Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Raggagarður orðinn eitt
af kennileitum Vestfjarða
– Mikil velvild og ómæld vinna sjálfboðaliða á bak við uppbygginguna á þessum fjölskyldugarði í Súðavík
„Við finnum fyrir mikilli velvild,
það er ótrúlegt hversu margir
hafa verið tilbúnir að leggja
okkur lið við þetta verkefni og
hafa tekið jákvætt í þetta fram-
tak. Eftir blóð, svita og tár hefur
þetta tekist og garðurinn er afar
fallegur og vinsæll, sannkallaður
Fjölskyldugarður Vestfjarða og eitt
af kennileitum fjórðungsins,“ segir
Vilborg Arnarsdóttir, upphafsmað-
ur þess að Raggagarður í Súðavík
reis á gömlu leikskólalóðinni í
gamla bænum. Hún hefur, ásamt
eiginmanni sínum, Halldóri Má
Þórissyni, auk stjórnar garðsins,
einnig viðhaldið honum, aukið og
bætt við hann á þeim 11 árum sem
liðin eru frá því hafist var handa.
Frá upphafi hefur verið fram-
kvæmt fyrir tæplega 37 milljónir
króna í garðinum og þeir fjölmörgu
sjálfboðaliðar sem lagt hafa hönd á
plóg hafa unnið yfir 2.800 vinnu-
stundir við garðinn. Þá hafa um 140
aðilar styrkt verkefnið með framlög-
um. Garðurinn var formlega opnaður
í byrjun ágúst árið 2005.
Raggagarður heitir eftir syni
Vilborgar, Ragnari Frey Vestfjörð,
sem lést í bílslysi í ágúst árið 2001,
þá rúmlega 17 ára gamall.
Hrífur fólk með sér
„Þetta verkefni hefur átt hug og
hjarta Vilborgar öll þessi ár, hún var
ákveðin í því að koma þessum garði
upp og ákafi hennar og jákvæðni
hefur hrifið fólk með, það eru allir
til í að taka þátt og vinna að þessu
verkefni. Það hefur verið ánægjulegt
að fylgjast með því,“ segir Halldór
Már, sem um árin hefur ekki legið á
sínu liði við uppbygginguna, m.a. sett
saman hvert einasta leiktæki sem er
í garðinum og lagar þau þegar þarf.
„Hann hefur hvatt mig áfram og verið
mín stoð og stytta öll þessi ár. Það
gefur manni kraft til að halda áfram,“
segir Vilborg.
Raggagarður er eins konar
skemmtigarður fyrir alla fjöl-
skylduna. Þar eru borð og bekkir
fyrir tæplega 90 manns í sæti og
tvö stór veislugrill. Salerni er á
staðnum með aðgengi fyrir fatlaða.
Leiksvæðin skiptast upp eftir aldri
barnanna, á einu þeirra eru tæki
ætluð yngstu börnunum, frá 2 ára
aldri, þar fyrir ofan nokkru eldri
börn, eða frá 8 ára, og efst eru tæki
ætluð fyrir 12 ára börn og eldri. Í
svonefndum Orkulundi eru þjálf-
unartæki fyrir orkubolta, leiktæki þar
sem orkumiklir krakkar eiga auðvelt
með að fá útrás.
Listaverk á Boggutúni
Nýjasta svæðið í Raggagarði er úti-
vistarsvæði á svokölluðu Boggutúni,
en það var opnað í fyrrasumar í
tilefni af 10 ára afmæli garðsins.
„Þetta er eins konar sælureitur og
hentar vel fyrir hópa, félagasamtök,
starfsmannafélög eða ættarmót til að
halda fjölskyldudag. Þessi aðstaða
er mikið notuð, en nú í sumar geta
hóparnir leigt kofa og veislugrill
á útivistarsvæðinu og á því er líka
svið, útbúið sem bátur til að minna
okkur á mikilvægi sjávarútvegs á
Vestfjörðum,“ segir Vilborg. Á
Boggutúni eru ekki leiktæki, en til-
vísun er á svæðinu í vestfirska nátt-
úru, sögu og þjóðtrú. Þar má finna
Álfastein, Dvergasteina, Grjótaþorp
og holugrjót frá Hvítanesi, nokkur
listaverk sem Gerður Gunnarsdóttir
gaf garðinum, hringborð með 12
sætum en á þeim eru nöfn allra bæja
og þorpa í fjórðungnum.
Gosbrunnur í tjörninni
Einnig er þar lítil tjörn með vatns-
snigli og brú. Ragnar Freyr átti
sinn þátt í að búa til snigilinn góða,
en vorið 1996 kom listamaður
í Súðavíkurskóla í tengslum við
listaviku og hann ásamt fleiri nem-
endum, m.a. Ástu Ezradóttur, tók
þátt í að útbúa sumargrillsvæði í
gömlu sundlauginni. Þau útbjuggu
svonefndan Vatnssnigil. Í verkið var
notaður snigill, bobbingur og efni úr
járni sem soðið var saman og útbú-
inn gosbrunnur með aðstoð fullorðna
fólksins. Gosbrunnurinn lá lengi vel
ónotaður á botni gömlu sundlaugar-
innar á Súðavík eða þar til Vilborg tók
hann í sína vörslu og geymdi í bílskúr,
einmitt í því augnamiði að nýta síðar
í garðinum. Hann sómir sér þar vel,
en Finnbogi Bernódusson hjá Mjölni
í Bolungarvík lagfærði hann, sauð
undir hann góðan standara og betri
stút fyrir vatnið. „Mér þykir óskap-
lega vænt um að verkið er komið upp
og það sómir sér vel á nýjum stað,“
segir Vilborg.
