Bændablaðið - 21.07.2016, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Fréttir
Uppsöfnuð þörf fyrir endurnýjun tækjabúnaðar segja vélasalar:
Sala á dráttarvélum eykst á ný
Innflutningur á nýjum dráttar-
vélum er að aukast ef bornar eru
saman innflutningstölur fyrstu
6 mánuði ársins 2015 og 2016. Í
fyrra voru fluttar inn 60 nýjar
dráttarvélar en fyrstu 6 mánuði
þessa árs eru þær 82 talsins. Til
viðbótar koma 11 dráttarvélar
sem fluttar voru inn notaðar á
tímabilinu, en þar er einnig um
aukningu að ræða á milli ára.
Alls voru 11.032 dráttarvélar
í umferð um síðustu áramót sam-
kvæmt yfirliti Samgöngustofu.
Sumar tegundir af stærri fjórhjólum
eru inni í þessari heildartölu sem
gerir samanburð erfiðan.
Valtra er söluhæsta dráttarvélin
það sem af er ári en á hæla hennar
kemur Massey Ferguson, Claas er
í þriðja sæti og New Holland í því
fjórða.
Hagstætt gengi ýtir undir sölu
Að sögn Viktors Karls Ævarssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Kraftvéla, hafa sölumenn
þeirra fundið fyrir miklum áhuga hjá
bændum í að endurnýja dráttarvélar,
heyvinnutæki og önnur landbúnað-
artæki.
„Markaðurinn er að stækka um
36% á milli ára en okkar aukning
er 63%, sem eru virkilega góðar
fréttir fyrir okkur. Aukningin er þó
ekki bara einskorðuð við dráttarvél-
ar heldur er áberandi mikil aukning
í sölu á heyvinnutækjum líka. Við
höfum aldrei selt jafn margar Fella
heyvinnuvélar á fyrstu 6 mánuðum
árs frá því að við tökum við umboð-
inu árið 2009,“ segir Viktor Karl og
þakkar það meðal annars lágu gengi
evrunnar. „Til dæmis bjóðum við nýja
107 hestafla New Holland dráttar-
vél með ámoksturstækjum á tæpar
8 milljónir án virðisaukaskatts. Stór
sending af þessum vélum er vænt-
anleg í lok september. Sjálfir erum
við að auka við okkur á milli ára í
innflutningi bæði í New Holland og
Case, þannig að við erum mjög sáttir
með þessa aukningu á markaðnum og
þá sérstaklega að við erum að auka
við markaðshlutdeild okkar á milli
ára,“ segir Viktor Karl.
Bændur halda að sér höndum
vegna óvissu um búvörusamninga
Hjá vélaumboðinu Þór fór dráttarvéla-
salan rólega af stað upp úr áramótum
en hefur verið að glæðast, að sögn
Odds Einarssonar framkvæmdastjóra.
„Sala á dráttarvélum fyrstu 6 mánuði
þessa árs hefur aukist um 43% miðað
við sama tímabil í fyrra. Það má segja
að dráttarvélasalan, sem hefur verið
í mikilli lægð frá 2009, sé aðeins að
taka við sér aftur,“ segir Oddur sem
þó telur þróunina vera langt í frá eðli-
lega endurnýjun. „Það er uppsöfnuð
endurnýjunarþörf á dráttarvélum sjö
ár aftur í tímann. Við reiknum með að
heildarsalan á dráttarvélum verði um
150–160 vélar í ár, en eðlileg árleg
endurnýjunarþörf er um 250 vélar á
ári.“ Oddur segir greinilegt að bændur
haldi að sér höndum þessa dagana
vegna óvissu um búvörusamningana.
„Þó tökum við eftir því að bændur eru
farnir að sækja aftur í betur búnar og
dýrari vélar. Vélar í stærðunum 110
og upp í 150 hö eru að seljast mest.
Að sama skapi hefur innflutningur á
notuðum stórum vélum dregist heldur
saman.“
Færri en stærri tæki
Oddur segist verða var við auk-
inn áhuga rúlluverktaka á vélum.
„Undanfarin ár hefur orðið vart við
töluverða endurnýjun í rúllusam-
stæðum og orðin meiri sala í þeim
en stökum rúlluvélum. Verktökum
í rúllun virðist fjölga og bændur á
minni búum virðast nýta sér þá þjón-
ustu frekar en að endurnýja rúlluvél-
ar sjálfir.“ Aðspurður um þróunina
fram undan segir Oddur það óhjá-
kvæmilegt að búum haldi áfram að
fækka en þau sem verða eftir stækki.
„Okkur sýnist að sambærileg þróun
í vélasölu sé líkleg, færri tæki seld,
en á móti stærri og betur búin. Við
horfum bjartsýnir fram á veginn
og ætlum okkur að halda áfram að
þjónusta íslenska bændur eins og við
höfum gert í rúm 50 ár,“ segir Oddur
Einarsson hjá Þór.
