Bændablaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2016
Sarafia – heklað teppi
HANNYRÐAHORNIÐ garn@garn.is
Þetta teppi er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Ég hef heklað svo mörg
svona teppi að ég hef ekki tölu á
því lengur og útkoman alltaf jafn
falleg.
Garn: Kartopu Basak frá Garn.is
Litur A: Ljósbrúnn (K855) - 2 dokkur
Litur B: Dökktúrkís (K520), Túrkís (K515),
Eplagrænn (K442) - 1 dokka af hverjum lit.
Heklunál: 3,5 mm
Stærð: ca. 80x100 cm
Skammstafanir:
sl. = sleppa, L = lykkja, LL = loftlykkja, LL BIL =
loftlykkjubil, KL = keðjulykkja, FP = fastapinni,
ST = stuðull.
Ferningur:
Heklið 48 ferninga. Í þessu teppi eru 16 ferningar
með hverjum lit. Þetta er einungis viðmið og er
að sjálfsögðu hægt að leika sér með liti og stærð.
Byrjið með lit A. Heklið 5 LL, tengið saman í hring
með KL.
1. umf: Heklið 3 LL (telst sem 1 ST), 2 ST inn í
hringinn, 3 LL, *3 ST, 3 LL* endurtakið frá * að
* 2x til viðbótar, lokið umf með KL í þriðju LL af
þeim þrem sem gerðar voru í byrjun umf.
Slítið bandið og skiptið yfir í lit B.
2. umf: Byrjið í síðasta LL-BILI fyrri umf. Heklið
5 LL (telst sem 1 ST, 2 LL), *sl. 3 ST, [3 ST, 3 LL, 3
ST] allt í næsta LL-BIL, 2 LL* endurtakið frá * til
* 2x til viðbótar. Í síðasta LL-BILIÐ er heklað [3 ST,
3 LL, 2 ST], lokið umf með KL í þriðju LL af þeim
fimm sem gerðar voru í byrjun umf.
3. umf: 5 LL , sl. 2 LL, *1 ST í næstu 3 L, [2 ST, 3
LL, 2 ST] allt í næsta LL-BIL, 1 ST í næstu 3 L, 2
LL* endurtakið frá * til * út umf, lokið umf með
KL í þriðju LL af þeim fimm sem gerðar voru í
byrjun umf.
4. umf: 5 LL , sl. 2 LL, *1 ST í næstu 5 L, [2 ST, 3
LL, 2 ST] allt í næsta LL-BIL, 1 ST í næstu 5 L, 2
LL* endurtakið frá * til * út umf, lokið umf með
KL í þriðju LL af þeim fimm sem gerðar voru í
byrjun umf.
5. umf: 5 LL , sl. 2 LL, *1 ST í næstu 7 L, [2 ST, 3
LL, 2 ST] allt í næsta LL-BIL, 1 ST í næstu 7 L, 2 LL*
endurtakið frá * til * út umf, lokið umf með KL í
þriðju LL af þeim fimm sem gerðar voru í byrjun
umf. Slítið frá og skiptið um lit.
6. umf: Tengið lit A þar sem hætt var í fyrri umf.
Heklið 5 LL , sl. 2 LL, *1 ST í næstu 9 L, [2 ST, 3
LL, 2 ST] allt í næsta LL-BIL, 1 ST í næstu 9 L, 2
LL* endurtakið frá * til * út umf, lokið umf með
KL í þriðju LL af þeim fimm sem gerðar voru í
byrjun umf.
Hekla saman:
Það eru margar leiðir til að hekla þá saman en
mér líkar best við eina fyrir þetta teppi. Leggið
2 ferninga saman á réttunni, heklið KL bara í
aftari hluta L (semsé þann helming lykkjunnar
sem snýr að röngunni).
Heklað utan um:
1. umf: Tengið lit A hvar sem er í teppinu. Heklið
1 LL, 1 FP í sömu lykkju, 1 FP í hverja L, 1-2 FP
í hvert LL-BIL, 3 fp í hvert horn, lokið umf með
KL í fyrsta FP.
2. umf: Heklið krabbahekl allan hringinn. Slítið
bandið og gangið frá endum.
Góða skemmtun,
Inga Þyri Kjartansdóttir
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 9 7
1 2 8 3 9
3 6 5 2
6 1 3 8
9 8 6
5 7 4 2
7 4 9 3
6 4 8 2 7
3 1 5
Þyngst
9 4
7 9 2 6
8 2 3 9 7
5 4 9
8 1
9 5 3
2 5 6 3 4
6 5 9 8
8 1
9 7 4
5 3
1 8 7 2
1 9 2
7 9
4 3 6
6 9 8 4
4 6
2 1 5
4 1
5 6
8 7
3 8
7 2 5
1 9
1
6 9
2 7
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætlar að verða lögfræðingur,
dýralæknir, bóndi og rithöfundur
Jóhanna Engilráð er sjö ára og býr
í Árneshreppi og Reykjavík. hún
heldur upp á margs konar dýr og
finnst skemmtilegasta námsgreinin
í skólanum vera myndmennt.
Nafn: Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Nautsmerkið.
Búseta: Árneshreppur og Reykjavík.
Skóli: Finnbogastaðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Myndmennt.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Mýs,
hundar, kettir, hestar, selir, ísbirnir
og panda.
Uppáhaldsmatur: Blómkálsréttur.
Uppáhaldshljómsveit: FM Belfast
er mjög skemmtileg.
Uppáhaldskvikmynd: Bolt. Hún
fjallar um ofurhund.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
tveggja ára og var með hlaupabólu.
Ég mátti fá ís en mig langaði að hafa
vettlinga á meðan ég borðaði ísinn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi íþróttir og sund.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að verða
lögfræðingur, dýralæknir, bóndi og
rithöfundur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég samdi ljóð
um Sigmund Davíð með vinkonum
mínum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Horfa á fótboltaleik.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór í skemmtilegustu sund-
kennslu heims.
Vantar þig íslenskan lopa?
Álafosslopi - Plötulopi - Léttlopi - Einband - Bulkylopi - Kambgarn
Heimasíðan gefjun.is
býður upp á lopa frá
Ístex á lægsta
fáanlega verði !
Sendum um allt land!
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300