Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Veröld í vanda
Umræða um umhverfismál á
breiðum grunni sem höfðar til
almennings hér á landi hefur
aldrei náð að verða kröftug og því
full ástæða til að fagna hverju nýju
blómi sem þar springur út. Á enga
held ég sé hallað þó að tvö nöfn
séu nefnd sem merkisberar þessar-
ar umræðu hérlendis. Hjörleifur
Guttormsson á ritvellinum og
Stefán Gíslason í útvarpi.
Fyrir áratug hóf Bók mennta-
félagið útgáfu á sérstökum bóka-
flokki um þessi mál. Þessi útgáfa
hefur verið undir styrkri stjórn
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Í ársbyrjun voru komnar út fjórar
bækur í þessum bókaflokki, hver
annarri meiri úrvalsrit.
Nú í sumarbyrjun kom síðan
fimmta bókin út. Heitir hún Veröld
í vanda og er höfundurinn Ari Trausti
Guðmundsson. Bókin er allumfangs-
mikil, fast að 300 síður. Um þessa
bók er ætlun mín að fara örfáum
orðum hér á eftir.
Endurvakið bókarform
Ari segist með þessari bók gera til-
raun til að vekja nýtt bókarform hér á
landi, umræðubækur (debattböker).
Þetta bókarform á sér hins vegar
áratuga sögu á Norðurlöndunum og
hefur slík bókaútgáfa og umræð-
ur í kjölfar þeirra oft haft talsvert
mótandi áhrif á þjóðfélagsumræðu
í þessum löndum. Mögulega hafa
slíkar bækur ekki náð lestri hér
vegna þess að Íslendingum er tam-
ast að taka flestar stærri ákvarðanir
sínar með hundasundsaðferðum en
ekki grunnskoðun málanna. Frá tíma
okkar Ara og Trausta í Noregi um
og uppúr 1970 þegar slík bókaútgáfa
blómstraði þar mjög má minna á
bækur Georg Borgström, umhverf-
is- og heimspekirit Arne Næs og
MIT skýrsluna svo aðeins séu nefnd
rit sem varanlega mótuðu upphaf
víðtækrar umhverfisumræðu þar í
landi. Tækist að koma á slíkri bóka-
útgáfu hérlendis yrði það veruleg
þjóðarbót.
Umhverfisumræða í víðu
samhengi
Í bókinni fer Ari mjög vítt um völl.
Víkur nánast að umhverfisumræðu á
flestum sviðum þjóðfélagsins. Hann
skrifar þarna mjög læsilegan stíl og
skilur lesendur eftir með óteljandi
umhugsunarefni að lestri loknum.
Að mínu viti er efnismeðferðin hins
vegar alltof breytileg. Þegar verst
lætur fæ ég grun um að hann hafi
gert lítið meira en hresst upp á eitt-
hvert gamalt handrit að sjónvarps-
þætti sem hann hefur áður flutt en
ekki tímt að henda. Á miklu fleiri
stöðum er umfjöllun hins vegar mjög
skipuleg og Ari miðlar gríðarlega
mikilli þekkingu til lesenda. Í heild
þykja mér efnistökin í fyrri hluta
bókarinnar snöggtum lakari en í
síðari hlutanum þar sem Ari nær
víða frábærum sprettum að mínu
viti. Ástæða er til að taka fram að
ég tel mig þekkja það til Ara og fyrri
skrifa hans og veit að þegar honum
tekst best upp fara fæstir í fötin hans
í þeim efnum. Með það í huga er
þetta skrifað. Vonbrigðin með kafla
þar sem ég veit að hann hefði getað
gert miklu betur verða því talsverð.
Landbúnaður og sjávarútvegur
Af fjórtán köflum bókarinnar helgar
hann hvor sinn kaflann landbúnaði
og sjávarútvegi. Að mínu viti hefði
hann betur látið það ógert. Það er
vegna þess að báðar þessar greinar
byggja á samspili manns og nátt-
úru. Að geta gefið nokkurt réttmætt
yfirlit um umhverfismál í tengslum
við þessar umfangsmiklu greinar
getur því aldrei orðið nema kák með
örstuttum greinum. Til þess þyrfti
fólk sem hefði óvanalega yfirsýn,
yfirsýn sem Ara greinilega vantar
að hluta. Vegna mjög takmarkaðrar
umræðu um umhverfismálin í tengsl-
um við þessar undirstöðugreinar er
mér til efst að nokkur einn einstak-
lingur hérlendis búi yfir slíkri þekk-
ingu. Henni verður aðeins komið
á svið með samvinnu fleiri aðila.
