Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Hótel Selfoss er stærsta
hótel landsbyggðarinnar
með 139 herbergi
Í janúar 2016 var hafist handa við
að byggja eina hæð ofan á Hótel
Selfoss og innrétta 12 herbergi í
tveimur efstu hæðunum yfir menn-
ingarsalnum. Því verki er nú lokið
og er hótelið þar með stærsta hót-
elið á landsbyggðinni með 139 her-
bergi, þar af eru 40 ný herbergi.
Öll nýju herbergin eru vel útbúin
og fallega innréttuð svo að gest-
um líði sem best. Á hótelinu eru 10
herbergi hönnuð sérstaklega fyrir
fólk í hjólastól. Þá er mikið lagt
upp úr umhverfissjónarmiðum á
hótelinu þar sem allt sem fellur
til er flokkað og vörur eru fluttar
stuttar vegalengdir.
Upplifun númer 1, 2 og 3
„Okkar aðaláhersla er að uppfylla
þarfir gesta okkar með hugguleg-
um aðbúnaði í einstakri náttúru.
Upplifunin er það sem gestir okkar
eru að leitast eftir og leggjum við
okkur fram við að uppfylla þær óskir.
Með nýju herbergjunum var allt lagt
upp úr þægindum og passað að þau
væru sem huggulegust innréttuð.
Á veggjunum eru myndir teknar af
Ragnari Axelssyni, Rax, þar sem hin
stórbrotna náttúra Suðurlands nýtur
sín,“ segir Nína M. Pálmadóttir
markaðsstjóri. Alls 110 starfsmenn
vinna á hótelinu sem er fullbókað
meira og minna í allt sumar og langt
fram á haustið.
/ MHH
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
Bordýpt 15 sm
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta -
Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Beinn innflutningur til Akureyrar
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 201
Handverkfæri
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Fjórða hæðin var byggð ofan á Hótel Selfoss í vetur en JÁVERK á Selfossi
sá um verkið sem tók ekki nema sex mánuði. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Nína M. Pálmadóttir, markaðsstjóri
Hótels Selfoss.
Sigrún Hrefna Arnardóttir kjólaklæðskeri sá um að hanna nýju herbergin,
starfsmönnum hótelsins.