Bændablaðið - 21.07.2016, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Sandsteinshellar á Ægissíðu við Hellu í Rangárþingi ytra:
Merkar minjar um sögu manngerðra
hella sem brýnt er að varðveita
– Háskólanemar vinna að rannsókn og hyggjast útbúa hljóðleiðsögn
Sandsteinshellar á Ægissíðu
við Hellu í Rangárþingi ytra
eru merkar minjar um sögu
manngerðra hella hér á landi.
Notkun þeirra hefur aldrei verið
skráð með skipulegum hætti né
heldur hefur mikilvægi þeirra í
menningu og landbúnaði aldrei
verið rannsakað. Á liðnu vori
fengu þau Árni Freyr Magnússon
og Álfrún Perla Baldursdóttir,
nemendur við Háskóla Íslands,
styrk úr Nýsköpunarsjóði
námsmanna til að rannsaka þessar
minjar og gera upplýsingar um
þær aðgengilegar fyrir almenning.
Þau vinna nú að því að safna saman
heimildum, bæði munnlegum
og skriflegum og útbúa ítarlegt
fræðsluefni um hellana, en stefnt
er að því að gera þá aðgengilega
fyrir ferðamenn á svæðinu, allan
almenning og háskólasamfélagið.
Hugmyndin að búa til
hljóðleiðsögn
Upphaf þessa má rekja til þess að
Stracta hótel var reist og tekið í notkun
á Hellu og fóru eigendur þess að huga
að afþreyingu fyrir þá ferðamenn sem
þar dvelja. Vitneskja um hellana á
Ægissíðu var fólki á svæðinu kunn.
Forsvarsmenn Stracta hótels höfðu
samband við Þórhall Ægi Þorgilsson,
bónda á Ægissíðu 4, afa Álfrúnar, og
spurðust fyrir um ástand hellanna og
hvort möguleiki væri á að ferðamenn
gætu skoðað þá. Þórhallur Ægir hafði
sjálfur oft farið með hópa skólabarna
til að skoða hellana. Leist honum vel á
hugmyndina, en hellarnir voru ekki í
því ásigkomulagi að hægt væri að fara
með mikinn fjölda fólks ofan í þá. Úr
varð að hann sótti um styrk og fékk
fé til að loka hellunum þannig að þeir
varðveittust betur en ella.
„Við höfum nú í sumar unnið að
þessu verkefni, höfum safnað saman
ýmsum heimildum sem til eru og
hugmyndin er að útbúa hljóðleiðsögn
sem hægt verður að hlusta á í farsíma
eða öðrum tækjum. Þannig geta
ferðamenn sjálfir skoðað hellana
og fengið um þá upplýsingar,“ segir
Árni Freyr. Samhliða því verki er í
samstarfi við Stracta hótel á Hellu
unnið að því að koma í veg fyrir
frekari skemmdir á hellunum, en
þeir eru flestir í því ástandi að vera
ósýningarhæfir sökum vanrækslu.
Tólf hellar í landi Ægissíðu
Árni segir að í landi Ægissíðu séu 12
hellar, allir manngerðir, en ekki er
með vissu vitað um aldur þeirra eða
hvers vegna þeir voru gerðir. Nokkrir
af þessum 12 hellum hafa hrunið, en
5 standa eftir og hægt að gera þá
sýningarhæfa. Því verki er ólokið.
Tveir af hellunum er enn í notkun,
Skagahellir og Búrhellir, báðir nýttir
sem búr, m.a. eru í þeim geymdar
kartöflur. Hina hellana var hætt að
nota fyrir búsmala og hey á árunum
eftir 1970, sá síðasti var tekinn úr
almennri notkun árið 1975.
Langeldur og skáli
Árni segir að þegar íbúðarhúsið á
Ægissíðu 2 var byggt árið 1966 hafi
komið í ljós rústir af langeldi og skála
umhverfis hann. Úr skálanum lá op
ofan í Búrhelli, en innangengt hefur
verið úr skálanum og í hellinn, en þar
mátti sjá för eftir 7 keröld. „Hellirinn
er líklegast jafngamall skálanum.
Íslendingar hættu að nota langelda
á 14. öld svo draga má þá ályktun
að hellirinn sé að minnsta kosti það
gamall en allt eins er líklegt að hann sé
eldri. Þessi vitneskja skipar hellunum
í hóp með allra elstu mannabústöðum
sem enn standa hér á landi,“ segir
Árni. Íbúðarhúsið var byggt yfir
landnámsbæinn og er innangengt
úr því og yfir í Búrhelli, þannig að
einungis er hægt að komast inn í
hann með því að fara um kjallarann
í Ægissíðu 2.
Liður í viðamiklu þróunarverkefni
„Það má eiginlega ekki seinna vera
að hefja rannsókn á þessum hellum,
notkun þeirra hefur minnkað til
mikilla muna og sögur um þá og
notagildi þeirra eru nú einungis
þekktar meðal eldra fólks. Við
höfum verið að ræða við eldri
borgara hér á svæðinu og skrá niður
munnmælasögur áður en þær falla
í gleymsku,“ segir Árni. „Þessi
rannsókn miðar svo að því að byggja
upp ferðamannastað sem fyrr á árum
var vinsæll en hefur fallið í gleymsku
eftir að bændur hættu að sýna þá.
Okkar rannsókn er hluti af viðamiklu
þróunarverkefni með þátttöku
landeigenda, fyrirtækisins Stracta
Travel á Hellu, Minjastofnunar
Íslands og fræðimanna við Háskóla
Íslands. Ætlunin er að byggja upp
áningarstað fyrir ferðamenn á
Ægissíðu þar sem hægt verður að
skoða hella, ganga um svæðið og
njóta útsýnis,“ segir hann.
