Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
fyrirtækjafánar hátíðarfánar
þjóðfána borðfána bannerar
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Við sérhæfum okkur í JCB, Hydrema, Iveco,
New Holland, Case og nú:
Frakkland með rúmlega
tvöfalda mjólkurfram-
leiðslu á við Norðurlöndin
Þrátt fyrir að síðasta ár hafi
verið afar gott framleiðsluár á
Norðurlöndunum og heildarfram-
leiðslan hafi endað í 12,3 milljörð-
um lítra þá er það hjóm eitt við
hlið franskrar mjólkurframleiðslu.
Franskir bændur einir framleiða
nefnilega árlega um 25 milljarða
lítra mjólkur og er landið sjöundi
stærsti mjólkurframleiðandi í
heiminum!
Frönsk mjólkurframleiðsla er afar
mikilvæg fyrir þarlendan efnahag og
stendur undir miklum útflutningstekj-
um landsins. Við mjólkurframleiðslu
og -iðnað starfa í kringum 250 þúsund
manns sem gerir atvinnugreinina þá
næststærstu í landbúnaði, á eftir kjöt-
framleiðslu. Síðastliðið ár hefur verið
afar erfitt þegar horft er til mjólkur-
framleiðslunnar í Frakklandi vegna
lágs afurðaverðs en talin er hætta á
að rúmlega þriðja hvert kúabú þurfi
að loka vegna tapreksturs.
65 þúsund kúabú
Fimm stærstu mjólkurframleiðslulönd
Evrópusambandsins eru Þýskaland,
Frakkland, Stóra-Bretland, Holland
og Pólland en þessi lönd standa undir
um 64% allrar mjólkurframleiðslu
aðildarlandanna. Franskir kúabænd-
ur framleiða árlega um 25 milljarða
lítra mjólkur og eru einungis þýsk-
ir kollegar þeirra með meiri fram-
leiðslu. Sé þetta mjólkurmagn sett í
samhengi má t.d. benda á að frönsk
kúabú framleiða á rúmlega tveimur
dögum ársframleiðslu íslenskra kúa-
búa! Alls eru um 65 þúsund kúabú í
landinu og er meðalbúið með um 55
mjólkurkýr. Afurðasemi kúnna er að
jafnaði heldur lítil þegar horft er til
helstu samkeppnislandanna en með-
alnytin er að jafnaði um 7.000 lítrar
á árskúna og framleiða kúabúin að
jafnaði um 380 þúsund lítra árlega.
Ótal móttökuaðilar mjólkur
Það sem vekur athygli þegar mjólkur-
iðnaðurinn í Frakklandi er skoðaður
er hve margir aðilar vinna úr mjólk
í landinu. Alls eru starfandi um 500
móttökuaðilar mjólkur og er því með-
alinnvigtunin tæplega 50 milljónir
lítra á hvern aðila. Þó gefur þessi
tala ekki rétta mynd enda eru nokkr-
ar afurðastöðvar með langstærsta
hluta mjólkurmagnsins og taka rúm-
lega 30 afurðastöðvar við um 60%
mjólkurinnar að jafnaði. Reyndar er
frönsk mjólkurframleiðsla nokkuð
frábrugðin að uppbyggingu miðað
við mjólkurframleiðsluna í öðrum
löndum Norður-Evrópu og stór hluti
af þeim fyrirtækjum sem starfa í
úrvinnslu mjólkur í landinu er í einka-
eigu. Þekktust þessara fyrirtækja eru
stórfyrirtækin Danone og Lactalis,
en bæði eru með starfsstöðvar víða
um heim og eru umsvif þeirra í
Frakklandi því einungis hluti starf-
semi þeirra. Þau eru bæði það stór að
þau teljast til stærstu afurðafyrirtækja
í mjólkurvinnslu í heiminum og er
einungis svissneska fyrirtækið Nestlé
stærra en hin áðurnefndu frönsku
fyrirtæki. Á listanum yfir 20 stærstu
fyrirtæki í úrvinnslu mjólkur í heimin-
um, metið út frá árlegri veltu, eru þau
frönsku í sérflokki en auk Danone og
Lactalis eru bæði fyrirtækin Sodiaal
og Savencia á listanum og saman
standa þessi fjögur fyrirtæki undir
23,4% af heildarveltu fyrirtækjanna
á topp 20 listanum. Fimm bandarískar
afurðastöðvar koma þar á eftir með
19,6% og svo Nestlé eitt og sér frá
Sviss með 12,5%.
Enn fleiri í úrvinnslunni
Mjólkin fer til vinnslu hjá ótrúleg-
um fjölda aðila, en alls eru skráðir
um 1.250 framleiðsluaðilar mjólkur-
afurða í Frakklandi. Þar af eru reynd-
ar um fjórðungur sem er með afar
lítið magn eða minna en 10 þúsund
lítra árlega. Þessir aðilar eru flestir í
sérostagerð en fyrir því er rík hefð í
Frakklandi og úrval osta sem fram-
leiddir eru í Frakklandi með því mesta
sem þekkist í heiminum.
