Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Land Rover Discovery Sport. Myndir / HLJ
Land Rover Discovery Sport:
Lúxus-jepplingur sem
hentar vel til ferðalaga
Mörgum er eftirsjá í gamla Land
Rover, vinsæla jeppanum sem
hætt var að framleiða á síðasta
ári. Merki Land Rover hefur hins
vegar fengið framhaldslíf með
meiri lúxusbílum. Fyrir nokkru
prófaði ég Discovery Sport sem er
að mínu mati meira jepplingur en
jeppi vegna þess hversu felgurnar
eru stórar og „prófíll“ dekkja er
lítill og þar af leiðandi með litla
fjöðrun sem jeppadekk.
Kraftmikill með níu þrepa
sjálfskiptingu
Strax og sest er inn í bílinn finnur
maður fyrir þægindum alls stað-
ar, sætið fellur vel að líkamanum
og heldur vel við bak, fótapláss er
gott, veghljóð og vélahljóð er lítið
inni í bílnum. Öllum stjórntækjum
og tökkum sem bílstjóri notar er
haganlega komið fyrir á stöðum
þar sem gott er að ná til þeirra.
Bakkmyndavél er mjög skýr og sýnir
vel aftur fyrir bíl (hægt er að vera
með kveikt á henni í akstri sem er
ekki á mörgum öðrum bílum). 150
hestafla vélin skilar góðri snerpu,
er hljóðlítil og togar vel í bröttum
brekkum enda er tog vélarinnar 380
Nm á 1.750 snúningum á mínútu.
Sjálfskiptingin er níu þrepa og finnur
maður nánast aldrei þegar bíllinn
skiptir sér, hvorki upp né niður.
Eyðsla góð miðað við kraft vélar
Í prufuakstrinum ók ég holóttan
malarveg og er ekki hægt annað en
að hrósa fjöðruninni. Hins vegar er
belgurinn á dekkjunum full lágur
(oftast nefndur á bílamáli: „prófíll“).
Hægt er hins vegar að fá Land Rover
Discovery Sport afhentan á 17
tommu felgum sem gefur möguleika
á hærri og belgmeiri dekkjum í stað
18 tommu felgna sem var undir bíln-
um sem ég prófaði. Með 17 tommu
felgunum er bíllinn 250.000 kr. ódýr-
ari og kosturinn er betri fjöðrun í
vegslóðum og á möl. Jeppinn er fyrir
vikið með aðeins svagari fjöðrun og
aksturseiginleika á bundnu slitlagi.
Uppgefin meðaleyðsla samkvæmt
sölubæklingi er 5,3 lítrar í blönduð-
um akstri. Nánast aldrei hefur mér
tekist að komast nálægt uppgefinni
eyðslu, en á þessum rúmu 200 km
sem ég ók bílnum var meðaleyðsla
mín 7,6 lítrar á hundraðið sem er að
mínu mati mjög ásættanleg eyðsla
þar sem mér leiddist ekkert að gefa
bílnum vel inn í tíma og ótíma til að
finna góðan kraftinn.
Gott pláss í farangursrými
Ef farið er yfir gott og slæmt þá er
lítið slæmt að mínu mati fyrir utan
18 tommu felgurnar. Hins vegar var
varadekkið í þessum bíl það sem
ég kalla „aumingja“ þrátt fyrir að
pláss sé fyrir fullbúið varadekk.
Speglar á hliðum mjög góðir, hátt
undir bílinn, en lægsti punktur er
21,2 cm. Í fyrsta sinn þegar ég hef
verið að fletta upplýsingum um nýja
bíla tók ég eftir að mesta vatnsdýpt
sem bíllinn má fara í er 60 cm djúpt
vatn (man ekki eftir að hafa rekið
augun í þessar upplýsingar áður).
Dráttarkúla kemur sem staðalbún-
aður og er dráttargeta bílsins 2,2
tonn. Hiti er í framrúðu og stýri sem
ætti að henta íslenskuWm vetrarað-
stæðum vel. Farangursrými er mjög
gott og með einu handtaki leggur
maður niður sætin til að auka það
enn frekar. Hægt er að velja á milli
12 mismunandi lita á Land Rover
Discovery Sport. Verðið á bíln-
um sem ég ók er 8.190.000 kr. en
með því að taka bílinn á 17 tommu
dekkjum og felgum lækkar hann um
250.000 krónum.
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Þyngd 1.775 kg
Hæð 1.724 mm
Breidd 2.069 mm
Lengd 4.599 mm
Helstu mál og upplýsingar
Stórir hliðarspeglar sýna vel aftur-
fyrir bílinn.
Aftursætin eru góð, þægileg og fótapláss nægt.
21,2 cm eru undir lægsta punkt. Sterkleg stálplata er undir vélinni.
Framsætin halda vel við bakið.Lágur dekkjaprófíll.
Til sölu jarðirnar Stóra-Fjarðarhorn Kollafirð ásamt
eyðijörðinni Þrúðardal í Strandabyggð.
Á jörðunum er rekið mjög myndarlegt fjárbú með góðum bústofni vélum
og húsakosti. Öll uppbygging til fyrirmyndar. Landstærð rúmlega 1800
hektarar. Framleiðsluréttur í suðfé er um 580 ærgildi. Ær, geldingar og
hrútar nú um 400. Nægur húsakostur til að fjölga fé umtalsvert. Nánari
upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu Fasteignamiðstöðv-
arinnar sími 550-3000 /892-6000. Sjá einnig fasteignamidstodin.is.
Tilvísunarnúmer. 10-204
Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi - Sími 550 3000