Bændablaðið - 21.07.2016, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Birna og Agnar Þór á Garðshorni á Þelamörk fylgja hjartanu í hrossarækt:
Ævintýralegur árangur
hjá ungu ræktunarbúi
Birna Tryggvadóttir Thorlacius
og Agnar Þór Magnússon í
Garðshorni á Þelamörk standa
að baki áhugaverðri verðlauna-
hrossarækt. Stóðhestur úr þeirra
ræktun stóð uppi sem sigurvegari
í yngsta flokki á Landsmóti hesta-
manna, en þetta er ekki í fyrsta
sinn sem ræktun þeirra vekur
athygli fyrir frambærileg ung
hross.
Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk
stóð efstur í flokki 4 vetra stóðhesta á
Landsmóti hestamanna. Sirkus mun
vera næsthæst dæmdi 4 vetra hestur
fyrir hæfileika í heiminum en hann
hlaut 8,71 fyrir kosti þar af einkunn-
ina 9,5 fyrir vilja og geðslag. Hann
hlaut 8,17 fyrir byggingu og í aðal-
einkunn 8,49. Birna Tryggvadóttir
Thorlacius og Agnar Þór Magnússon
ræktuðu stóðhestinn. Þau kenndu
ræktun sína áður við Lambanes í
Dalasýslu en í dag kenna þau öll sín
hross við Garðshorn á Þelamörk þar
sem þau búa.
Birna og Agnar Þór hafa bæði
áratuga reynslu af hestamennsku
og búa því að gagnlegri reynslu og
þekkingu sem hefur fleytt þeim í
fremstu röð hrossaræktenda landsins.
Ræktunarbú þeirra hefur í tvígang
verið tilnefnt sem ræktunarbú ársins
og hlutu þann titil árið 2014. Ræktun
þeirra hefur ekki síst vakið athygli
fyrir framgangi ungra hrossa á kyn-
bótabrautinni, en sem dæmi komu
sex hross úr þeirra ræktun til dóms
í vor, fimm þeirra fjögurra vetra og
ein fimm vetra gömul. Hlutu fimm
þessara ungu hrossa fyrstu einkunn,
þar af voru fjögur þeirra einungis 4.
vetra gömul. Þá eru ekki nema þrjú
ár síðan annar stóðhestur úr þeirra
ræktun, Hersir frá Lambanesi, hlaut
hæstu einkunn 4 vetra hesta eftir
kynbótaárið 2013.
Ótamin stofnhryssa
Góður árangur í hrossarækt grund-
vallast af góðum ræktunarhryssum.
Agnar og Birna byggja ræktun sína
að mörgu leyti á einni hryssu, Sveiflu
frá Lambanesi. Agnar fékk Sveiflu til
eignar þegar hann var aðeins tvítug-
ur, og var hryssan aldrei tamin því
hún hafði týnst í nokkur ár. Agnar
hafði þó trú á getu hryssunnar þar
sem hún fór um á skrefmiklum
gangi með miklum fótaburði að hans
sögn. Hann hefur þar veðjað á rétta
hryssu því Sveifla gaf samtals fjórt-
án afkvæmi, níu þeirra hafa komið
til kynbótadóms og hafa sjö þeirra
hlotið fyrstu verðlaun. Nokkrar dætur
Sveiflu bera hróður hennar áfram í
ræktunarhópi Garðshorns á Þelamörk
og er landsmótssigurvegarinn Sirkus
næstsíðasta afkvæmi þessarar gömlu
stofnhryssu.
Gleði að rækta góð hross
Það sem vekur einnig eftirtekt þegar
litið er á ræktun þeirra Agnars og
Birnu er pörun og val á stóðhestum.
Þar má segja að þau treysti á inn-
sæi og þekkingu. „Við veljum það
sem höfðar sérstaklega til okkar og
fylgjum hjartanu. Maður nær ekki
árangri í ræktun ef maður fylgir bara
tískustraumum. Við höfum tamið
allar ræktunarhryssurnar og sýnt að
undanskilinni Sveiflu og þekkjum
þær því mjög vel sem skiptir miklu
máli við val á stóðhestum,“ segir
Agnar Þór.
