Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum
og stjórnarformaður Auðhumlu, stærsta
eiganda Mjólkursamsölunnar, segir að í
sjálfu sér komi úrskurður Sam keppnis-
eftirlitsins sér ekki á óvart þrátt fyrir að
málið sé allt fráleitt að sínu mati.
„Næsta skref af okkar hálfu er að borga
sektina og áfrýja síðan málinu til áfrýjun-
arnefndar samkeppnismála og til þess höfum
við, að mér skilst, mánuð. Áfrýjunarnefndin
áskilur sér síðan rétt til að kveða upp úrskurð
á sex til átta vikum ef ég man rétt. Við bindum
sterkar vonir við að úrskurður áfrýjunarnefndar
verði okkur í hag.
Mér er reyndar alveg óskiljanlegt hvernig
stendur á því að Samkeppniseftirlit hækkaði
sektina um 110 milljónir, eða úr 370 milljónir
í 480 milljónir. Hluti af þeirri niðurstöðu skilst
mér að felist í því að þeir telja að við höfum
leynt fyrir þeim gögnum sem er gersamlega
fráleitt að okkar mati. Það er og hefur alltaf
verið hagur MS að niðurstaða fengist í þessu
máli sem fyrst.“
Ólík túlkun á samspili búvöru- og
samkeppnislaga
„Úrskurður Samkeppniseftirlitsins snýst um
ólíka túlkun okkar og þeirra á samspili búvöru-
og samkeppnislaga. Við teljum okkur vera í
samstarfi við ákveðin fyrirtæki og að innan
þess samstarfs höfum við leyfi til að miðla
mjólk á öðru verði en til ótengdra aðila.
Samkeppniseftirlitið er á öðru máli og
túlkun þess er meira að segja farin að ganga
svo langt að þeir tala um að Mjólkursamsalan
selji sjálfri sér hrámjólk á undirverði.
Raunin er reyndar sú að MS kaupir alla
mjólk af bændum á fyrirfram ákveðnu verði
sem er ákveðið af verðlagsnefnd. Þeirri mjólk
er svo miðlað til framleiðslu á mismunandi
mjólkurvörum innan MS og samstarfsaðila
og gefa vörurnar mismikið af sér.
Ef eitthvað af hrámjólkinni fer út úr því
samstarfi ber hún verð sem einnig er ákveðið
af verðlagsnefnd.
Samkeppniseftirlitið vill ekki viðurkenna
þetta fyrirkomulag og hefur aldrei gert það,“
segir Egill. Samt hefur komið fram hjá þeim í
fyrri umsögnum að þeir líta á MS og KS sem
einn aðila á markaði.
Verðlagningu til þriðja aðila breytt
Egill segir að Mjólkursamsalan telji sig í einu
og öllu hafa starfað innan þess ramma sem
henni er markaður og að á því sé enginn vafi.
„Það hefur aldrei verið ætlun okkar að vinna
utan þess ramma.“
Verðlagsnefnd breytti verðlagningu
á hrámjólk til þriðja aðila eftir úrskurð
Samkeppniseftirlitsins 2014 en áður var bara
um eitt verð að ræða fyrir mjólk í lausu máli.
Grunnhyggin umræða
Egill segir að kostnaður við að safna mjólk
og birgðahald á henni sé töluverður. „MS er
skyldug til að taka við allri mjólk og alltaf en
kostnaðurinn við slíkt er töluverður. Satt best
að segja er umræðan í kringum þessi mál svo
grunnhyggin að maður á hreinlega erfitt með
að trúa því að hún eigi sér stað. Heyrst hafa
raddir sem vilja aðskilja mjólkursöfnun og
innvigtun frá vinnslunni en ég er ekki viss
um að það séu margir sem myndu vilja taka
söfnunina að sér eina og sér. Með því væri ekki
lengur skylda neinnar vinnslu að kaupa aðra
mjólk en hver hefði þörf fyrir hverju sinni.
Mjólk er viðkvæm vara sem verður að komast
í vinnslu innan ákveðins tíma og í dag ber
Mjólkursamsalan ábyrgð á því.“
60 milljóna króna tap á viðskiptunum við
Mjólku
Að sögn Egils hefur ekki oft komið fram að
Mjólkursamsalan tapaði rúmum 60 milljónum
á viðskiptum sínum við Mjólku 1, eða fyrirtæki
Ólafs Magnússonar.
„MS seldi honum hrámjólk á fimmtán
mánaða tímabili fyrir 210 milljónir og inni í
þeirri upphæð voru 17 milljónir sem var álagn-
ing okkar vegna flutnings, gæðaprófana og
annars kostnaðar af okkar hálfu. Á bænda-
verði hefði þessi mjólk kostað 193 milljónir.
Ólafur greiddi okkur aftur á móti einungis
150 milljónir þannig að MS varð af rúmum
60 milljónum í þeim viðskiptum.
Eftir á að hyggja tel ég að kúabændur megi
alveg skamma okkur í stjórn MS fyrir hvað við
vorum liðlegir við Ólaf og að lána honum ígildi
fjögurra mánaða viðskipta. Við gáfum honum
því í raun fjögurra mánaða úttekt. Við vildum
svo sannarlega að reksturinn gengi hjá honum
og tókum hann of trúanlegan um að reksturinn
myndi rétta úr kútnum. Sem ekki var raunin
og því sátum við uppi með tapið þrátt fyrir að
Ólafur þvertaki fyrir það.