Stíga varlega til jarðar
Eyjólfur Pétur Pálmason hjá Vélfangi
segist finna fyrir aukningu en fyr-
irtækið stígi varlega til jarðar því
hann skynji óvissu hjá mörgum
bændum. „Ég finn aðeins fyrir því
að bændur eru hikandi vegna þess að
búvörusamningar eru ekki klárir. Þeir
virðast ekki alveg nógu öruggir með
það hvað framtíðin ber í skauti sér.
Við vélasalar höfum mikið samband
við bændur og erum með puttann
á púlsinum. Ég hef þá tilfinningu
að til dæmis minni kúabændur séu
að hugsa sinn gang með framhald
búskapar, meðal annars vegna reglu-
gerðarbreytinga sem kalla á viða-
miklar breytingar á húsakosti. Það
er óvissa hjá bændum og það hefur
áhrif á áætlanir um vélakaup.“
Hann segir vélasöluna hjá
Vélfangi hafa þróast ágætlega og
það sé nóg að gera. „Við vorum
að greina sölutölur frá 1. okt. 2015
til loka maí á þessu ári. Þar kemur
glögglega fram að vélar eru að
stækka en þó er það svo að 70%
af seldum vélum eru undir 139 hö.
Meginþorri þessara véla, eða 64%
þeirra eru á bilinu 100–139 hö. Það
má segja að dráttarvélamarkaðurinn
sé á þessu bili. Varðandi heyvinnu-
tækin og önnur tæki sjáum við aukn-
ingu í stærri vélum. Nýlega seldum
við til dæmis risasláttuvélasett með
færibandi sem setur múgann saman
og fyrstu fjögurra stjörnu múgavélina
sem við höfum flutt inn frá Claas.
Almennt finnst mér aðeins rólegra
yfir heyvinnutækjamarkaðnum en
áður. Menn eru aðeins að fresta
ákvörðunartökum þangað til að þeir
sjá hvernig rekstrarumhverfið verð-
ur,“ segir Eyjólfur Pétur hjá Vélfangi.
Fjölbreyttari tekjumöguleikar til
sveita skapa aukna bjartsýni
Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Jötunn Véla á Selfossi,
segir dráttarvélasölu hjá fyrirtækinu
umtalsvert meiri á þessu ári en því
síðasta. Í júní afhenti fyrirtækið 13
dráttarvélar sem er mesta sala drátt-
arvéla í einum mánuði síðustu 8 árin
á þeim bæ.
„Ég þakka söluaukninguna auk-
inni bjartsýni í þjóðfélaginu og líka
því að bændur eru búnir að bíða svo
lengi með að endurnýja vélar. Við
eigum von á áframhaldandi aukningu
á næsta ári. Það sem heldur helst aftur
af mönnum er óvissa vegna búvöru-
samninga. En að því gefnu að samn-
ingar klárist í haust er mjög bjart yfir
landbúnaðinum,“ segir Finnbogi.
Hann segir áberandi að fleiri bændur
virðist vera með verulegar aukatekjur
af ferðaþjónustu sem auki bjartsýni
og framkvæmdagetu. „Mér sýnist
til dæmis að á svæðinu frá Selfossi
og austur að Höfn sé fjöldi bænda
með tekjur vegna sérvinnslu mat-
væla, þjónustu ýmiss konar og ekki
síst vegna gistiþjónustu. Þetta er allt
árið um kring en ekki stuttar tarnir
yfir hásumarið eins og áður. Þetta
hjálpar allt til að efla landbúnaðinn,
atvinnulíf og lífið í sveitunum. Þetta
verður mögulega til þess að auðvelda
kynslóðaskipti því fjárfestingar í
þessum atvinnutækifærum eru oft á
tíðum ekki svo stórar. Aukatekjurnar
hjálpa til við uppbyggingu búanna,“
segir Finnbogi Magnússon. /TB
Breskt fyrirtæki, sem kallast
George Holland ltd., hefur áhuga
á samstarfi við íslenska garðyrkju-
menn um ræktun á grænmeti sem
selt yrði á markaði í Bretlandi.
Neeraj Rattu, talsmaður
fyrirtækisins, segir í samtali við
Bændablaðið að það hafi áhuga á
að kaupa eldpipar frá íslenskum
garðyrkjubændum.
Ávextir, grænmeti og fræ
Auk þess að selja og dreifa ávöxt-
um og grænmeti á Evrópumarkaði
framleiðir fyrirtækið lífrænan áburð,
vistvænt skordýra- og sveppaeitur
sem er notað í lífrænni ræktun víða
í Evrópu. Fyrirtækið selur einnig fræ
til landa í Afríku, Evrópu og Asíu.
Prufuverkefni
Rattu segist hafa mikinn áhuga á
samstarfi við íslenska garðyrkju-
bændur, bæði hvað varðar sam-
vinnu um ræktun og að kynna þeim
framleiðslu sína. „Okkur hjá George
Holland langar að prófa í samvinnu
við garðyrkjubændur á Íslandi að
rækta Habenero-eldpipar sem yrði
markaðssettur á Bretlandseyjum og
víðar í Evrópu. Ef sú tilraun tækist
vel er hægt að bæta fleiri tegundum
grænmetis við ræktunina.“
Að sögn
Rattu mun fyr-
irtækið útvega
fræ til rækt-
unarinnar og
æskilegt sé að
bændur notist
við vörur frá
þeim við hana.
