Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
kranar & talíur
Hafðu samband
og kynntu þér
vöruúrvalið og
þjónustuna
Valgeir og Hrefna í Árnesi II:
Minjasafnið Kört
og æðardúnn
Hrefna Þorvaldsdóttir og Valgeir
Benediktsson í Árnesi II hættu
sauðfjárbúskap fyrir fimm árum
en stunda enn æðarrækt í Árnesey.
Þau hafa rekið minja- og hand-
verkshúsið Kört í Trékyllisvík í
nítján ár.
Valgeir hefur alltaf haft áhuga á
sögu og viðað að sér gömlum munum
úr sveitinni. Lengi skreyttu munirn-
ir heimili þeirra hjóna eða voru í
geymslu. Árið 1997 létu þau gamlan
draum rætast og reistu sýningarhús
undir munina. Húsið sem kallast Kört
er nefnt eftir skeri í Trékyllisvík og er
að mestu úr rekavið. Fyrir tíu árum
var húsið stækkað um ríflega helm-
ing og sett upp salerni.
Munir úr sveitinni
„Ég hef verið að safna munum nánast
alla mína ævi og langflestir þeirra
eru héðan úr sveitinni eða tengjast
sögu hennar,“ segir Valgeir. „Ég
var því kominn með töluvert safn
þegar við Hrefna ákváðum að reisa
minjasafnið. Í kjölfar þess að safnið
var opnað fór talsverð skriða af stað
og það barst mikið af áhugaverðum
og fallegum munum. Húsið varð því
fljótlega of lítið og það því stækk-
að. Okkur eru reyndar enn að ber-
ast munir og með sama áframhaldi
verður núverandi hús líka of lítið.“
Nánast allt skráð í Sarp
Leitast hefur verið við að skrá sögu
allra munanna sem eru á safninu.
Rakel, dóttir þeirra, er þjóðfræðing-
ur að mennt og hefur unnið ötullega
að skráningu munanna. „Stór hluti
munanna, sem flestir eru frá 19. og
20. öld, er skráður samkvæmt skrán-
ingarkerfi Sarps sem er eina viður-
kennda skráningarkerið fyrir söfn á
Íslandi,“ segir Hrefna.
Samkvæmt lauslegri talningu
úr gestabók heimsækja um 3.500
manns safnið á ári. Gestirnir eru því
væntanlega fleiri því ekki allir sem
heimsækja safnið skrifa í hana.
Dúntekja í Árnesey
Þrátt fyrir að vera hætt sauðfjár-
búskap nýta Valgeir og Hrefna
ásamt sambýlingum sínum, Ingólfi
Benediktssyni og Jóhönnu Ósk
Kristjánsdóttur í Árnesi II, æðarvarp
í Árnesey.
„Við leigjum Árnes I sem er
kirkjujörð og þeirri leigu fylgja
meðal annars nytjar af eyjunni en
við eigum hálfa eyjuna ásamt Ingólfi
og Jóhönnu. Dúnninn sem færst úr
henni er misjafn milli ára en ætli
hreiðrin í eyjunni séu ekki nálægt
2.000,“ segir Valgeir.
Mikil vinna er í kringum varpið
og dúntekjuna því eftir að dúninum
hefur verið safnað er hann hreinsaður
og segir Hrefna að þau eyði öllum
sólardögum á sumrin í að hreinsa
hann.
Lausari við
Þegar Valgeir og Hrefna hættu sauð-
fjárbúskap tók Elísa, dóttir þeirra, og
maður hennar, Ingvar Bjarnason, við
búinu auk þess sem Elísa er skóla-
stjóri í Finnbogastaðaskóla. Ingvar
og Elísa ætla að bregða búi í haust
og flytja til Hafnarfjarðar.
Valgeir og Hrefna segjast ætla
að vera í Árnesi í vetur með nokkr-
ar kindur en verði svo lausari við
í framtíðinni. „Við ætlum ekki að
flytja burt en verðum hugsanlega
ekki hér allt árið eins og áður. Við
ætlum að vera áfram með safnið og
nytja eyjuna en hætta með kindurn-
ar,“ segir Hrefna.
Framkvæmdir við virkjun Hvalár
tímabundin lausn
Valgeir segir að fækkun íbúa í
Árneshreppi sé skelfileg þróun. „Það
binda margir vonir við að virkjun
Hvalár geti snúið þeirri þróun við
og blásið nýju lífi í sveitarfélagið.
Að mínu mati munu framkvæmdir
við virkjunina hafa tímabundin áhrif
og auka íbúafjöldann meðan á þeim
stendur. Starfsmenn við virkjunina
verða að öllum líkindum karlmenn
en ekki fjölskyldufólk og þegar fram-
kvæmdunum lýkur flytja þeir burt.
