europartar.is og við finnum varahlutinn sem þig vantar á hagstæðum kjörum Sendum hágæða varahluti frá Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi Minni varahlutir afhentir á 3-7 dögum Stærri varahlutir afhentir á 7-14 dögum Varahlutir koma fljótt og örugglega til landsins með DHL hraðþjónustu Til sölu er 198,5 fm einbýlishús ásamt 32 fm bílskúr við Heiðvang nr. 21, á Hellu. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1972. Það er múrað og málað að utanverðu og hluti þess hefur verið klæddur með timburklæðningu. Eignin telur, anddyri, gang, salerni, stofu, eldhús, þvottahús, herbergjagang, baðherbergi og fimm svefnherbergi. Undir hluta hússins er kjallari sem hefur verið innréttaður sem fjölskylduherbergi. Í húsinu eru vandaðar innréttingar úr hlyn og við það er stór verönd úr timbri með heitum potti. Húsið stendur við botnlangagötu á góðum útsýnisstað í Helluþorpi. Verð kr. 39.500.000,- FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími 487-5028 Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali Einbýlishús á Hellu Eigendur eru tilbúnir að skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar og myndir á heimasíðu www.fannberg.is og á skrifstofu. r kr. 36.9000. 0,- Endurheimt votlendis er hluti af sóknaráætlun í loftslagsmálum: Einföld framkvæmd og útkoman yfirleitt mjög góð „Sú reynsla sem fengist hefur af endurheimt votlendis hér á landi er almennt jákvæð, framkvæmd- in er oft einföld, útkoman góð og hún endist vel,“ segir Sunna Áskelsdóttir, héraðsfulltrúi Land- græðslunnar, en hún hefur jafn- framt umsjón með verkefni um endurheimt votlendis hjá stofn- uninni. Ríkisstjórnin samþykkti haustið 2015 sóknaráætlun í loftslagsmálum og er endurheimt votlendis einn liður í þeirri áætlun. Unhverfisráðuneytið fól Landgræðslunni að hafa umsjón með framkvæmdinni í samstarfi við aðra hagsmunaaðila. Markmið með endurheimt votlendis er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu votlendi og efla lífríki þeirra. Landgræðslan auglýsti á liðnu vori styrki til endurheimtar votlend- is, átta umsóknir bárust frá aðilum sem óska eftir samstarfi. Bessastaðir er fyrsta jörðin sem þátt tekur í verk efninu, en aðrar jarðir eru Kasthúsatjörn í Garðabæ, Bleiksmýri í Krýsuvíkurlandi, Stokkseyrarsel í Árborg, Hólar í Öxnadal, Teigarhorn í Berufirði auk svæðis skammt utan við kaupstaðinn á Djúpavogi. Votlendi gegnir mikilvægu hlutverki Sunna segir losun gróðurhúsa- lofttegunda úr framræstu votlendi á Íslandi árið 2013 hafa verið metna á 11,7 milljónir tonna CO2 ígildi. Þessi tala byggi á viðmiðum Vísindanefndar loftslagssamningsins (IPCC) um losun á flatareiningu og sé í ágætu samræmi við niðurstöður innlendra rannsókna. Heildarlosun gróðurhúsaloft- tegunda hér á landi árið 2013 var 16,6 millj- ónir tonna CO2 ígilda. „Vot lend i býr oft yfir mik- illi frjósemi, fjölbreyttu líf- ríki og eigin- leikum til að miðla næringu og vatni. Votlendi á landi getur dempað flóða- sveiflur á vatnasviðum. Jarðvegur þess er mjög kolefnaríkur og geym- ir verulegan hluta af kolefnisforða jarðar. Á jörðinni þekur votlendi um 3% yfirborðs lands en það geymir 20–30% alls lífræns kolefnis á landi,“ segir Sunna. Að teknu tilliti til los- unar er ávinningur af endurheimt votlendis áætlaður um 24,5 t CO2 ígildi ha-1 ár. Sunna segir framræslu votlend- is hafa neikvæð umhverfisáhrif í för með sér, þar megi nefna skerta getu lands