Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Laxeldi á Austfjörðum:
Ströng lög gilda um
laxeldi og verndun
villtra laxa
Ice Fish Farm - Fiskeldi
Austfjarða hf. hefur sótt um leyfi
til að framleiða 43 þúsund tonn
af eldisfiski á Austfjörðum. Í dag
er fyrirtækið með eldi í Beru- og
Fáskrúðsfirði en hyggst einnig
setja upp eldiskvíar í Seyðisfirði,
Stöðvarfirði og Norðfjarðarflóa.
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
lýstu Jón Helgi Björnsson, formað-
ur Landssambands veiðifélaga, og
Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum
áhyggjum sínum vegna áformanna
og sögðu þau meðal annars óaftur-
kræfa ógn við íslenska laxastofninn
og aðför að íslenskri náttúru.
Höskuldur Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva, og Guðmundur
Gíslason, stjórnarformaður Ice
Fish Farm – Fiskeldis Austfjarða
hf., hafa brugðist við ummælum
Jóns Helga og Gunnlaugs.
Sjókvíaeldið ógnar ekki lífríki á
stórum svæðum
Höskuldur segir að í umfjöllun-
inni sé talað um „aðför að náttúru
Íslands“ og hann spyr hvað sé átt við
með því og hvort einhver dæmi finn-
ist um að sjókvíaeldi sé slík aðför?
„Ég vil minna á að samkvæmt
lögum frá 2002 og þeim reglugerð-
um sem á þeim byggja er gengið
mjög langt varðandi lokanir svæða
til verndunar villtra laxastofna. Það
er því deginum ljósara að nær 30 ára
gamalt samkomulag sem minnst er
á í umfjölluninni hefur ekkert vægi
í ljósi hinnar ströngu löggjafar sem
síðar hefur verið innleidd.
Ég tel því að sú fullyrðing að
sjókvíaeldið ógni lífríki á stóru
svæði sé algerlega órökstudd og í
raun makalaus.“
Staðsetningar hvíldar í 6 til 9
mánuði eftir slátrun
„Landssamband veiðifélaga líkir
lífrænum úrgangi laxeldisstöðvar
við „skólpfrárennsli frá 150 þús-
und manna borg“. Það er ljóst að
lífrænn úrgangur kemur frá öllum
lífverum og það er þekkt að í kring-
um eldisstöðvar verða merkjanleg
áhrif á botndýralíf, á meðan eldið er
í gangi. Að líkja því við skólpi frá
stórborg er augljóslega útúrsnúning-
ur og hér virðist tilgangurinn vera
látinn helga meðalið og jaðrar við
atvinnuróg.
Hins vegar er það svo að nútíma
sjókvíaeldi, eins og það sem stundað
er á Íslandi, fer fram eftir svoköll-
uðu kynslóðaskiptu eldismódeli þar
sem staðsetningar eru hvíldar í 6
til 9 mánuði eftir að slátrun lýkur.
Eftirlit með áhrifum á eldissvæð-
in er í höndum svæðisbundinna
undirstofnana umhverfisráðuneyt-
isins, auk þess sem fyrirtækin sjálf
fylgjast afar vel með þessu, enda
ekki hægt að byggja upp sjókvía-
eldi á svæðum sem ekki bera það.
Einmitt þess vegna framkvæmir
Hafrannsóknastofnunin svokallað
burðarþolsmat fjarða til að sann-
reyna að lífríki fjarðarins verði ekki
fyrir varanlegum umhverfisáhrif-
um. Þetta er ein af meginforsendum
umhverfismats. Hið opinbera geng-
ur því býsna langt í þessu og allt tal
um skólp og mengun er hártogun,“
segir Höskuldur.
Orð lögð í munn Norðmanna
Höskuldur segir að Jón Helgi haldi
því fram að reynsla Norðmanna
af laxeldi sé ekki góð og talar um
skelfilegar afleiðingar þess í Noregi.
„Ég er ekki viss um að
Norðmennirnir sjálfir séu sammála
Jóni. Laxeldið í Noregi skilaði
50 milljörðum norskra króna í
útflutningstekjur árið 2015 og vó
atvinnugreinin ein og sér gríðarlegt
þungt fyrir norskt þjóðarbú þegar
áföll dundu yfir olíugeirann þar í
landi. Árið 2013 voru 10.000 bein
ársstörf í norsku laxeldi og 23.600
afleidd störf tengd við greinina.