Sem dæmi um þetta er þegar þau
völdu þónokkuð óþekktan stóð-
hest, Fáfni frá Hvolsvelli, fyrir allar
hryssur sínar eitt árið. Birna hafði séð
hestinn á kynbótasýningu og hrif-
ist mikið af honum. „Hann virkaði
á mig eins og geðgóður gæðingur
með eðlisfótaburð. Hann hlaut háan
byggingar- og hæfileikadóm, til
dæmis 9 fyrir háls, tölt, brokk, vilja
og geð og fegurð í reið, auk þess að
hafa áhugaverðar ættir á bakvið sig.
Hann hafði skemmtilega útgeislun og
var skrefmikill. Hann hafði þá þætti
sem við höfum verið að leitast eftir
í okkar ræktun.“
Fáfnir var lítið notaður hér á
landi og var seldur til Þýskalands
árið 2012. Hann skilur þó eftir sig
góðan fulltrúa, þökk sé framsýni
ungu ræktendanna því undan honum
er Sirkus. Auk þess eignuðust Birna
og Agnar fjögur önnur áhugaverð
hross undan honum. „Gleðin við
þennan árangur er í raun að hafa valið
það sem við vildum sjálf. Það skiptir
máli að hafa persónulega gaman af
hrossunum sem notuð eru til undan-
eldis og leitast eftir að rækta það sem
maður heldur að muni veita manni
ánægju,“ segir Birna.
Innt eftir hve lykillinn sé að
góðum árangri svo ungra hrossa
segja Agnar Þór og Birna að fóðrun
við uppeldi hrossa skipta sköpum
þegar kemur að undirbúningi fyrir
tamningu og þjálfun „Það þarf að
passa vel upp á hrossin í uppvextin-
um, sérstaklega stóðhestana, fóðra
þau vel svo vöðvalagið byggist rétt
upp,“ segir Agnar Þór. Þau nefndu
jafnframt að góð ástundun, vanda-
söm uppbygging og þjálfun hross-
anna skipta miklu máli. Að hrossin
séu andlega og líkamlega vel upp-
byggð þannig að þau séu undir það
búin að sýna það sem í þeim býr
þegar til dóms er mætt.
Geðslagsgull
Agnar Þór og Birna lýsa Sirkusi sem
einstökum karakter. „Geðslagið og
hreyfieðlið er frábært, það er mikil
mýkt í skrokknum. Hann kemur mér
alltaf á óvart þegar ég sest á hann,“
segir Agnar Þór og nefnir sem dæmi
jafnaðargeðið sem hann sýndi í
verðlaunaveitingu Landsmótsins.
„Þar kemur hann inn á völlinn sem
var umvafinn klappandi fólki og
myndavélum um allt. En hann var
bara sultuslakur allan tímann. Hann
er alltaf svo þægur og fús.“
Birna segir þau hafi fundið það
strax í frumtamningu að Sirkus
væri efni í gæðing. „Sirkus hefur
frá upphafi verið mjög áhugaverð-
ur hestur, næmur, fljótur að læra og
skemmtilegur karakter. Hann er með
sterkar gangtegundir, hefur til dæmis
skemmtilegt fjaðurmagnað brokk,
mikið stinnt og öruggt og styrkurinn
er mikil. Hann hefur frá upphafi verið
mjög gefandi hestur að vinna með og
erum við mjög ánægð með hve vel
hefur tekist að sameina marga eftir-
sóknarverða gæðingskosti í einum
grip.“
Framför í hrossarækt hafa meðal
annað skilað sér í bættu lundarfari
hrossa. Agnar og Birna leggja mikið
upp úr ræktun geðgóðra hrossa og
hlaut Sirkus m.a. 9,5 fyrir vilja og
geðslag. En hvað er gott geðslag?
„Algjört spennuleysi og jákvæðni.
Sirkus er þannig að ef þú ferð í reiðtúr
og ætlar að vera rólegur, þá er hann
slakur. Ef maður biður um meira, þá
gefur hann meira, en slakar svo vel
eftir á. Viljinn er þannig akkúrat eins
og maðurinn sem situr á honum vill
hafa hann,“ segir Agnar Þór.
„Gott geðslag lýsir sér í hesti sem
hugnast knapanum og sýnir ekki
mótþróa, en er þvert á móti kátur og
samstarfsfús. Í tilfelli Sirkusar þá
hefur aldrei þurft að þvinga hann,
heldur hefur þjálfun hans snúist um
að laða fram kostina og styrkja hann
á jákvæðan hátt, með því að byggja
upp styrk og þol og hjálpa honum
með jafnvægið,“ segir Birna.
