Bændablaðið - 21.07.2016, Side 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Tölvupóstur: info@europartar.is · Sími: 777 5800
www.europartar.is
Vélar, skiptingar og
gírkassar í miklu úrvali
Sendu okkur fyrirspurn á europartar.is
og við finnum varahlutinn sem þig vantar
á hagstæðum kjörum
Sendum hágæða varahluti frá
Þýskalandi, Svíþjóð og Póllandi
Minni varahlutir afhentir á 3-7 dögum
Stærri varahlutir afhentir á 7-14 dögum
Varahlutir koma fljótt og örugglega til
landsins með DHL hraðþjónustu
Til sölu er 198,5 fm einbýlishús ásamt 32 fm bílskúr við Heiðvang
nr. 21, á Hellu. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1972. Það er
múrað og málað að utanverðu og hluti þess hefur verið klæddur
með timburklæðningu. Eignin telur, anddyri, gang, salerni, stofu,
eldhús, þvottahús, herbergjagang, baðherbergi og fimm
svefnherbergi. Undir hluta hússins er kjallari sem hefur verið
innréttaður sem fjölskylduherbergi. Í húsinu eru vandaðar
innréttingar úr hlyn og við það er stór verönd úr timbri með
heitum potti. Húsið stendur við botnlangagötu á góðum
útsýnisstað í Helluþorpi. Verð kr. 39.500.000,-
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF.
sími 487-5028
Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali
Einbýlishús á Hellu
Eigendur eru tilbúnir að skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar og myndir á heimasíðu www.fannberg.is og á skrifstofu.
r kr. 36.9000. 0,-
Endurheimt votlendis er hluti af sóknaráætlun í loftslagsmálum:
Einföld framkvæmd og
útkoman yfirleitt mjög góð
„Sú reynsla sem fengist hefur af
endurheimt votlendis hér á landi
er almennt jákvæð, framkvæmd-
in er oft einföld, útkoman góð
og hún endist vel,“ segir Sunna
Áskelsdóttir, héraðsfulltrúi Land-
græðslunnar, en hún hefur jafn-
framt umsjón með verkefni um
endurheimt votlendis hjá stofn-
uninni.
Ríkisstjórnin samþykkti haustið
2015 sóknaráætlun í loftslagsmálum
og er endurheimt votlendis einn liður
í þeirri áætlun. Unhverfisráðuneytið
fól Landgræðslunni að hafa umsjón
með framkvæmdinni í samstarfi við
aðra hagsmunaaðila. Markmið með
endurheimt votlendis er að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda frá
framræstu votlendi og efla lífríki
þeirra.
Landgræðslan auglýsti á liðnu
vori styrki til endurheimtar votlend-
is, átta umsóknir bárust frá aðilum
sem óska eftir samstarfi. Bessastaðir
er fyrsta jörðin sem þátt tekur í
verk efninu, en aðrar jarðir eru
Kasthúsatjörn í Garðabæ, Bleiksmýri
í Krýsuvíkurlandi, Stokkseyrarsel í
Árborg, Hólar í Öxnadal, Teigarhorn
í Berufirði auk svæðis skammt utan
við kaupstaðinn á Djúpavogi.
Votlendi gegnir mikilvægu
hlutverki
Sunna segir losun gróðurhúsa-
lofttegunda úr framræstu votlendi
á Íslandi árið 2013 hafa verið
metna á 11,7 milljónir tonna CO2
ígildi. Þessi tala byggi á viðmiðum
Vísindanefndar loftslagssamningsins
(IPCC) um losun á flatareiningu og
sé í ágætu samræmi við niðurstöður
innlendra rannsókna. Heildarlosun
gróðurhúsaloft-
tegunda hér á
landi árið 2013
var 16,6 millj-
ónir tonna CO2
ígilda.
„Vot lend i
býr oft yfir mik-
illi frjósemi,
fjölbreyttu líf-
ríki og eigin-
leikum til að miðla næringu og vatni.
Votlendi á landi getur dempað flóða-
sveiflur á vatnasviðum. Jarðvegur
þess er mjög kolefnaríkur og geym-
ir verulegan hluta af kolefnisforða
jarðar. Á jörðinni þekur votlendi um
3% yfirborðs lands en það geymir
20–30% alls lífræns kolefnis á landi,“
segir Sunna. Að teknu tilliti til los-
unar er ávinningur af endurheimt
votlendis áætlaður um 24,5 t CO2
ígildi ha-1 ár.