Villtir laxastofnar í Noregi standa
ágætlega á flestum svæðum þrátt
fyrir að framleidd hafi verið yfir
milljón tonn á ári í norsku laxeldi
undanfarin ár. Þau svæði sem sýna
hnignun eða neikvæð áhrif vegna
erfðablöndunar eru fá og bundin við
eldissvæði þar sem ítrekað hafa orðið
stór óhöpp. Megináhrifaþátturinn þar
er þó oftast ekki laxeldið heldur áhrif
vatnsaflsvirkjana á vatnakerfin.“
Eldisstarfsemi laxveiðimanna
Höskuldur segir að veiðifélög á
Íslandi séu með eldisstöðvar þar
sem þau ala lax og sleppa í árnar
og blanda þar seman villtum laxi
við lax úr eldisstöðvum. „Þetta er
eitthvað sem Norðmenn eru nánast
hættir að framkvæma nema með
mjög sterkum undanþágum. Þeir
hafa réttilega dregið verulega úr
seiðasleppingum í nafni fiskiræktar
úr seiðastöðvum í sínar laxveiðiár
undanfarin misseri, enda séu slík
vinnubrögð umdeilanleg enda um
beint inngrip í lífríki vatnasvæðanna
að ræða,“ segir hann.
„Að sjálfsögðu hefur þessi
gríðarmikla slepping á seiðum úr
eldisstöðvum, þrátt fyrir að um sama
stofn og í viðkomandi á sé að ræða,
bein áhrif á vistkerfið og viðgang
villtra stofna og eitthvað sem menn
ættu að fara að hugleiða á Íslandi,
í stað þess að drýgja veiðileyfin
með því að sleppa veiddum laxi
og stunda þannig misþyrmingu á
skepnunum í nafni sportmennsku.
Það má spyrja sig, hvort hafa þessir
menn meiri áhuga á villta laxinum
eða veiðileyfasölunni? “
Vegna orða Jóns Helga um að
fiskeldisfyrirtækin beri enga ábyrgð
og sæti litlu sem engu eftirliti, segir
Höskuldur að það sé einfaldlega
rangt hjá Jóni. „Fiskeldisfyrirtækin
greiða tugi milljóna í umhverfissjóð
sjókvíaeldis sem er ætlaður til
rannsókna og hreinsunar vatnasvæða,
komi til óhappa. Þá er útgáfa leyfa til
sjókvíaeldis bundin því skilyrði að
viðkomandi rekstraraðili hafi keypt
tryggingar til að mæta kostnaði við
hreinsun eldissvæðisins.
Höskuldur bendir að lokum á að
á árinu 2015 var 8.300 tonnum af
eldisfiski slátrað á Íslandi og á bilinu
400 til 500 manns starfa nú beint við
greinina. „Þar með er fiskeldið orðið
jafnstórt kjúklingaræktinni og nálgast
sauðfjárræktina. Reyndar lítur svo út
að eldið fari fram úr báðum greinum
á þessu ári og ef fram fer sem horfir
þá verði framleiðsla úr fiskeldi orðin
meiri en úr hefðbundnum landbúnaði
innan örfárra ára. Það væri því
skynsamlegt fyrir andstæðinga
fiskeldis að fara nú að huga að því
hvernig þeir geti starfað með eldinu
og haft jákvæð áhrif á regluverk þess
og umgjörð, í stað þess að halda að
þeir geti komið í veg fyrir það með
óhróðri og rangfærslum.“
Stofninn alinn á Suðurnesjum
G u ð m u n d u r G í s l a s o n ,
stjórnarformaður Ice Fish Farm
– Fiskeldis Austfjarða hf., segir
að sumt af því sem Gunnlaugur
Stefánsson segi í grein sinni „Aðför
að íslenskri náttúru og við sofum
værum blundi“ sé greinilega lesið upp
úr sama áróðursgagni og formaður
Landssambands veiðifélaga notar og
því óþarfi að svara því tvisvar.
Gunnlaugur talar ranglega um
„kynbreyttan norskan lax“ þegar
hann talar um eldisfiskinn sem
notaður er við Ísland. „Hið sanna
er að laxastofninn sem um ræðir
er svonefndur Saga stofn sem
Stofnfiskur hefur alið í yfir tvo
áratugi á Suðurnesjum. Hann er ekki
kynbreyttur heldur kynbættur. Bóndi
sem er hokinn af reynslu eins og
Gunnlaugur þekkir vel muninn þar
á enda eru öll eldisdýr, þar með taldar
skepnurnar í Breiðdalnum, meira og
minna kynbætt. Ekki kynbreytt.“
Villandi tölur
„Gunnlaugur segir einn lax sleppa
fyrir hvert tonn sem framleitt er.
Ekki veit ég hvaðan hann hefur sínar
upplýsingar um þetta en ef þær eru
sannar þá hefðu um það bil 25.000
laxar sloppið á Íslandi frá árinu 2000.
