Bændablaðið - 21.07.2016, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Fregnir úr Ólafsdal:
Ætla að byggja upp fyrir 400
milljónir króna í Ólafsdal
Framundan eru miklar fram-
kvæmdir Minjaverndar við
endurbyggingu flestra húsa sem
voru í Ólafsdal á blómatíma
Ólafsdalsskólans, í kringum 1900.
Þann 19. ágúst síðastliðinn
var gengið frá samkomulagi
á milli fjármálaráðuneytisins,
Ólafsdalsfélagsins og Minjaverndar
um þá endurreisn. Alls munu endur-
byggðar 8–9 byggingar sem voru í
Ólafsdal. Þar var fastmælum bundið
að sögu staðarins og menningarminj-
um verði áfram gerð góð og aukin
skil og mun Ólafsdalsfélagið gegna
þar lykilhlutverki. Jafnframt verður
frjálst aðgengi almennings tryggt,
enda var Ólafsdalsskólinn þjóðskóli í
þeim skilningi að þangað komu nem-
endur hvaðanæva að af landinu og
áhrif hans voru mikil á landsvísu.
Þær hugsjónir og trú á land og lýð
sem endurspegluðust í allri starfsemi
Ólafsdalsskólans eiga nú mikið erindi
við íslensku þjóðina. Er stefnt að því
að endurreisn Ólafsdals verði lokið
fyrir 140 ára afmæli Ólafsdalsskólans
árið 2020. Áætlaður kostnaður er um
400 milljónir króna. Ólafsdalsfélagið
var stofnað í Ólafsdal í júní 2007.
Félagið hefur fengið miklu áorkað
með stuðningi fjölmargra aðila, auk
mikillar sjálfboðavinnu félagsmanna.
Landmótun ehf. vinnur að
deiliskipulagi á Ólafsdal fyrir
Minjavernd vegna þeirrar upp-
byggingar sem fram undan er á
húsunum sem voru í Ólafsdal um
1900 og annarrar nýtingar. Þá er
hafin fornleifaskráning á fyrirhug-
uðu framkvæmdasvæði í Ólafsdal.
Birna Lárusdóttir, fornleifafræðing-
ur hjá Fornleifastofnun Íslands,
hefur umsjón með skráningunni.
Munu framkvæmdir fara í fullan
gang á næsta ári. Þá er væntan-
leg skýrsla um ræktunarminjar í
Ólafsdal sem unnin er af prófessor
Bjarna Guðmundssyni og Ragnhildi
Sigurðardóttur umhverfisfræðingi.
Þá er nú haldið áfram með vinnu
við fræðslustíg og kortlagningu
gönguleiða út frá Ólafsdal o. fl. Til
að tryggja heilsársstarfsemi í Ólafsdal
og nýta þær fjárfestingar sem lagðar
verða í staðinn er síðan mikilvægt
að bæta veginn inn Ólafsdalshlíðina
samhliða uppbyggingunni, um 6 km
vegalengd.
Ólafsdalshátíð haldin 6. ágúst
Ólafsdalshátíðin verður haldin í
níunda skipti 6. ágúst, í annað skipti á
laugardegi. Aðaldagskráin verður frá
kl. 13 til 17. Lína Langsokkur mætir
á svæðið til að skemmta börnum á
aldrinum 0–99 ára og Drengjakór
Íslenska lýðveldisins tekur lagið.
Guðrún Tryggvadóttir kynnir sýn-
ingu sína, „Dalablóð“, lífrænt vottað
Ólafsdalsgrænmeti verður til sölu,
glæsilegt Ólafsdalshappdrætti og
vandaður handverks- og matarmark-
aður. Ókeypis er inn á hátíðina að
vanda og eru allir velkomnir að sögn
skipuleggjenda. Dagskráin verð-
ur kynnt nánar á nýjum vef: www.
olafsdalur.is og á www. facebook.
com/Olafsdalur Opið er í Ólafsdal
alla daga frá kl. 12 til 17 fram til 14.
ágúst. Kaffi, vöfflur, Erpsstaðaís o.fl.
í boði.
Umsjónarmenn í Ólafsdal 2016
Hjónin Elfa Stefánsdóttir og Haraldur
Baldursson verða áfram staðarhaldar-
ar fyrir Ólafsdalsfélagið í Ólafsdal í
sumar en þau koma úr Hafnarfirði.
Elfa var m.a. forstöðumaður félags-
miðstöðvarinnar Öldunnar en er
menntaður gönguleiðsögumaður
frá Leiðsöguskólanum í Kópavogi.
Haraldur er tæknifræðingur. Hafa
má samband í síma 821 9931 og á
elfa@hbt.is
Um 400 félagar
Félagar í Ólafsdalsfélaginu eru
nú á fjórða hundrað, enda afar
spennandi að eiga hlutdeild í ævin-
týrinu sem fram undan er. Þeir
sem eru áhugasamir um að ganga í
Ólafsdalsfélagið geta haft samband
við Rögnvald Guðmundsson formann
Ólafsdalsfélagsins rognvaldur@rrf.is
eða í síma 693-2915. Þá má geta þess
að ný heimasíða Ólafsdalsfélagsins
er www. olafsdalur.is hefur nú verið
opnuð.
