Bændablaðið - 21.07.2016, Page 19

Bændablaðið - 21.07.2016, Page 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016 Á sumrin taka skilningarvitin við sér. Fuglasöngur ómar, gras grænkar og ljúfur sumarilmur boðar komu þessarar notalegu árstíðar. Samspil landbúnaðar og ferðaþjónustu skapar verðmæti sem aldrei fyrr og hafa þessar atvinnugreinar mjög jákvæð áhrif hvor á aðra. Í tilefni þess hafa ferðaþjónustan og landbúnaðurinn tekið höndum saman og sett af stað leik sem fagnar sumarilminum í sínum ólíku myndum. Festu þína sumarstemmningu á mynd sem sýnir samspil landbúnaðar og ferðamennsku og merktu hana með #sumarilmur á Instagram. Myndirnar birtast á sumarilmur.is og í hverri viku verður sú mynd valin sem best þykir sýna anda sumarsins, íslensku sveitirnar og ferðalög innanlands. Sá sem á mynd vikunnar fær glæsileg verðlaun en á meðal vinninga eru gisting og afþreying innanlands og alls kyns upplifun tengd mat og öðru sumarlegu. Heildarandvirði verðlaunanna er hátt í 3 milljónir svo það er til mikils að vinna. Vinningshafar verða kynntir á Rás 2 og þeir fengnir til að segja frá sögunni á bakvið myndina. #sumarilmursumarilmur.is Fangaðu sumarilminn

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.