Það sem til viðbótar hefur til þessa
háð því hvað mest að slík umræða
þróaðist hér á landi er sú árátta
alltof margra mikilla sérfræðinga á
ákveðnum þröngum sviðum innan
þessara greina að fara að fimbul-
famba og álykta langt út fyrir sitt
sérsvið um efni innan greinanna sem
þeir oftast upplýsa um leið að þeir
hafa mjög takmarkaða þekkingu á.
Frá þessum óvana verða menn að
vinna sig til að umræða geti skilað
árangri.
Loftslagsmál og fólksfjölgun
Þó að Ari fari vítt um völl í þessari
bók sinni eru viss meginatriði
sem mér finnst hann horfa nánast
alveg framhjá eða skauta létt yfir
áhrifin af. Þarna á ég við annars
vegar loftslagsmálin og hins vegar
fólksfjölgunarvandamálin. Það er
áreiðanlegt að við þurfum ekki að
lifa nema rúman áratug enn þar til
loftslagsmálin verða orðin hinn ráð-
andi málaflokkur heimsumræðunn-
ar. Að horfa nánast alveg fram hjá
því hve fólksfjölgunarvandamálið
er enn stór þáttur á mörgum heims-
svæðum er viss barnaskapur. Þessir
tveir þættir í sameiningu munu
innan áratugar leiða af sér flótta-
mannastrauma þar sem þeir sem
valdið hafa víða áhyggjum á síðustu
misserum eru barnaleikir í saman-
burði það sem þá verður. Munum
það að flest umhverfisvandamálin
þekkja ekki landamæri. Að ræða
landbúnaðar- og sjávarútvegsmál
án tengsla við áhrif þessara tveggja
þátta saman er ofureinföldun.
Fæðuöflun mannkyns á næstu ára-
tugum er ekki horfið vandamál, það
er mikill misskilningur.
Eitt af því sem Ari gerir nokkuð
af er að skýra hið tiltölulega
flókna ákvarðatökuferli sem
Íslendingum hefur tekist að byggja
upp í mörgum málaflokkum sem
tengjast umhverfismálum þó að
dugnaðinn til að vinna að sama
skapi að slíkum málunum skorti
yfirleitt alltaf. Nú játa ég mig
vanvita í slíkum stofnanaflækjum.
Það vakti því mikla undrun að sjá
Ara ræða um RALA á síðu 72 í
bókinni. Stofnun sem borin var
til grafar fyrir meira en áratug.
Vonandi er þetta undantekning
því að nokkuð dregur það úr gildi
upplýsinganna sem hann telur sig
þarna draga saman sé mikið um
hliðstæðar villur. Vanþekking mín
á stofnanauppbyggingu kerfisins
gerir mig vanhæfan um að meta
það.
Nokkrar misráðnar nýjungar
Í bókinni eru nokkrar nýjungar hjá
Ara sem gera bókina frábrugðna
mörgum öðrum bókum.
Ljóðakveðskap sínum dreifir hann
á milli bókarkafla og gefur það
bókinni ferskan blæ því að margt
af því sem Ari gerir á því sviði er
lipurlega gert þó að vegurinn til
Nóbelsverðlauna á því sviði sé
áreiðanlega langur.
Önnur nýbreytni er að hann
kallar ýmsa þekkta aðila víða að
úr þjóðfélaginu til að bregðast
við hverjum kafla bókarinnar.
Þetta eru yfirleitt snotrir stílar
á bilinu 1–2 síður og meirihluti
þeirra frekar pappírssóun (aukinn
umhverfisvandi) en að þeir bæti
nokkru við bókina. Á því eru samt
undantekningar. Sigrún Helgadóttir
skrifar frábæran pistil eftir 11.
kaflann og það á einnig við um pistil
Guðmundar Halldórssonar eftir 6.
kafla. Ástæða er líka til að benda
lesendum á að lesa pistilinn á eftir
13. kafla til að sannreyna hverskonar
nátttröllatrú er enn að finna á meðal
hluta fjármálaspekúlanta hér á landi.
