Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 1
10. tölublað 2017 ▯ Miðvikudagur 24. maí ▯ Blað nr. 491 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is 40–43 Norska frárennslis- og holræsa- fyrirtækið Hias býður nú norskum bændum upp á hreinsaðan næringarríkan mannasaur til að bera á tún sín og segja menn að um gull fyrir jarðveginn sé að ræða. Hver og ein manneskja lætur svo mikinn saur eftir sig á lífsleiðinni að sá hinn sami getur útvegað áburð fyrir sína eigin neyslu og er það markmið forsvarsmanna Hias- fyrirtækisins að fólk geti brauðfætt sig sjálft með hundrað prósent endurvinnslu á áburðargjafa. „Niðurstöður frá hreinsunarferli fyrirtækisins er mikill hluti af seyru sem þarf að meðhöndla á ábyrgan hátt og þess vegna verða gæði vör- unnar mikilvæg. Við vinnum að því að öll hin verðmætu næringar- efni sem eru í vörunni komi inn í hringrásina aftur. Lausnin hjá okkur varð hin svokallaða Cambi-aðferð sem byrjað var að vinna eftir fyrir rúmlega 20 árum,“ útskýrir Hans Emil Glestad, efnaverkfræðingur hjá Hias. Fyrirtækið var stofnað árið 1974 til að hreinsa holræsi í nokkrum bæjarfélögum sem fjárfest höfðu í fyrirtækinu. Hreinsa seyru án nokkurra efna Hias er eina hreinsunarstöðin í Noregi sem notar þessa aðferð við að hreinsa seyru. „Með Cambi-aðferðinni mölum við seyruna og hitum upp í 160 gráður með því að blása inn gufu þannig að lífrænir hlutar seyrunnar eru brotnir upp. Þannig gerum við góðan jarðveg til að míkrólífverur í rotnunartönkunum brjóti niður seyruna og breyti henni í hauggas. Á sama tíma hafa 20 mínúturnar í vatnsrofsskiljunni þá þýðingu að allar sjúkdómsvaldandi bakteríur og plöntusjúkdómar drepast. Í lok fer- ilsins nýtist um 38% af seyrunni úr vatninu áður en það er keyrt út sem áburður á lönd bænda. Niðurstaðan úr þessu er að við fáum mjög áhuga- vert og gott viðbótarbætiefni fyrir jörðina sem í gegnum allt ferlið hefur verið fullkomlega sótthreins- að. Þetta náum við að gera án þess að nota nokkur efni í vinnslunni og með þessari aðferð verður fosfórinn eftir í mannasaurnum,“ segir Hans Emil og bætir við: „Saur úr mönnum inniheldur sömu næringarefni og í öðrum áburði en vegna þessa ferils sem efnið er búið að fara í gegnum verður samsetningin í lífmassanum nokkuð lík því sem finnst í áburði sem keyptur er. Það sem seyran hefur fram yfir er að hið líffræðilega innihald hefur mjög svo bætandi áhrif á jörðina.“ Gull fyrir jörðina Nú er svo komið að norskir bændur bíða í röð eftir að geta keypt hreinsaðan mannasaur af fyrirtækinu til að dreifa á tún sín og akra. „Enn sem komið er eru það eingöngu bændur hér í kring sem geta keypt vöruna af okkur, það er að segja frá þeim bæjarfélögum sem eiga hlut í fyrirtækinu. Vegna sótthreinsiaðferðarinnar sem við notum er hægt að dreifa lífmassanum á allar tegundir landbúnaðarlands svo lengi sem hann fer fljótt niður í moldina eftir dreifingu. Núna erum við að framleiða um þrjú þúsund tonn af hreinsuðum mannasaur yfir árið og það eykst með hverju ári,“ útskýrir Hans Emil og segir jafnframt: „Okkur finnst mikilvægt að við nýtum þær náttúruauðlindir sem við höfum og færum þær aftur til baka til jarðarinnar. Mannasaur er næringarríkari en kúamykja og því ekki að nota hann líka? Við segjum hér hjá Hias að þetta sé eins og gull fyrir jörðina og tilvalið fyrir fleiri bæjarfélög og lönd að nýta sér þetta líka.“ /ehg – Sjá nánar á bls. 7 Mynd / Margrét Hugadóttir Norskir bændur bíða í röðum eftir mannasaur á túnin sín sé næringarríkari áburður en kúa mykja. Mynd /ehg Vegna sótthreinsiaðferðarinnar sem saurinn er hægt að dreifa honum á allar tegundir landbúnaðar lands. Nýjar búfjártölur MAST: Nautgripir aldrei fleiri Samkvæmt nýjum búfjártölum Búnaðarstofu Matvælastofnunar 2016–2017, þá telst búfé landsmanna nú vera 665.386 gripir auk 358.979 alifugla. Það eru samtals 1.024.365 ferfætlingar og fiðurfénaður. Af þessum fjölda eru 80.024 nautgripir á 645 búum. Þar af eru 26.347 þúsund mjólkurkýr og 2.176 holdakýr. Hafa nautgripir aldrei verið eins margir í landinu og nú. Sauðfé á fóðrum telst vera 475.893 skepnur á 2.481 býli. Samkvæmt nýjustu tölum Búnaðarstofu Matvælastofnunar, sem líka má sjá á vefsíðu Data Market, voru hross frá hausti 2016 til vors 2017 talin vera 67.186 á 2.470 búum. Árið 2012 voru þau hins vegar talin 77.380 en voru flest 80.582 árið 1996. Svín eru 3.510 talsins á 19 búum og þá er aðeins verið að tala um fullorðnar gyltur og gelti, en ekki grísi. Síðan eru 38.773 loðdýr, þ.e. fullorðnir högnar og læður, á 39 loðdýrabúum. Að auki teljast alifuglar landsmanna vera 358.979 á 469 búum og þá eru 1.188 geitur í landinu. /HKr. – Sjá nánar á bls. 2 og 4 í baráttu gegn sýklalyfjaónæmi 8 Hvað getur Ísland gert í loftslagsmálum? 28 landbúnaðarsvæði heims
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.