Auk þess sem
fyrirtækið veitir
ráðgjöf við ræktun eldpiparsins sé
þess þörf.
20 tonn á mánuði
„Að sjálfsögðu fer áframhaldandi
ræktun eftir kostnaði og sé hann
viðunandi gæti framleiðslan verið
um 20 tonn á mánuði. Eftirspurn eftir
eldpipar er mikil á Bretlandseyjum
yfir vetrarmánuðina og æskilegt er að
ræktun hans geti hafist í september
á þessu ári.“
Fyrirtæki Rattu ræktar eld-
pipar í Afríku í dag en er að leita
að samstarfi við ræktendur nær
Bretlandseyjum og að ræktun með
jarðhita sé áhugaverður kostur.
Nánari upplýsingar er hægt að fá
hjá Neerja Rattu í gegnum netfangið
neeraj@george-holland.com og á
heimasíðunni www.george-holland.
com. /VH
Nýjungar í ræktun:
Vill kaupa eldpipar frá Íslandi
Byggðarráð Skagafjarðar hefur
skorað á menntamálaráðherra
að setja af stað vinnu við að
skoða allar mögulegar útfærslur
með það að markmiði að styrkja
Háskólann á Hólum sem sjálf-
stæða menntastofnun og tryggja til
framtíðar að yfirstjórn og umsjón
haldist í Skagafirði.
Byggðarráð segir í bókun að
Háskólinn á Hólum sé ein af grunn-
stoðum í skagfirsku samfélagi og
verði mikilvægi hans seint að fullu
metið. „Það að vera með öll skóla-
stig innan héraðs, frá leikskóla til
háskóla, gefur Skagafirði tækifæri
sem mikilvægt er að nýta til framfara
fyrir íbúa og atvinnulíf í Skagafirði,“
segir í bókun byggðarráðs.
Fylgja eftir jákvæðri umræðu
Þá segir að nú sé glæsilegu
Landsmóti hestamanna á Hólum
nýlokið og mun sú mikla og mikil-
væga uppbygging sem þar hefur átt
sér stað nýtast skólanum til sókn-
ar um ókomna tíð. „Mikilvægt er
fyrir okkur Skagfirðinga að fylgja
eftir þeirri jákvæðu umræðu sem
Hólar fengu í kjölfar Landsmóts
til að sækja fram fyrir skólann
enda er Háskólinn á Hólum æðsta
menntastofnun íslenska hestsins í
heiminum. Er það okkar að tryggja
að svo verði áfram.“
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar óskar formlega
eftir samstarfi við stjórnvöld og
Landssamband hestamannafélaga
um að Hólar í Hjaltadal verði gerðir
að þjóðarleikvangi íslenska hests-
ins. Sú umgjörð sem þar hefur verið
sköpuð er einstök á heimsvísu og öll
uppbygging í fortíð, nútíð og framtíð
mun nýtast Háskólanum á Hólum,
styrkja stöðu hans og festa enn frekar
í sessi.
Auka þarf rekstrarfé
Byggðarráð vill jafnframt ítreka að
tryggja þarf sjálfbærni í gæða- og
rekstrarmálum skólans. Auka þarf
rekstrarfé til skólans og tryggja
rekstrargrundvöll hans til framtíð-
ar. Taka þarf af uppsafnaðan halla
sem safnast hefur upp á undanförn-
um árum meðal annars vegna þess
að fjárframlög til skólans hafa ekki
verið í samræmi við rekstrarforsend-
ur og veita þar með skólanum and-
rými tl framþróunar.
/MÞÞ
Lilja Dögg Guðnadóttir og Halldór Arnar Árnason í Stóra-Dunhaga 2 í
Hörgárdal fengu nýlega þennan myndarlega New Holland T6.140 AC
ásamt Ålö ámoksturstækjum. Mynd / Kraftvélar
Bryndísar Eva Óskarsdóttir Háholti
og Már Óskar sonur hennar við
nýja glæsilega Massey Ferguson
7720 dráttarvél. Mynd / Jötunn Vélar
Ingás ehf. tók í vikunni við nýrri Deutz-Fahr 9340TTV sem er stærsta
Mynd / Þór
Breskt fyrirtæki vill fá íslenska bændur til að rækta „habanero“-eldpipar.
Mynd / 101habaneros.wordpress.com
Byggðarráð Skagafjarðar:
Hólar verði þjóðarleikvangur
íslenska hestsins
Nýi hringvöllurinn á Hólum sann-
aði ágæti sitt á Landsmóti.
Mynd / TB
-
lusamstæða í eigu bændanna á
Gautsstöðum á Svalbarðsströnd.
Mynd / Vélfang