Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Á þeim tímum þegar skærur og
vopnaskak var meira í návígi,
vopnin frumstæð og meira gerð
til að lumbra á náunganum, þótt
menn hafi nú samt beitt þeim í
fullri trú um að þau myndu alveg
ganga frá honum. Stundum tókst
það.
En mikill meirihluti þeirra sem
féllu í valinn á vígvellinum voru
fremur hálfdauðir en aldauðir í lok
bardagans. Lemstraðir og sárir lágu
þeir eftir og myndu hafa borið þar
beinin ef ekki hefðu komið til lækn-
ar, oftast konur, sem kunnu sitt fag
til að binda um benjarnar, spelka
saman bein og hlúa að þeim sem
lifðu af bardagann. Þá gilti að hafa
græðandi jurtir við höndina. Valurtin
var ein af þeim og dregur reyndar
sitt norræna nafn af þessu notagildi.
Það hefur meira að segja haldið sér
í íslensku og þótt Danir kalli hana
nú „kulsukker“ þá eiga þeir enn til
valurtarheitið einhvers staðar í göml-
um bókum.
Tuttugu og fimm til þrjátíu
tegundir
Í ættkvíslinni Symphytum, sem kall-
ast einu nafni valurtir á íslensku eru
á milli 25–30 skrásettar og viður-
kenndar tegundir. Ættkvíslarheitið
er dregið af grísku sagnorði yfir að
sameina eða græða saman. Mörkin
á milli tegunda eru oft óljós vegna
þess hve auðveldlega þær víxl-
frjóvgast hver með annarri þar
sem vaxtarsvæði þeirra skarast.
Ættkvíslarheitið er dregið af grísku
sagnorði yfir að sameina eða græða
saman. Flestar koma þær við sögu
grasalækninga, hver á sínu svæði.
Og það var ekki lítið sem valurtirnar
gátu áorkað.
Þrjár bera af
En eiginlega eru valurtir grasalækn-
anna bara þrjár. Sú sem köll-
uð hefur verið „hin eiginlega“
valurt, Symphytum officinale,
kemur upphaflega úr héruð-
um Suðausturevrópu. Til hennar
hefur verið vísað frá upphafi rit-
aðrar lækna- og ræktunarsögu.
Önnur valurtartegund, Symphytum
asperum, sem kölluð hefur verið
burstavalurt á íslensku kemur frá
Vesturevrópu. Báðar hafa þær verið
fluttar til og ræktaðar í lyfjajurta-
görðum gömlu apótekaranna. Þar
sem þær hittust æxluðust þær gjarna
saman svo að upp kom blendings-
tegundin benjavalurt, Symphytum ×
upplandicum.
Hún var fyrst greind í Upplöndum
Svíþjóðar og dregur hið fræðilega
viðurnefni sitt af því. Þessi blending-
ur er næsta fjölbreytilegur og á í
vandræðum með að halda sér við
sem sjálfstæð tegund. Þar sem báðar
foreldrategundirnar vaxa í námund-
anum víxlfrjóvgast hún með þeim
svo að afkomendurnir fá þá svip
þess foreldris sem lagði frjóduft-
ið til. Benjavalurtinni gengur ekki
vel að frjóvga sjálfa sig og mynda
þroskuð fræ. Þó kemur það fyrir en
er samt nokkuð einstaklingsbundið.
Flestar benjavalurtir eru því ófrjóar
og dreifast ekki út með fræi.
En allir litlir rótarbútar sem losna
frá rótinni hafa getu og hæfileika til
að mynda brum og blöð og verða
þannig að sjálfstæðum plöntum. Því
getur verið erfitt að losna við benja-
valurtina þaðan sem hún hefur einu
sinni náð að koma sér fyrir. Annars
er það regla að allar valurtartegundir
þroska mikið fræ og sá sér út meira
en flestum þykir góðu hófi gegna.