Sjálfboðaliðar í garðvinnu. Fjögur ár eru síðan Ólafsdalsgrænmetið fékk
lífræna vottun frá vottunarstofunni Túni. Í vor fór vaskur hópur um 20 karla,
kvenna og barna í Ólafsdal og setti niður í garðinn. Þar er meðal annars
ræktað grænkál, blómkál, rauðkál, brokkólí, rófur og hnúðkál.
Myndir / Rögnvaldur Guðmundsson
Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar:
Reykhús ytri og
Laugarborg hlutu
viðurkenningar
Ábúendur að Reykhúsum ytri
og staðarhaldari í Laugaborg
tóku á móti umhverfisverð-
launum Eyjafjarðarsveitar
fyrir tímabilið 2015 til 2017 nú
nýverið. Umhverfisverðlaun
Eyjafjarðarsveitar eru afhent
annað hvert ár. Markmiðið er
að sýna þakklæti fyrir lofsvert
framtak til fegrunar umhverf-
isins og auka umhverfisvitund
íbúa sveitarfélagsins.
Hákon Bjarki Harðarson, for-
maður umhverfisnefndar, afhenti
verðlaunin en þau hlutu að þessu
sinni Anna Guðmundsdóttir og
Páli Ingvarsson á Reykhúsum ytri
og hins vegar Laugarborg vegna
framlags þeirra til umhverfismála
og fegrunar umhverfis.
Rækta jólatré
Anna og Páll hafa í áranna rás
látið skógrækt mjög til sín taka
og hafa gengið vasklega fram á
þeim vettvangi. Þau hafa aflað sér
mikillar þekkingar á skógrækt,
meðal annars með því að sækja
fjölmörg námskeið. Þau hafa með
margvíslegum hætti tekið þátt í
starfi skógræktarfélaga auk þess að
hafa kappkostað að gera skógar-
svæðið í landi sínu aðgengilegt
með grisjun og stígalagningu.
Meðal áhugaverðustu verkefna
þeirra þessi misserin er jólatrjá-
rækt og má jafnvel gera ráð fyrir
að skógrækt Reykhúsahjóna nái
inn í stofur Eyfirðinga þegar á
næstu jólum.
Einstök natni og metnaður
Eggert Eggertsson, staðarhaldari
að Laugarborg, hefur undanfarin ár
sýnt einstaka natni og metnað við
fegrun og viðhald Laugarborgar
svo tekið er eftir. Laugarborg er
áberandi hús í sveitarfélaginu þar
sem það stendur og mikilsvert
fyrir umhverfið að sómi sé að
byggingunni. Tónleikahald hefur
löngum verið helsta hlutverk
Laugarborgar, en nú hefur húsið
í vaxandi mæli orðið eftirsóttara
fyrir hvers kyns samkomur og
veisluhöld, svo sem brúðkaup og
fermingar og mikið um að vera
í sumar hjá Eggerti. Ekki er um
að efast að framlag hans er snar
þáttur í betri nýtingu hússins. Því
er umhverfisverðlaunum vel fyrir
komið hjá Laugarborg.
Frá afhendingu viðurkenninga í Eyjafjarðarsveit, frá vinstri eru Ólafur Rúnar
Ólafsson sveitarstjóri, Eggert Eggertsson, staðarhaldari að Laugarborg,
Anna Guðmundsdóttir og Páll Ingvarsson á Reykhúsum ytri og þá Hákon
Mynd af vef Eyjafjarðarsveitar
Til sölu jörðin Gilsá í Breiðdalshreppi
Jörðin með ágætum húsakosti en á
Gilsá hefur verið rekið fjárbú með um
370 fjár gæti verið fleira ef það hent-
ar. Greiðslumark í sauðfé 310,8 ærgildi.
Helstu byggingar eru íbúðarhús frá 1972
heildar stærð 244,7 m2, fjárhús með
áburðarkjallara frá 1965, fjárhús með
áburðarkjallara frá 1978, hlaða, véla og
verkfærageymsla og hesthús. Landstærð
er talin vera um 1600 hektarar og hluti af
því fjalllendi. Tún sem nýtt eru í dag um
28 hektarar. Góður vélakostur. Jörðin nýtur hlunninda af Breiðdalsá um 2.7% einnig
tekjur af leigu vatnsréttinda og hreindýraarðs alls um 1200 þúsund á ári. Sjá nánar á
fasteignamidstodin.is
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is sími 550-3000 eða 892 6000
Ráðunautur í jarðrækt
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni í jarðræktarráðgjöf.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Þátttaka í ráðgjafateymi RML sem sinnir jarðræktarráðgjöf í landbúnaði.
• Vinna við almennar jarðræktar- og áburðarleiðbeiningar.
• Ráðgjöf í jarðvinnslu, framræslu og tækni.
• Þróun og sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML.
• Önnur verkefni s.s. líkanagerð í excel
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Þekking eða framhaldsmenntun á sviði jarðræktar og jarðvinnslu.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góðir samskiptahæfileikar.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt
land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins
www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri
klk@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is starfsmannastjóri.