Eykur aðdráttarafl svæðisins
Árni nefnir að Einar Benediktsson
skáld hafi á sínum tíma, á árunum
eftir þarsíðustu aldamót, haft mikinn
áhuga fyrir hellunum, en hann var
sýslumaður Rangárþings á árunum
1904 til 1907. Kannaði hann m.a.
hellana á Ægissíðu. Einar var þeirrar
skoðunar að Ísland hefði verið numið
á undan norrænum mönnum og nefndi
í því sambandi t.d. Fönikíumenn,
Rómverja og Papa. Það sem rennur
stoðum undir kenningar af því tagi
segir Árni þá staðreynd að hellar hafi
ekki verið notaðir sem mannabústaðir
í Skandinavíu, en vel þekktir sem
slíkir á Írlandi. „Kenningar af þessu
tagi er erfitt að sanna, en þessir
hellar eru engu að síður ákveðin
vísbending. Það er ánægjulegt að
áhugi fyrir þeim og varðveislu þeirra
hefur aukist á ný, en það má rekja til
aukins ferðamannastraums hingað til
lands og leit okkar að ýmsu því sem
merkilegt getur talist og kann að auka
aðdráttarafl svæðisins,“ segir Árni.
Þau Árni og Álfrún eru með síðu
á Facebook, Hellarnir á Ægissíðu, en
þar má finna nánari upplýsingar um
hellana.
/MÞÞ
Hvaðan kemur nafnið Ægissíða?
Hellarnir á Ægissíðu eru einna
þekktustu manngerðu hellarnir
á Íslandi og hafa löngum verið
viðkomustaður fræðimanna,
skólabarna og ferðamanna.
Bæjarstæðið er fornt en
bæjarnafnið er þó hvorki í
Landnámu eða í fornsögum.
Ægissíðu er fyrst getið í máldaga
Oddakirkju frá 1270 en bærinn er
þó að öllum líkindum mun eldri
(Árni, Guðmundur og Hallgerður
1991, 148).
Nafnið „Ægissíða“ hefur vafist
fyrir mönnum en bærinn stendur 18
kílómetrum frá sjó og nafnið því
líklegast ekki tilkomið frá norrænu
goði Ægi eða ægi í merkingunni sjór
(Árni, Guðmundur og Hallgerður
1991, 147).
Landnámsbærinn Hrafntóftum
standa fyrir neðan Ægissíðu, nær
sjónum, og því ómögulegt að
Ægissíða hafi staðið við sjó við
landnám (Baldur Þórhallsson 2016).
Áningarstaður eða reykt ærsíða?
Fjórar aðrar skýringar hafa verið
gefnar fyrir nafngiftinni á bænum. Í
fyrsta lagi sé nafnið tilkomið vegna
tengingarinnar við sjóinn. Ekki vegna
þess að bærinn stendur við sjóinn
heldur hafi verið siglt frá sjónum upp
Rangá og að Ægissíðufossi sem er
örlitlu neðar í ánni en þar sem bærinn
stendur.
Í öðru lagi hefur því verið haldið
fram að „Ægi“ sé komið af því að
æja. Bærinn stendur við vaðið yfir
Ytri-Rangá og því hafa margir
ferðalangar í gegnum tíðan komið
við á Ægissíðu á leið sinni um landið.
Í þriðja lagi má finna ástæður
nafngiftarinnar í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar. Þjóðsagan er á þá leið
að í harðæri endur fyrir löngu hafi
jörðin verið seld fyrir eina reykta
ærsíðu. Eftir það hafi bærinn fengið
nafnið Ærsíða sem með tíð og tíma
breyttist í nafnið Ægissíða.
Af keltneskum toga?
Í fjórða lagi má nefna að til er sú
skýring að nafnið sé af keltneskum
toga. Í forn-írskum sögum er fjallað
mikið um undirheimaguði eða huldu-
þjóð sem búa í hellum og fornsögu-
legum grafhýsum Írlands.
Bústaðir hulduþjóðarinnar nefndust
síde (et. síd). Hulduþjóðin eða guða-
þjóðin var kennd við dvalarstað sinn
og nefndist aes síde. Þessar huldu-
verur líktust álfum en keltar gerðu
ekki skýran greinarmun á guðum,
goðsagnahetjum, álfum og dísum.
Írskar þjóðsögur segja því af ae síde,
undirheimaþjóð eða hellisbúum.
Hugsanlega gæti Ægissíða dregið
nafn sitt af þessum írsku hellisbú-
um (Árni, Guðmundur og Hallgerður
1991, 147).
Eða er það ef til vill bara tilviljun
að bær sem þekktur hefur verið fyrir
hella skuli bera nánast sama nafn
og eldfornir keltneskir hellisbúar?
Orðatengslin benda mögulega til þess
að hellarnir á Ægissíðu séu eldri en
bærinn sjálfur og að þeir hafi verið
grafnir snemma á öldum. Bærinn
hafi svo dregið nafn sitt af hellunum
þegar hann var reistur.
Álfrún Perla Baldursdóttir og Árni Freyr Magnússon, nemendur við Háskóla
Íslands, fengu styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að rannsaka þær
merku minjar sem hellarnir í Ægissíðu eru. Myndir / Ólöf Þórhallsdóttir
Forhleðsla Fjárhellis.
Flestir hellarnir á Ægissíðu standa undir skemmdum og þarfnast viðhalds
og viðgerða. Nú þegar eru hafnar framkvæmdir við Hlöðuhelli og Fjárhelli
sem standa í Hellistúni.
Fjóshellir.