Mér finnst það með ólíkindum að
Vegagerðin skuli ekki grípa þennan
bolta á lofti og fara í samstarf við
virkjunaraðilana um uppbyggingu á
veginum frá Veiðileysu að virkjun-
arstaðnum í Ófeigsfirði. Slíkt gæti
haft jákvæð áhrif á byggðaþróun
hérna. Það er eins og Vegagerðin sé
algerlega steinrunnin stofnun sem
veit varla á hvaða öld við lifum.
Alþingi gæti líka komið þarna
að og breytt vegaáætlun í haust á
þann veg að flýta framkvæmdum
við Veiðileysuháls svo hægt verði
að bjóða það verk út nú í vetur svo
að framkvæmdir geti hafist þar í vor.“
Matráður í Finnbogastaðaskóla
Hrefna hefur verið matráður í
Finnbogastaðaskóla í fjöldamörg
ár og það hefur veitt henni mikla
gleði að vinna með öllu þessu unga
fólki sem þar hefur stundað nám.
Það verður því mikill söknuður ef
ekki verður áfram starfandi skóli í
sveitinni að hennar sögn. „Vonandi
sjá einhverjir sér tækifæri í að setjast
hér að og skólahald verði hér áfram
enda er skólinn einn af grunnstoðum
samfélagsins.“
Sambland margra þátta sem
veldur fækkun íbúa
Valgeir segir ástæðuna fyrir fækkun
íbúa í hreppnum vera sambland-
margra þátta sem erfitt sé að sporna
við.
„Einangrun sem orsakast af
samgönguleysi er þó að mínu mati
helsta ástæðan. Börnin í skólanum
eru líka orðin svo fá og á mismun-
andi aldri og fólki finnst þau þurfa
meiri félagsskap jafnaldra sinna.
Atvinnumöguleikar fyrir fólk hér
eru heldur ekki þeir sömu og annars
staðar og stundum er bara vinna fyrir
annan aðilann ef um par er að ræða.
Þetta er því flókið mál og ekki fund-
ist lausn á því enn.
Ekki veit ég hvað hafa verið
haldnir margir fundir eða ráðstefn-
ur um framtíð Árneshrepps, þar sem
mikið er talað um þann menningararf
sem hér sé að finna og þurfi að varð-
veita. Lítið hefur komið út úr því enn
sem komið er.
Ágætlega unnin þingsályktun-
artillaga um þetta var lögð fram í
þinginu og fékk jákvæða umfjöllun.
En einhvers staðar strandaði málið og
engin á Alþingi hefur haft dug í sér
til að taka það upp aftur.
Stærsti áhrifavaldurinn að því
að byggð sé hugsanlega að leggjast
af í Árneshreppi er algerlega galið
viðhorf Vegagerðarinnar til sam-
gangna við hreppinn. Það er ekki
nokkur von til þess að ungt fólk láti
það yfir sig ganga að vera haldið í
gíslingu án vegasambands í nærri
þrjá mánuði á ári. Á Íslandi er heldur
engin vitræn byggðastefna og það er
kannski vandinn í hnotskurn.“ /VH
Árneshreppur á Ströndum:
Kennsla í Finnboga-
staðaskóla næsta vetur
Áfram verður kennt í Finn-
bogastaðaskóla á Ströndum í
vetur en um tíma leit út fyrir að
skólahald myndi leggjast af vegna
skorts á nemendum.
Íbúar Árneshrepps á Ströndum
hafa haft talsverðar áhyggjur af því
undanfarnar vikur að engin kennsla
yrði í Finnbogastaðaskóla næstkom-
andi vetur. Skólinn hefur um árabil
verið með fámennustu skólum lands-
ins og vegna brottflutnings tveggja
barnafjölskyldna úr hreppnum var
einungis einn nemandi skráður í
skólann.
Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti
Árneshrepps, segir að nýverið hafi
fjölskylda með þrjú börn á grunn-
skólaaldri ákveðið að flytja í hrepp-
inn og því sé grundvöllur fyrir áfram-
haldandi skólahaldi tryggður.
Núverandi skólastjóri hefur sagt
starfi sínu lausu og hættir í haust. Eva
segir að þegar hafi nokkrar umsóknir
um stöðuna borist og nú sé verið að
fara yfir þær. /VH
Finnbogastaðaskóli á Ströndum.
Hrefna Þorvaldsdóttir og Valgeir
Benediktsson í Árnesi II. Elísa Valgeirsdóttir, fráfarandi skólastjóri við Finnbogastaðaskóla, við minja-
og handverkshúsið Kört.
Handavinna íbúa í Árneshreppi.