Hestafjölskyldan sameinast
Landsmót eru annasöm hátíð hjá
hestaeigendum og knöpum en Agnar
segir að góð aðstaða og skipulag á
Hólum hafi gert þátttökuna afar
ánægjulega. „Það hefur verið rosa-
lega gaman að taka þátt og vera með í
að skapa þessa heild. Það hefur verið
sérstaklega gott þar sem aðstaðan hér
er til fyrirmyndar bæði fyrir hesta
og þátttakendur. Nálægðin við fólk-
ið er skemmtileg, hesthúsin eru í
göngufjarlægð og maður getur því
auðveldlega labbað á milli, horft á
dagskrána milli sýninga, slakað á og
hitt fólk,“ segir Agnar Þór.
Birna nefnir einnig góðan aðbún-
að í hesthúsinu á Hólum, en þar voru
saman komin tæp 200 þátttökuhross
og því var ávallt mikið um að vera frá
morgni til kvölds. „Eitt það skemmti-
legasta við þetta mót er sú stemning
sem hefur myndast í hesthúsinu.
Þar er frábært að vera og spjalla við
kollegana milli sýninga í stað þess að
vera á víð og dreif,“ segir Birna og
Agnar Þór tekur í sama streng. „Þar
sameinaðist hestafjölskyldan.“
Í huga þeirra eru Hólar í Hjaltadal
því komin til að vera landsmótsstað-
ur. „Þetta er besti staðurinn sem við
höfum verið á. Hér höfum við ekki
þurft að standa í neinum flutningum
á hestum til og frá mótsstað. Ég finn
það á hestunum að andleg streita er
engin. Stanslaus akstur milli staða
og það að vera í kerru getur skapað
spennu. Því er þetta ekki síst góður
staður út frá velferðarsjónarmiðum,“
segir Agnar Þór.
Þau segjast jafnframt greina sýni-
leg framför í gæðum tamningar og
þjálfunar á hrossum. „Þá má sjá bætta
reiðmennsku knapanna sem ég tel
stóran þátt í framförunum. Knaparnir
eru farnir að hugsa um sig sjálfa sem
íþróttamenn, ekki síður en hestana,“
segir Birna. Þessum hugsunarhætti
hefur fleytt fram á undanförnum
árum. „Maður kemst bara hálfa leið
á því að hafa hrossin í toppþjálfun.
Það er jafnmikið atriði að knapinn sé
í góðu líkamlegu ástandi svo hann
hafi jafnvægi á móti hestinum. Þetta
er sérstaklega mikilvægt hjá ungum
hrossum,“ bætir Agnar Þór við.
Sirkus falur
Hrossaræktendurnir hafa enga
ákvörðun tekið um framtíð Sirkusar.
„Við höfum trú á að hann eigi eftir að
geta reynst vel sem kynbótahestur og
sé efni í mjög frambærilegan keppn-
ishest til að mynda. Þar sem við vinn-
um við að rækta hross, temja og selja
hross þá erum við opin fyrir að selja
hann,“ segja þau.
Sjálf ætluðu þau að fagna
árangrinum í langþráðri utanlands-
ferð með börnum sínum. „Við erum
ekki búin að meðtaka árangurinn
fyrir þetta litla ræktunarbú okkar. Við
erum hins vegar ákaflega stolt og í
raun hrærð. Það er ótrúlegt hvernig
þetta hefur spilast út hjá okkur, “ segir
Agnar Þór.
Agnar Þór og Birna, hrossaræktendur á Garðshorni á Þelamörk, ásamt nokkrum fulltrúum ræktunar sinnar á Landsmótinu á Hólum. Agnar Þór heldur í
Garún og Sirkus, hæst dæmda 4 vetra stóðhest Landsmótsins. Birna heldur í Hersi og Laxnes frá Lambanesi. Báðir byrjuðu þeir feril sinn vel á kynbóta-
Myndir / GHP
mjög ánægð með hve vel hefur tekist að sameina marga eftirsóknarverða
gæðingskosti í einum grip,“ segir Birna um stóðhestinn Sirkus sem hlaut
meðal annars einkunnina 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9 fyrir tölt.