Líklega hafa það verið mistök hjá okkur að
fara ekki með Mjólku 1 í gjaldþrotaskipti en
mat okkar á þeim tíma var svo að það væri ekk-
ert upp úr því að hafa,“ segir Egill Sigurðsson,
stjórnarformaður Auðhumlu.
/VH
Efst á baugi MÆLT AF
MUNNI FRAM
Þá er komið að framlagi Gunnarsstaðabóndans, Jóhannesar Sigfússonar sem hann flutti gestum
á hagyrðingakvöldi Karlakórs Eyjafjarðar
þann 23. apríl sl. í Laugaborg. Jói kom
hóflega vel undirbúinn til samkomunnar,
með afurðir sínar í lúinni stílabók en með
blýantsstubb til að fylla inn í óort efnis-
tök sem virtust öllu fleiri en færri. Birgir
spurði Jóhannes líkt og aðra við borðið,
hvernig honum litist á hagyrðingahóp-
inn, þrjá Suður-Þingeyinga, einn Norður-
Þingeying og svo Húnvetninginn Pétur frá
Höllustöðum?
Suður-þingeysk þrenning hér,
það er svipuð blanda
og þegar vatni ausið er
útí góðan landa.
Jóa var svo uppálagt að yrkja ítarlegar um
þessa þrjá S-Þingeyinga:
Þeir á sér hafa ofurtrú;
aðeins þó ég nefni
að margoft yrkir maður nú
um merkilegra efni.
Samanburður okkur á
í augu virðist stinga.
Það er ekki sjón að sjá
Suður-Þingeyinga.
Birgir spyr Jóhannes: „Hvað finnst þér
athyglisverðast þegar þú lítur í spegil?
Ef lít ég í spegil ég læt hann nú vera,
en langar þó mest til að brjót ´ann.
Mér finnst bara ekkert fyndið að gera
fallegan mann svona ljótan.
Fréttir bárust svo af tilraun fjármálaráð-
herra og konu hans til að kynna sér opin
hjónabönd á internetinu. „ Hvað finnst þér
Jóhannes um slíkt uppátæki?
Að ósekju Bjarni í brunninn datt
er brá hann sér upp af fletinu
og ætlaði að leggja skemmtanaskatt
á skyndikynni á netinu.
Til munu dæmi þess, einkum meðal ferða-
langa frá Austurlöndum fjær, að bílstjórar í
norðurljósaskoðunarferðum séu beðnir um
að stoppa augnablik meðan efnað væri í eitt
skáeygt eintak. Slíkur krógi væri líklegur
til að skara framúr á heimsvísu. Hvað telur
bóndi Jóhannes hæft í þessari bábilju?
Ýmislegt menn geta gert,
gerist mikill losti.
En það er ekki öfundsvert
í átján gráðu frosti.
Því næst spyr Birgir Jóhannes hvern
hann kysi helst sem næsta forseta að
Bessastöðum:
Pétur vin minn vil ég fá,
vel mun hann sig standa.
Og bændur gætu bruggað þá
Bessastaðalanda.
Hvort kysir þú heldur, að vera róni eða
gleðikona?
Að vera róni virðist mér
vera kostur betri.
Einkum þegar frítt ég fer
á fyllirí með Pétri.
Ert þú góður dansari Jóhannes?
Dável ég á feti fer
með fótaburð í lagi.
En í dansi aftur er
eins og naut í flagi.
Næst spyr Birgir Jóhannes: „Ef þú lentir í
því ævintýri að endurfæðast, og að fenginni
reynslu yrði þér leyft að kjósa þér starfs-
vettvang í nýju lífi, hvert myndi verða þitt
val og hvers vegna?“
Endurfæðing engin kvöl
yrði á nýjum brautum.
Ef að maður ætti völ
á öðrum sessunautum.
Úr hópi hagyrðinganna er svo Jóhannesi
falið að velja einn til að dæma í fegurðar-
samkeppninni Ungfrú Ísland:
Til þess Hjálmar fremst er fær,
fagurkeri mestur.
En verði líka að þukla þær
þá er Árni bestur.
158
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Úrskurður Samkeppniseftirlitsins á hendur MS:
Fráleitur málatilbúnaður
– segir stjórnarformaður Auðhumlu
Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum og
stjórnarformaður Auðhumlu. Mynd / HK
Þorsteinn B. Friðriksson sigraði axarkastið.
Myndir / TB
Unga fólkið naut leiðsagnar Valdórs Bóassonar við tálgun.
Skógarleikarnir haldnir í Heiðmörk:
Keppt í axarkasti og tálgað í tré
Það var góð stemning í Heiðmörk á
laugardaginn var þegar Skógræktarfélag
Reykjavíkur hélt Skógarleikana í annað
sinn. Um 400 manns mættu á svæðið og
nutu dagskrár og góða veðursins.
Nokkrir af færustu skógarhöggsmönnum
Suður- og Vesturlands öttu kappi í aflraunum
ýmiss konar, svo sem axarkasti, bolahöggi og
afkvistun trjábola. Valdór Bóasson, formað-
ur Félags trérennismiða á Íslandi, sá um að
leiðbeina við tálgun og var mikill áhugi unga
fólksins á hans starfi. Einar Gunnar Sigurðsson
eldsmiður kynnti sitt fallega handverk og smíð-
aði um 100 laufblöð sem hann gaf krökkunum.
Grillað var yfir varðeldi og gestir gátu smakk-
að hið rómaða ketilkaffi.
Að klifra í trjám er góð skemmtun en ekki alveg
hættulaus.
Kynslóðirnar skemmtu sér saman á Skógar-
leikunum.