Ari nefnir einnig í formála að
hann hafi ákveðið tvær nýjungar í
þessari bók sinni, báðar að mínu viti
jafn afkáralegar og skemma bókina
umtalsvert að mínu viti.
Annað er það að birta engar
töflur í bókinni. Allir sem lesið
hafa eitthvað um þessi efni þekkja
það að margoft þarf að bera saman
eða skoða í samhengi margskonar
niðurstöður mælinga og rannsókna.
Yfirlit um slíkt er alla jafna lang-
samlega best að lesa í töflum. Slíkar
upptalningarunur í bókartexta eru
oftast langar og leiðinlegar og spilla
honum oftar en ekki.
Hitt atriðið er að hann birtir
engar skýringarmyndir með text-
anum. Hvar hann hefur fengið þessa
fráleitu hugmynd væri fróðlegt að
vita. Hinir stóru ferlar í náttúrunni
eru mjög margir jafnvægis- eða
hringferlar og þeir verða held ég
flestum miklu skýrari á myndrænu
formi en löngum texta.
Þó að eitt og annað hafi verið að
bókinni fundið, sem er enn sárara
að sjá í ljósi þess hvaða snillingur
hélt um pennann, hlýt ég að hvetja
alla lesendur til að lesa þessa bók.
Að heildargæðum stenst hún ekki
samanburðinn við fyrri bækur
bókaflokksins. Hún er hins vegar
stútfull af upplýsingum og spurn-
ingum. Þess vegna á hún að geta
orðið frjósamur umræðugrunnur í
þessum mikilvægasta málaflokki
samtímans. Það mun það sem henni
er öðru fremur ætlað.
/ Jón Viðar Jónmundsson
Út er komin glæsileg bók undir nafn-
inu Fjöllin í Grýtubakkahreppi.
Höfundur er Hermann Gunnar
Jónsson, sjómaður á Grenivík, en
Bókaútgáfan Hólar er útgefandi.
Þetta er föngulegt rit þar sem lýst
er ferðum Hermanns á nánast
alla fjallatinda og fjallaskörð á
Gjögraskaga. Hermann hefur með
þessu ritverki opnað fyrir mönnum
bæði stórgerða og smágerða fegurð
óbyggðanna austan Eyjafjarðar og
vestan Flateyjardals. Þessu hlut-
verki gegna ekki síst 259 fallegar
og vel valdar ljósmyndir. Efni bók-
arinnar er tvískipt. Annars vegar
lýsir Hermann fjallaverkefni sínu
er hann í landlegum hóf að ferð-
ast um fjöllin í heimabyggð sinni.
Þetta er eins konar dagbók um ferðir
Hermanns síðastliðin ár. Hins vegar
eru nákvæmar gönguleiðalýsingar
á fjöllin á svæðinu, oft aðrar leiðir
en þær sem lýst er í fjallaverkefninu.
Öllum þessum landlýsingum fylgja
mjög góð landakort með örnefn-
um og einnig GPS-upplýsingar um
vegalengd og hækkun leiðanna.
Texti Hermanns er lipur og fellur
vel að myndum og kortum. Hann
hefur með þessu ritverki skipað sér
í raðir eyfirskra rithöfunda. Það er
merkilegt að fylgjast með því hvernig
sjómaðurinn stígur á land og hoppar
síðan á hæstu fjallatoppana. Maður
hefði fremur búist við að hann héldi
sig við ströndina og láglendið, en
Hermann hefur greinilega viljað
takast á við erfiðara og meira ögr-
andi verkefni og hann leitaði upp
brekkurnar til fjalla. Sjómaðurinn
Hermann Gunnar frá Hvarfi í
Bárðardal breytist þá í landkönnuð
og rithöfund. Þetta minnir á það er
verkamaðurinn Tryggvi Emilsson
á áttræðisaldri lagði frá sér hakann
og skófluna, skrifaði æviminningar
og varð skyndilega eftirtektarverður
rithöfundur. Á sama hátt afklæðist
Hermann á besta aldri sjóklæðunum,
reimar á sig gönguskóna, setur upp
bakpokann, hverfur til fjalla og breyt-
ist í landkönnuð og rithöfund.
