Bændablaðið - 21.07.2016, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
volundarhus.is · Sími 864-2400
VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
www.volundarhus.is
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9m² -án gólfs
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m²
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
Ferðamenn á Íslandi:
Tæplega 700.000
ferðamenn frá
áramótum
Um 186 þúsund erlendir ferða-
menn fóru frá landinu í júní síð-
astliðnum samkvæmt talningum
Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar eða nærri 50 þúsund
fleiri en í júní í fyrra. Þá hafa
brottfarir Íslendinga aldrei mælst
jafn margar í einum mánuði.
Erlendum ferðamönnum held-
ur því áfram að fjölga. Aukningin
nemur 36,8% á milli ára í júní og
frá áramótum nemur hún 35,8%. Nú
hafa tæplega 700 þúsund erlendir
ferðamenn komið frá áramótum, 183
þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra.
Fjórar þjóðir áberandi
Í fréttatilkynningu frá Ferðamálastofu
segir að rúmur helmingur ferða-
manna í nýliðnum júní voru af fjór-
um þjóðernum. Bandaríkjamenn
voru langfjölmennastir eða tæp
30% af heildarfjölda. Næstir komu
Þjóðverjar (9,3%), þar á eftir fylgdu
Bretar (8,7% og Kanadamenn
(7,0%).
Af einstaka þjóðernum
fjölgaði Bandaríkjamönnum,
Kanadamönnum, Bretum,
Þjóðverjum, Svíum og Frökkum
mest á milli ára. Þessar sex þjóðir
báru uppi aukninguna í júní að miklu
leyti. Af þeim var hlutfallsleg fjölg-
un mest frá Kanada en ferðamanna-
fjöldinn þaðan ríflega tvöfaldaðist
í júní.
Mikil fjölgun Bandaríkjamanna
Þegar litið er til fjölda ferðamanna í
nýliðnum júní má sjá verulega fjölg-
un frá árinu 2010. Mest áberandi er
fjölgun Bandaríkjamanna, úr 9 rúm-
lega í 69 þúsund. Þá hefur Mið- og
Suður-Evrópubúum fjölgað úr um
17 þúsund í 40 þúsund á sama tíma.
Fjöldi Breta hefur nærri þrefaldast.
Heldur minni aukning hefur verið
frá Norðurlöndunum en þó tæp 50%.
Hlutfall N-Ameríkana hækkar en
Norðurlandabúa lækkar
Samsetning ferðamanna eftir mark-
aðssvæðum hefur breyst töluvert frá
árinu 2010. Í júní síðastliðnum voru
Norðurlandabúar um 10,5% ferða-
manna en hlutfall þeirra af heild
hefur lækkað verulega síðustu ár,
hefur farið úr 24% ferðamanna árið
2010. Hlutdeild N-Ameríkana hefur
hins vegar farið vaxandi, var 17,2%
af heild árið 2010 en var komin í
36,8% í ár. Hlutdeild annarra mark-
aðssvæða hefur verið á líku róli á
tímabilinu 2010 til 2016.
Ferðir Íslendinga utan
Um 67 þúsund Íslendingar fóru utan
í júní síðastliðnum eða 19.300 fleiri
en árið 2015. Um er að ræða 40,4%
fleiri brottfarir en í júní 2015. Hafa
brottfarir Íslendinga aldrei mælst
fleiri í einum mánuði frá því að
talningar Ferðamálastofu hófust en
fyrra met var 54.800 í júní árið 2007.
Ekki er ólíklegt að Evrópumótið í
knattspyrnu hafi hér talsverð áhrif
en í því sambandi er vert að slá þann
varnagla að hugsanlega er óvenju
algengt að um fleiri en eina brottför
sé að ræða hjá sömu einstaklingum.
Slíkt er þó ekki hægt að segja fyrir
um með neinni vissu.
Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Kanadamönnum, Bretum,
Þjóðverjum, Svíum og Frökkum mest á milli ára.
Má tjalda hvar sem er?
Bannað að hafa nætur-
gistingu utan tjaldstæða
án leyfis landeigenda
Umhverfistofnun hefur gefið
út leiðbeiningar fyrir ferðafólk
um hvar má og má ekki tjalda.
Samkvæmt lögum er bannað að
tjalda utan tjaldstæða án leyfis
landeigenda.