Sunna segir framræslu votlend-
is hafa neikvæð umhverfisáhrif í
för með sér, þar megi nefna skerta
getu lands og vistkerfa til að hreinsa
og miðla vatni, t.d. að tempra
flóð. „Aðgengi búfénaðar að vatni
minnkar, búsvæði votlendisplantna,
fugla, fiska og annarra dýra breytist
eða tapast sem leiðir til minni líf-
fræðilegrar fjölbreytni,“ segir hún.
34 þúsund km af
framræsluskurðum hér á landi
Alls hafa að sögn Sunnu verið grafnir
um 34 þúsund km af framræsluskurð-
um hér á landi. Þar af eru 20 þúsund
km innan túna, bæði þeirra sem eru
í notkun og þeirra sem hafa verið
aflögð. Áætlað er að um 4.200 km2
votlendis hafi verið framræstir. Af
túnum landsins eru framræst svæði
áætluð um 720 km2 og þar af eru
um 570 km2 innan þeirra túna sem
nú eru í notkun. Ræktaðir skógar og
birkiskógar ná alls yfir um 36 km2 á
framræstu landi. Framræst land utan
núverandi túna og skóga er áætlað um
3.600 km2. „Því má ætla að mikið af
framræstu landi sé ekki nýtt til rækt-
unar í dag en hvert svæði og tilvik
fyrir sig er skoðað sérstaklega,“ segir
Sunna.
Ekki áhugi á endurheimt votlendis
á landi sem er í annarri nýtingu
Hún segir nytjar á framræstu votlendi
mikilvægan hluta af nútíma landbún-
aði, enginn áhugi sé fyrir að endur-
heimta votlendi sem sé í annarri
nýtingu og þá þurfi einnig að huga
vel að aðliggjandi svæðum. Þannig
þurfi í hverju tilviki að huga að því
hvort endurheimt votlendis á einum
stað geti með einhverjum hætti haft
neikvæð áhrif og möguleika annars
staðar, t.d. á landbúnað.
Sunna segir þá sem sóttust eftir
samstarfi við Landgræðsluna vera
á mismunandi stað í ferlinu. „Á
einum stað hefur þegar verið fyllt
upp í skurði en aðgerðir ekki hafnar
annars staðar og mat á aðstæðum ekki
að fullu lokið. Í hópi samstarfsaðila
eru t.d. landeigendur og sveitarfé-
lög, en öll verkefnin snúast um að
hækka grunnvatnsstöðu mýrlendis,
annaðhvort með því að stífla skurði
eða fylla upp í þá,“ segir Sunna
en fram undan er einnig að skoða
svæði á ríkisjörðum sem hentað gætu
í þetta verk efni. Áhugasamir land-
eigendur geta enn haft samband við
Landgræðsluna vilji þeir endurheimta
votlendi á sínu landi.
/MÞÞ
Dæmi um vel heppnaða endurheimt votlendis, Dagmálatjörn í landi Múla í Biskupstungum, sem var endurheimt
árið 1998 á vegum Votlendisnefndar sem var þá starfandi. Mynd / Sunna Áskelsdóttir
Sunna Áskelsdóttir.
Hið opinbera setur gott fordæmi við endurheimt votlendis:
Mokað ofan í skurði á Bessastöðum
Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, reið á vaðið
á dögunum og hóf að ýta niður
skurðruðningum ofan í gamla
framræsluskurði til að endurheimta
votlendi á Bessastöðum.
Gárungarnir höfðu á orði að
innflutningsgjöfin til Guðna Th.
Jóhannessonar yrði mýri. Við
verkið naut forsetinn aðstoðar
Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfis-
og auðlindaráðherra og Árna
Bragasonar landgræðslustjóra.
Þar með var ýtt úr vör verkefni
við endurheimt votlendis sem er
hluti af sóknaráætlun stjórnvalda
í loftslagsmálum.
Votlendið á Bessastaðanesi
var ræst fram á síðustu árunum
fyrir 1970 í því skyni að rækta
tún til heyskapar. Auk þess að
takmarka losun kolefnis er hvatinn
til endurheimtar votlendis í landi
Bessastaða að auðga fuglalíf, sem
er afar fjölbreytt á Bessastaðanesi
en alls hafa 36 fuglategundir verið
taldar á nesinu. Meðal annars er
þar að finna brandönd og flórgoða
sem og talsvert æðarvarp sem hefur
aukist í seinni tíð.
Leitast verður við að endurheimta votlendi á hluta Bessastaða. Mynd / UOA