Við Hermann þekkjum vel þá
gleðitilfinningu sem það getur veitt
manni að standa á tindinum og horfa
yfir fegurð landsins til allra átta. Oft
hugsar maður til þess með eftirsjá að
maður sé líklega einn að njóta stór-
kostlegrar fegurðar margra ferkíló-
metra – fleiri mættu vera á fjöllum og
njóta fegurðarinnar. Reyndar kemur í
ljós við lestur bókarinnar að Hermann
hefur verið einn í flestum ferðunum
sem hann lýsir. Það er kannski ekki
til fyrirmyndar, en hefur sem betur
fer gengið slysalaust
Þessa bók þurfa allir íbúar
Grýtubakkahrepps að eignast eða
glugga í. Hún á reyndar erindi við
miklu fleiri en íbúa þess svæðis vegna
þess að lýsingarnar gagnast ekki síður
aðkomumönnum sem eru ókunn-
ugir svæðinu og vilja skoða landið
gangandi, og þeim fer ört fjölgandi.
Við væntum þess að Hermann láti
ekki staðar numið hér heldur skrifi
meira um fjöll og firnindi af sömu
frásagnargleði, einlægni og áhuga og
hann hefur gert í þessari nýútkomnu
bók.
Hermann Gunnar og Bókaútgáfan
Hólar: Til hamingju með fallegt bók-
verk.
/ Bjarni E. Guðleifsson
Fjallgöngur á Gjögraskaga
Mynd / Bjarni E. Guðleifsson
Ný bók að vestan fyrir erlenda ferðamenn:
Hvernig eiga erlendir gestir
að haga sér á Íslandi?
Ný bók á ensku eftir séra Vigfús
Ingvar Ingvarsson á Egilsstöðum,
er komin út hjá Vestfirska
forlaginu. Nefnist hún Travelling
Safely in Iceland - Hearing the Land
Speak. Í henni er margvíslegur
fróðleikur fyrir erlent ferðafólk.
Áhersla er lögð á sérstöðu Íslands
sem ferðamannalands og þær
áskoranir sem fylgja því að
ferðast um landið – breytileg og
stundum óblíð veðrátta, vegakerfi
af misjöfnu tagi og ýmsar hættur
og hindranir. Mörg alvarleg slys á
erlendum ferðamönnum hérlendis
tengjast einmitt ókunnugleika
á aðstæðum. Höfundur hefur
nokkuð fengist við leiðsögn
erlendra ferðamanna og gert sér
far um að tala við þá og heyra
sjónarmið þeirra
Hrífandi náttúra Íslands er kynnt
og leiðbeint er um umgengni við
hana og grein gerð fyrir nokkrum
sérkennum íslenskrar menningar
og mannlífs. Í lokakaflanum er svo
fjallað um íslenskt mál. Þar eru
allmörg orð eða orðstofnar sem koma
oft fyrir í örnefnum, útskýrð í máli
og myndum. Dæmi: Lækjargata.
Hvers vegna ber gatan það nafn? Þá
er fjallað um ýmis skilti við veginn.
Auk margvíslegra hagnýtra
upplýsinga fyrir ferðafólk er í
bókinni leitast við að fræða um tengsl
náttúru, þjóðar og tungu hérlendis.
Gamansamar og lýsandi teikningar
eftir Ómar Smára Kristinsson greiða
efninu leið til lesenda.
Í stuttu máli: Hvernig eiga erlendir
gestir að haga sér á Íslandi? Hagnýt
ráð og leiðbeiningar á einu bretti.
Bók sem líklega á sér ekki hliðstæðu
á íslenskum bókamarkaði í dag. Í
henni er að finna í samþjöppuðu
formi nánast allt sem erlendur
ferðamaður þarf að vita um Ísland
áður en hann leggur land undir fót.
Hér er ekki fjallað um peninga.
Né hvernig á að græða sem mest á
ferðamönnunum. Sennilega hefðu
margir Íslendingar einnig gott af að
kynna sér þessa handhægu bók.
Bækur