25.000 frönsk kúabú í hættu
Eins og áður segir þá hefur lágt afurða-
stöðvaverð í Evrópusambandinu nú
leitt til þess að staða tugþúsunda
kúabúa aðildarlandanna er gríðar-
lega erfið og sér í lagi í Þýskalandi
og Frakklandi. Svartsýnustu spárnar
gera þannig ráð fyrir því að allt að 25
þúsund frönsk kúabú séu í verulegum
vandræðum og að á aðeins fjórum
árum muni þarlendum búum fækka
úr 65 þúsund í 40 þúsund. Þannig
er talið að það séu a.m.k. 5 þúsund
kúabú sem eru rekin með stórfelldu
tapi og að tapið nemi 12-13 krónum
á hvert framleitt kíló mjólkur. Til við-
bótar vantar annað eins svo búin hafi
fyrir launum eigenda og afskriftum og
því liggur fyrir að búin þola ástandið
ekki mikið lengur. Eigi að koma í veg
fyrir að þessi stóri hópur kúabúa fari
í gjaldþrot vonast þarlendir bænd-
ur eftir viðbótar stuðningi yfirvalda
eða verulega hækkuðu afurðastöðv-
averði, en á því eru taldar litlar líkur
eins og staðan er í dag. Talið er að
afurðastöðvaverðið þurfi að hækka
um nærri 50% frá því sem nú er og
fara í 40 evrusent eða um 54 krónur
svo reksturinn geti borið sig.
Þurfa að auka samvinnuna
Í flestum löndum Evrópu hefur
orðið vart við stóraukna samvinnu
kúabúa síðustu árin. Þau skref hafa
gert það að verkum að mörgum hefur
tekist að mæta að hluta til lækkandi
afurðastöðvaverði með lægri kostnaði
t.d. við öflun aðfanga með aukinni
samvinnu svo sem við fóðuröflun.
Samvinna hefur ekki beint verið
aðalsmerki franskrar mjólkurfram-
leiðslu en nú er svo komið að margir
framámenn franskra kúabænda telja
að leið bændanna til móts við nýja
tíma felist einmitt í aukinni samvinnu
líkt og þekkist í mörgum öðrum lönd-
um.
Mótmæla allir sem einn
Það má vel vera að franskir kúa-
bændur séu ekki mikið fyrir það að
vinna saman en þegar kemur að því
að mótmæla hika þeir ekki við að
standa saman. Þá fylkja þeir liði á
dráttarvélum sínum og aka niður í
borgir og bæi og vekja þannig athygli
á málstað sínum. Oft gerist það einnig
að þeir hella niður mjólk og ná slík-
ar aðgerðir nánast umsvifalaust inn
í helstu fjölmiðla. Þetta gerðist t.d.
þegar fram komu hugmyndir um að
heimila kúabú með fleirum en eitt
þúsund kúm í þeim tilgangi að auka
hagræði við mjólkurframleiðsluna.
Þeim hugmyndum mótmæltu kúa-
bændur víða um land og töldu vegið
að þeim hefðum og gildum sem hafa
verið í þarlendri mjólkurframleiðslu
til þessa. Auk þess vildu þeir meina
að slík bú hefðu umhverfismengandi
áhrif og fleiri neikvæða þætti. Fóru
þeir fram á að sett yrði þak á bústærð
í landinu og að þá ætti að miða við
að hámarki 500 kýr á hverju búi. Enn
sem komið er eru þó ekki mörg frönsk
kúabú sem hafa margar kýr og eru t.d.
ekki nema 4% kúabúa landsins með
fleiri en 100 kýr.
Áhugaverð viðbrögð stjórnvalda
Tíð mótmæli franskra kúabænda
vegna lágs afurðaverðs hafa vakið
verulega athygli í landinu og hafa nú
stjórnvöld t.d. greitt út svokallaðar
neyðarbætur til kúabænda landsins
og nam upphæðin að jafnaði 7 þús-
und evrum á hvert kúabú eða um
950 þúsund íslenskum krónum. Þá
hafa Frakkar einnig breytt kröfum
til upprunamerkinga bæði á kjöti og
mjólkurvörum þess efnis að frá og
með 1. janúar næstkomandi skulu
allar vörur vera með skýrar upplýs-
ingar um upprunaland þeirra. Þessi
krafa hefur alls ekki farið vel í fyrir-
tæki sem eru í innflutningi en bændur
styðja auðvitað heilshugar við þessi
áform og það sem er ekki minna
athyglisvert er að frönsku neytenda-
samtökin gera það einnig! Þessi ráð-
stöfun ein og sér er talin að muni gera
það að verkum að sala á matvælum
sem upprunnin eru í Frakklandi muni
aukast verulega og skila sér þannig
beint og óbeint til þarlendra bænda.
Þessi aðgerð gengur raunar þvert á
grunnstoð Evrópusambandsins um
hinn innri markað en Frakkar náðu
þessu í gengum Evrópuþingið og hafa
nú fleiri lönd fikrað sig í sömu átt og
má þar nefna bæði Ítalíu, Portúgal
og Litháen sem hafa tilkynnt til
Evrópusambandsins að þau ætli að
gera sambærilegar kröfur í þeim
tilgangi að reyna nú að verja land-
búnað sinn með kröfum um skýrar
upprunamerkingar matvæla. Hvort
þessi ráðstöfun muni ná að bjarga
frönskum kúabændum skal ósagt
látið en vissulega áhugaverð leið til
þess að hvetja til kaupa á þarlendum
matvælum.
Helstu heimildir:
Eurostat, Rabobank, IFCN og IDF
Snorri Sigurðsson
sns@seges. dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
Danmörku