Guðfinnur Sigurvinsson, upp-
lýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar,
sagði í samtali við Bændablaðið að
leiðbeiningarnar væru hluti af þjón-
ustu stofnunarinnar við ferða- og
heimamenn og ferðaþjónustuna í
heild. „Við vonumst til að leiðbein-
ingarnar sem eru fáanlegar á íslensku
og ensku á heimasíðu okkar, ust.is,
eigi eftir að koma í veg fyrir að fólk
slái upp tjöldum hvar sem er og ekki
síst í friðlöndum.“
Ný lög um næturgistingu
Í leiðbeiningunum segir að það séu
ýmis atriði sem hafa beri í huga í
að tjalda eða hafa næturgistingu
utan skipulagðra tjaldsvæða. Í nóv-
ember 2015 tóku í gildi ný nátt-
úruverndarlög þar sem nokkrar
breytingar urðu á því hvar sé heimilt
að tjalda. Til að mynda var lögunum
breytt á þann hátt að nú er óheimilt
að hafa næturgistingu í tjaldvögnum,
fellihýsum, hjólhýsum, húsbílum og
öðrum sambærilegum búnaði utan
skipulagðra tjaldstæða og þéttbýlis
nema leyfi landeiganda eða rétthafa
lands komi þar til.
Hvar má tjalda samkvæmt
lögunum?
Samkvæmt lögum má tjalda hefð-
bundnum viðlegutjöldum við
alfaraleið í byggð til einnar nætur á
óræktuðu landi sé tjaldsvæði ekki í
næsta nágrenni og landeigandi hefur
ekki takmarkað eða bannað aðgang
að svæðinu með merkingum. Við
alfaraleið í óbyggðum, hvort heldur
er á eignarlandi eða þjóðlendu og
utan alfaraleiðar hvort heldur sem á
eignarlandi eða þjóðlendu sé annað
ekki tekið fram í sérreglum sem
kunna að gilda um svæðið.
Hvenær þarf að afla leyfis
landeiganda eða rétthafa lands?
Leyfi landeiganda þarf ef til stendur
að tjalda nærri mannabústöðum eða
bæ, ef til stendur að tjalda til fleiri
en einnar nætur, ef um er að ræða
fleiri en þrjú tjöld og ef til stendur
að tjalda á ræktuðu landi.
Ef um er að ræða tjaldvagna, felli-
hýsi, hjólhýsi, húsbíla og annan sam-
bærilegan búnað utan skipulagðra
tjaldsvæða og þéttbýlis.
Hvar má ekki tjalda?
Eigandi lands eða rétthafi getur tak-
markað eða bannað að tjöld séu reist
þar sem veruleg hætta er á að náttúra
landsins geti beðið tjón af. Ef land-
eigandi eða rétthafi lands hefur útbú-
ið sérstakt tjaldsvæði á sínu landi er
honum heimilt að beina fólki þangað
og taka gjald fyrir þjónustuna. Eins
ef tjaldsvæði er í nágrenni eignar-
landsins getur eigandinn beint fólki
þangað.
Á friðlýstum svæðum geta verið
takmarkanir á því hvort heimilt sé að
tjalda þar. /VH
Sömu reglur gilda um næturgistingu í tjöldum, tjaldvögnum, fellihýsum,
hjólhýsum, húsbílum og öðrum sambærilegum búnaði utan skipulagðra
tjaldsvæða og þéttbýlis.
Ferðalangur hefur ákveðið að tjalda við Hvalvatn. Mynd / ÁÞ.
Uppskeruhátíð Ferða-
þjónustu bænda
Ferðaþjónustubændur ætla að
halda uppskeruhátíð 24.-25.
október á Hótel Laugarbakka
í Miðfirði. Þetta er í fyrsta sinn
sem uppskeruhátíðin er haldin
úti á landi en í ár voru aðalfundir
haldnir í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um dagskrá
verða sendar út fyrri hluta sept-
embermánaðar en félagsmenn á
svæðinu munu vera innan handar
við skipulagninguna. Þeir sem vilja
tryggja sér gistingu strax, eru hvatt-
ir til að hafa samband við Hildi Ýr
á Hótel Laugarbakka í netfangið
hotel@laugarbakki.is.