Þessar þrjár eru enn ræktaðar
sem lyfjajurtir. Þær tvær fyrri samt
frekar lítið vegna þess hve óvið-
ráðanlegar þær eru með fræfallinu.
Bastarðurinn á milli þeirra, benja-
valurtin, hefur nú orðið víðast hvar
yfirhöndina, þrátt fyrir ódauðleika
rótanna. Allar búa þær því sem næst
yfir sömu eiginleikum.
Benjavalurtin ríkir á Íslandi
Benjavalurtin er sú valurtanna sem
helst má rekast á hér í görðum.
Valurtin, burstavalurtin og líklega
tvær til þrjár tegundir annara valurta
hafa borist hér í garða en eru ekki
algengar. Benjavalurtin er hinsvegar
nokkuð algeng. Einkum hjá fólki
sem ræktar hana sem „áburðar-
verksmiðju“, og iðkar ræktun án
verksmiðjuáburðar.
Fáar plöntur eru betur til þess
fallnar né bjóða upp á aðra eins
ofgnótt af næringarefnum í moltu-
gerðina eða jafnvel í áburðarlög
sem nota má blandaðan við
vökvunarvatnið í hvert sinn sem
matjurtirnar eru vökvaðar. Kem að
því í lokin.
Allra meina bót
Elstu heimildir um valurtir sem
græðijurtir og vitað er um eru frá
því um árið 400 fyrir okkar tíma-
tal. Grikir og Rómverjar notuðu
valurtina til að stöðva blæðingar
úr svöðusárum, lækna lungnakvilla,
græða sár og beinbrot. Blöð og
rót voru tekin og gerður úr þeim
grautur sem lagður var yfir ljót sár.
Til inntöku voru gerð seyði sem áttu
að vinna á öllum innanmeinum.
Valurtarbakstrar, smyrsl og seyði
sem lögð voru við húð voru talin
ráða bót á skinnákomum, endurnýja
og mýkja húðina.
Enski læknirinn Nicholas
Culpeper tók saman mikið rit um
læknisdóma sina og lyfjagrös árið
1789 og segir þar um valurtina –
lauslega þýtt, stytt og staðfært:
„Hún heyrir undir plánet-
una Satúrnus og stjörnumerkið
Steingeit. Valurtin hjálpar þeim sem
spýta blóði eða hafa blóðug þvag-
lát. Rótin, soðin í víni sem síðan er
drukkið, hjálpar við innvortis mein-
um, lagar krönk lungu, losar slím og
eflir blóðflæði til höfuðsins. Slær
á magaólgu og kviðverki kvenna á
klæðaföllum. Síróp gert af rótinni
gagnast við flestum slæmskum, inn-
vortis sem útvortis. Mauk af rót eða
blöðum stöðvar blóðflóð samstund-
is og flýtir fyrir að sár grói. Valurtin
er svo samandragandi að skurðir og
beinbrot gróa fljótt og vel.“
Og svo segir Culpeper að plant-
an sé það kröftug að kjötbitar
sem soðnir eru með valurt hlaupi
saman og verði að heilu stykki á
ný. Svo mikil var trúin, en varla
hefur Culpeper sannreynt þessa
kenningu!
Nútíminn
Enn þann dag í dag eru gerðar ýmiss
konar heilsuvörur úr valurtunum.
Hún er notuð af grasalæknum og
hómópötum. Úrval afurðanna er
nokkuð umfangsmikið og töluverðar
rannsóknir hafa verið gerðar á gildi
valurta sem lækningajurta. Víst er
um að þær innihalda hátt hlutfall af
alkólíðanum allantóníni og nokkurt
magn af sútunarsýru. Hvort tveggja
hefur mildandi, samandragandi og
græðandi áhrif á sár sem gengur illa
að gróa.