Staðreyndin er að þeir eru í kringum
3.000.
Ólíku saman að jafna
Norðmenn innleiddu ekki fullkomna
búnaðarstaðla fyrir sitt sjókvíaeldi
fyrr en árið 2006 en það hafa
Íslendingar nú þegar gert, áður en
að magnaukningin kemur inn. Því
er óábyrgt að nota sleppingarviðmið
frá Noregi langt aftur í tímann og
heimfæra á Ísland. Auk þess verður
að hafa í huga að þó svo að öll áform
um uppbyggingu laxeldis við Ísland
gangi eftir og verði farsæl þá höfum
við einfaldlega ekki svæðin til að
verða það stór að dómsdagsspádómar
um ítrekaðar og stórfelldar sleppingar
á eldislaxi séu raunhæfir.“
Hvað verður um úrganginn?
Guðmundur, stjórnarformaður Ice
Fish Farm – Fiskeldis Austfjarða
hf., heldur áfram en Gunnlaugur í
Heydölum fullyrðir að engum öðrum
sé heimilt að demba út í náttúruna
nánast öllum úrgangi frá starfsemi
sinni. „Ég spyr bara; hvar skítur villti
laxinn og þessar milljónir seiða sem
menn ala í seiðastöðvum á Íslandi og
sleppa svo óheft út í vatnakerfin til
að keppa um ætið við raunverulega
villta laxinn, í nafni fiskræktar?
Og beljurnar í Breiðdalnum? Hvar
skíta þær? Allt er þetta nú hluti af
hringrás náttúrunnar, skíturinn úr
eldisfisknum er næring fyrir botndýr
sem aftur næra fiskinn í sjónum og
smábátasjómönnum leiðist ekki að
veiða í námunda við þær. Við borðum
svo afla þeirra sem og laxinn og hvert
fer úrgangurinn úr okkur aftur? Jú,
í sjóinn.“
Margvíslegir þættir hafa áhrif á
viðgang villtra laxastofna
Gunnlaugur Stefánsson fullyrðir að
nú þegar séu „allt að 100 laxveiðiár í
Noregi ónýtar vegna laxeldi“. „Þetta
er algerlega órökstutt, það finnast
engar rannsóknir sem geta staðfest
slíkt. Margvíslegir þættir hafa áhrif
á viðgang villtra laxastofna og það
er ekki hægt að setja samansemmerki
þarna á milli án þess að taka tillit
til annarra þátta. Vera má að þar
sem orðið hafa ítrekaðar stórfelldar
slysasleppingar megi finna
meðvirkandi áhrif frá þeim en að
fullyrða svona er fráleitt og dæmir
sig sjálft.
Einnig er fullyrt að eftirliti sé
verulega ábótavant og að það sé í raun
nánast ekki neitt. Þetta er öldungis
ósatt, ef greinarhöfundur hefði kynnti
sér málið áður en hann tjáði sig um
það þá myndi hann vita betur. MAST,
Fiskistofa, Hafró, Umhverfisstofnun
og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna
koma öll að eftirliti með starfsemi
sjókvíaeldis á Íslandi. Þá ber
fyrirtækjunum sjálfum að kaupa
þjónustu dýralækna til að annast
velferð síns bústofns.“
Að lokum bendir Guðmundur
Gíslason, stjórnarformaður Ice Fish
Farm – Fiskeldis Austfjarða hf., á
að laxveiðibændur virðist vera að
upplifa hvert metárið á eftir öðru í
laxveiðinni. „Þetta gerist samhliða
vexti og viðgangi laxeldis á Íslandi
og enn sem komið er er ekkert sem
bendir til neikvæðra áhrifa á hvorn
veginn sem er. Báðar atvinnugreinar
skapa mörg störf og umsvif og geta
hæglega búið í sátt og samlyndi en til
að svo verði þá þurfa báðar greinar
að virða hvor aðra. “ /VH
Fréttir
Fín netaveiði í Ölfusá
„Við kvörtum ekki, veiðin hefur
verið mjög fín í sumar, fallegir
fiskar, oft 8 til 12 pund, stundum
stærri og stundum minni,“ segir
Stefán Ármann Þórðarson, einn af
þeim sem leggur netin og tekur þau
upp í Ölfusá á vegum Selfossbænda
sem hafa veiðirétt í ánni. Eitt netið
er alveg við Ölfusárbrú og hitt er
fyrir neðan Selfosskirkjugarð. Á
myndinni er Stefán með nokkra
fiska sem komu upp úr einu netinu
nýlega.
/MHH
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Höskuldur Steinarsson, fram-
kvæmda stjóri Landssambands
-
Myndir / Ice Fish Farm