og vistkerfa til að hreinsa og miðla vatni, t.d. að tempra flóð. „Aðgengi búfénaðar að vatni minnkar, búsvæði votlendisplantna, fugla, fiska og annarra dýra breytist eða tapast sem leiðir til minni líf- fræðilegrar fjölbreytni,“ segir hún. 34 þúsund km af framræsluskurðum hér á landi Alls hafa að sögn Sunnu verið grafnir um 34 þúsund km af framræsluskurð- um hér á landi. Þar af eru 20 þúsund km innan túna, bæði þeirra sem eru í notkun og þeirra sem hafa verið aflögð. Áætlað er að um 4.200 km2 votlendis hafi verið framræstir. Af túnum landsins eru framræst svæði áætluð um 720 km2 og þar af eru um 570 km2 innan þeirra túna sem nú eru í notkun. Ræktaðir skógar og birkiskógar ná alls yfir um 36 km2 á framræstu landi. Framræst land utan núverandi túna og skóga er áætlað um 3.600 km2. „Því má ætla að mikið af framræstu landi sé ekki nýtt til rækt- unar í dag en hvert svæði og tilvik fyrir sig er skoðað sérstaklega,“ segir Sunna. Ekki áhugi á endurheimt votlendis á landi sem er í annarri nýtingu Hún segir nytjar á framræstu votlendi mikilvægan hluta af nútíma landbún- aði, enginn áhugi sé fyrir að endur- heimta votlendi sem sé í annarri nýtingu og þá þurfi einnig að huga vel að aðliggjandi svæðum. Þannig þurfi í hverju tilviki að huga að því hvort endurheimt votlendis á einum stað geti með einhverjum hætti haft neikvæð áhrif og möguleika annars staðar, t.d. á landbúnað. Sunna segir þá sem sóttust eftir samstarfi við Landgræðsluna vera á mismunandi stað í ferlinu. „Á einum stað hefur þegar verið fyllt upp í skurði en aðgerðir ekki hafnar annars staðar og mat á aðstæðum ekki að fullu lokið. Í hópi samstarfsaðila eru t.d. landeigendur og sveitarfé- lög, en öll verkefnin snúast um að hækka grunnvatnsstöðu mýrlendis, annaðhvort með því að stífla skurði eða fylla upp í þá,“ segir Sunna en fram undan er einnig að skoða svæði á ríkisjörðum sem hentað gætu í þetta verk efni. Áhugasamir land- eigendur geta enn haft samband við Landgræðsluna vilji þeir endurheimta votlendi á sínu landi. /MÞÞ Dæmi um vel heppnaða endurheimt votlendis, Dagmálatjörn í landi Múla í Biskupstungum, sem var endurheimt árið 1998 á vegum Votlendisnefndar sem var þá starfandi. Mynd / Sunna Áskelsdóttir Sunna Áskelsdóttir. Hið opinbera setur gott fordæmi við endurheimt votlendis: Mokað ofan í skurði á Bessastöðum Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, reið á vaðið á dögunum og hóf að ýta niður skurðruðningum ofan í gamla framræsluskurði til að endurheimta votlendi á Bessastöðum. Gárungarnir höfðu á orði að innflutningsgjöfin til Guðna Th. Jóhannessonar yrði mýri. Við verkið naut forsetinn aðstoðar Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra og Árna Bragasonar landgræðslustjóra. Þar með var ýtt úr vör verkefni við endurheimt votlendis sem er hluti af sóknaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Votlendið á Bessastaðanesi var ræst fram á síðustu árunum fyrir 1970 í því skyni að rækta tún til heyskapar. Auk þess að takmarka losun kolefnis er hvatinn til endurheimtar votlendis í landi Bessastaða að auðga fuglalíf, sem er afar fjölbreytt á Bessastaðanesi en alls hafa 36 fuglategundir verið taldar á nesinu. Meðal annars er þar að finna brandönd og flórgoða sem og talsvert æðarvarp sem hefur aukist í seinni tíð. Leitast verður við að endurheimta votlendi á hluta Bessastaða. Mynd / UOA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.