Samverustundirnar dýrmætar
Hún segir að markmið með garðinum
sé m.a. að hlúa að fjölskyldum, efla
útiveru og hreyfingu og stuðla að því
að fólk eigi ánægjustundir saman.
„Garðurinn á að vera vettvangur fyrir
góðar samverustundir, þar sem fólk
getur leikið sér með börnum sínum
eða barnabörnum og glaðst á góðum
degi, það er það besta og dýrmætasta
sem lífið gefur þegar upp er staðið,“
segir Vilborg. „Lífið getur breyst á
einu augabragði, það hef ég fundið
á eigin skinni og því er mikilvægt að
njóta góðu stundanna.“
Vissulega segir hún að verkefnið
sé umfangsmikið og að baki garðin-
um liggi mikil vinna fjölda fólks,
styrkir og velvilji fólks og fyrirtækja
innan og utan Vestfjarða. „Það skiptir
máli að halda alltaf áfram þótt á móti
blási, gefast ekki upp. Það hefur gefið
mér mikið hversu allir sem ég hef leit-
að til hafa tekið mér vel, eru tilbúnir
að stökkva með mér á þennan vagn
og taka þátt, hver á sinn hátt, það er
gríðarlega mikilvægt að finna þennan
velvilja,“ segir hún.
Fjögur tonn af kleinum
Vilborg fjármagnaði framkvæmdir
við garðinn með styrkjum héðan
og þaðan en að auki lagði hún fram
eigið fé, bakaði kleinur til fjölda ára
og seldi. „Mér reiknast svo til að ég
hafi bakað um 4 tonn af kleinum, þær
seldi ég hingað og þangað og notaði
afraksturinn til að greiða eitt og annað
í kringum garðinn. Eitt sinn á ferl-
inum hefur garðurinn verið í skuld,
líklega 30 til 40 þúsund krónur, og
við áttum ekki fyrir henni. Ég fór í
bankann með kleinupoka og spurði
bankastjórann hvort ég fengi ekki
yfirdrátt til að brúa bilið, ég þyrfti
að baka slatta af kleinum og koma
í sölu til að greiða skuldina. Það er
alltaf hægt að finna leiðir og ég dáist
í raun að því hvað margir hafa sýnt
mér mikið umburðarlyndi um árin.
En vissulega höfum við gefið til baka,
garðurinn er á sínum stað, eins konar
þjóðargjöf sem allir geta fengið að
njóta,“ segir hún.
Vilborg og Halldór hafa verið
búsett á Akureyri undanfarin þrjú
ár. Vilborg dvaldi í gamla heima-
bænum yfir sumarið fyrstu árin eftir
brottflutninginn en núorðið fara þau
til Súðavíkur í byrjun sumars til að
koma garðinum í stand fyrir sumarið.
Krakkar í vinnuskólanum þar í bæ
hafa unnið í garðinum sem og ung-
menni frá Bolungarvík og Ísafirði.
Enn verk að vinna
Stefnt var á að ljúka framkvæmdum
við Raggagarð fyrir 10 ára afmæli
hans í fyrrasumar en ekki tókst að
klára að setja upp rekaviðaskóg-
inn á Boggutún, enn vantar um 20
rekaviðarstaura frá Ströndum eða
Hornströndum. „Ég hef verið að biðla
til landeigenda um að fá staura með
rótarhnyðjum á endanum og vona
að það skili árangri,“ segir Vilborg.
Þá nefnir hún að enn sé nægt pláss
á Boggutúni fyrir fleiri útilistaverk,
vilji listamenn setja þar niður verk
sitt er það auðsótt mál.
„Við eigum svo eftir að leggja 50
metra göngustíg í garðinn, setja upp
fleiri merkingar og eitt og annað smá-
legt. Næsta verkefni er svo að ljúka
við sögubókina um Ask og Emblu
sem taka á móti gestum garðsins,
við innganginn í Raggagarð. Þessir
svanir segja sögur að vestan og var
ætlunin að þetta yrði sögu- og litabók
fyrir börn. Nú er bara að finna góðan
teiknara til að teikna svanina á ferð
og flugi.“
Leita bakhjarla
Fastur kostnaður við rekstur garðsins
er nokkur, m.a. trygging, lýsing,
sláttur, salernisaðstaða, viðhald og
fleira. Tekjur fást með sölu á dósum
sem fólk skilur eftir sig í þar til gerðum
tunnum en einnig er söfnunarbaukur
á staðnum sem fólki er frjálst að gefa
í. „Þetta gefur um 100 til 120 þúsund
krónur í tekjur á ári, en það vantar
aðeins upp á til að endar nái saman.
Nú er ég flutt á brott og hætt að baka
kleinur upp í það sem á vantar,“ segir
Vilborg, en henni hefur dottið í hug að
leita bakhjarla til að reksturinn gangi
upp. „Ég hef verið að velta því fyrir
mér hvort einhver áhugasöm fyrirtæki
eða félagasamtök vilji gerast bakhjarl-
ar garðsins til þriggja ára í senn til að
hjálpa okkur með rekstrarkostnaðinn
sem er um 400 þúsund krónur á ári.
Vonandi gengur það upp, þannig að
áfram verði sómi að þessu fallega
útivistarsvæði Vestfirðinga,“ segir
hún.
/MÞÞ
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Vogue
fyrir heimil ið
bíður uppá alhl iðalausn fyr i r
hótelherbergið eða gist iheimi l ið.
Raggagarður er fallegur og vinsæll, sannkallaður Fjölskyldugarður Vestfjarða og eitt af kennileitum fjórðungsins.
Ungir sem aldnir taka gjarnan þátt í vinnudögum í Raggagarði.
Myndir / Úr safni VA
Halldór Már Þórisson og Vilborg
Arnarsdóttir í Raggagarði.