Auk þess er urmull annarra efna
í plöntunum. Þau er ekki hægt að
sundurliða hér. En hafið hugfast að
nota ekki plöntur, þótt þær séu mjög
rómaðar lækningajurtir, til lækninga
án samráðs við lækna. Og inntaka á
valurt er sögð geta haft mjög slæm
áhrif á lifur og nýru. Í sumum lönd-
um er jafnvel bannað að selja valurt-
arafurðir til inntöku vegna þess.
Áburðarverksmiðjan
Þótt valurtin sé kannski ekki alveg
áreiðanleg sem lækningajurt, fyrir
leikmenn að minnsta kosti, þá er
verðmæti hennar sem hráefni í „líf-
rænar” áburðarblöndur mjög hátt.
Valurtina er auðvelt að rækta. Hún
kýs gjarna frjóa jörð, jafnan raka og
þolir vel að standa í skugganum.
Auðveldast er að fjölga henni með
rótarbútum eða skiptingu.
Ef fara á út í valurtarækt af fullri
alvöru með áburðarframleiðslu í
huga duga tvær til þrjár plöntur fyrir
meðalstóran garð. En í stórrækt þarf
um það bil 100 plöntur í 100 fermetra
reit til að framleiða áburðarefni í eins
hektara akur. Valurtina er hægt að
verka í moltu og sem áburðarlög.
Í fyrra tilvikinu er valurtin skorin
og lögð í moltubinginn, söxuð eða
marin eftir getu og síðan blandað
saman við annað efni í honum. Þar
er valurtin fljót að moltna niður og
sameinast moltunni sem fyrir er.
Þurrkuð, mulin valurt er líka góð
sem moltuhvati.
Áburðarlögur
En vinsælla og jafnvel hagstæðara
er að gera lög úr valurtinni. Þá eru
plönturnar marðar og troðið þétt
ofan í hæfilega stór ílát, ef menn
eru stórhuga þá má gjarna nota stór
pallettuker, dunka eða tunnur með
víðu opi að ofan og útbúnaði fyrir
afrennsliskrana næst botninum. Eins
miklu af valurt og hægt er troðið í
ílátið og síðan fyllt á með vatni. Þetta
er svo látið standa utandyra þar sem
sól nær að skína á. Lokið er haft laus-
lega á eða einhver dula sem ver ílátið
gegn regni lögð yfir.
Eftir nokkra daga byrjar gerjun í
ílátinu. Valurtin rýrnar og safinn úr
henni sameinast vatninu. Vökvinn
verður dökkur og illa þefjandi, minn-
ir kannski mest á úrhrærða mykju.
Þegar þetta byrjar að gerast, það
tekur oftast 14-20 daga eftir lofthita,
má láta safann renna undan. Hann
er síðan blandaður til helminga eða
jafnvel 1:10 með vatni sem svo er
vökvað með eins og við á með reglu-
lega áburðargjöf.
Valurtarlögurinn inniheldur inni-
heldur áburðarefnin NPK nokkurn
veginn í hlutföllunum 1,8-0,5-5,3
auk allra snefilefnanna, stórra sem
smárra og urmuls af góðkynja
örverulífi. Hægt er að bæta valurt
og vatni í ílátin eftir því sem lækkar
í þeim. En vegna hættu á að ílátin
springi eða rifni í frostum er ekki
gott að hafa þau full undir vetur. Að
lokinni uppskerutíð er því betra að
tæma ílátin, vökva þá gjarna leginum
yfir gróðurbeðin og setja gumsið í
moltuna.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Hin volduga valurt
Benjavalurt í blóma.
Valurt – gróskuleg og hrjúf blöð.
VÍS ÚTBOÐ
McHale Fusion 3 rúllubindisamstæða
Tækið er staðsett í Þjónustumiðstöð VÍS við Smiðshöfða 3
í Reykjavík og er þar til sýnis milli kl. 8.30 og 16.30 virka daga.
Útboð stendur til kl. 13 þann 25. júlí 2016.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum skal skilað á útboðsvef VÍS
utbod.vis.is