Bændablaðið - 24.05.2017, Page 20
20 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Fyrir Matvæla- og lyfjastofnun
Bandaríkjanna (FDA) liggur
nú beiðni um að veita opinbera
viðurkenningu til sölu á ung-
barnamjólk sem unnin er úr
mjólk kúa sem aldar eru allan
ársins hring eingöngu á grasi.
Afurðin er framleidd af
Munchkin í Bandaríkjunum og er
ein nýjasta afurðin á lífræna mark-
aðnum. Fékk mjólkin m.a. verðlaun
fyrir tveim árum sem val mæðranna.
Fyrirtækið, sem stofnað var í Los
Angeles í Kaliforníu 1991, er með
115 einkaleyfi á vörum fyrir börn
og ungmenni. Segir Munchkin nýju
ungbarnamjólkina næstbesta kost-
inn við móðurmjólkina.
Búist er við að nýja afurðin verði
talsvert dýrari en önnur ungbarna-
mjólk sem ekki er skilgreind á sama
hátt og kosti um 40 dollara flaskan
á móti 30 dollurum. Þá spyrja menn
sig hvort hún sé þá í raun hollari. Er
þá m.a. horft til losaralegra skilyrða
í skilgreiningum opinberra stofnana
í Bandaríkjunum fyrir grasfóðrun
sem útiloki hvorki notkun eiturefna
né hormóna- og fúkkalyfja við rækt-
unina.
Ströng aðildarskilyrði samtaka
um grasfóðrun
Víða um lönd er farið að leggja
aukna áherslu á fjölskyldubúskap,
grasfóðrun jórturdýra og lífræna
framleiðslu. Hafa bændur séð sér
beinan hag af þessu þar sem neyt-
endur séu tilbúnir að greiða hærra
verð fyrir matvöru sem þeir telja
sig geta treyst. Hér á landi hefur þó
miðað hægt, en auknar gæðakröfur
frá kaupendum eins og stórverslun
Whole Foods í Bandaríkjunum virð-
ast samt vera að ýta við mönnum.
Samtök um grasfóðrun
jórturdýra
Í Bandaríkjunum eru öflug samtök
sem berjast fyrir aukinni fóðrun
búfjár með grasi og aukinni haga-
göngu. Þar má nefna American
Grassfed Association (AGA).
Virðist orðræða talsmanna þessara
samtaka líka nokkuð í takt við til-
finningar fólks um bætta meðferð
dýra. Sama má segja um vaxandi
áhuga víða um Evrópu á lífrænum
búskap og sjálfbærni sem stangast
um leið á við sívaxandi samþjöppun
á landbúnaði. Samþjöppun sem talin
er leiða til ofnýtingar ræktarlands
með óhóflegri áburðar- og eitur-
efnanotkun.
AGA-samtökin voru stofnuð
11. júní 2003 af hópi áhugafólks
um grasfóðrun dýra. Upphafið
var fundur þróunarsamtaka
Klettafjallabænda, Rocky Mountain
Farmers Union Cooperative
Development Center í Denver í
Colorado. Í framhaldinu fékkst
styrkur frá samtökum um þróun
viðskipta í landbúnaði til að stofna
samtök framleiðenda, fagmanna og
neytenda um þessi mál. Markmiðið
var að búa til heildarsamtök um
grasfóðrun sem gæti verið tengiliður
ræktenda við opinberar stofnanir,
rannsóknaraðila, markaðsfólk og
um upplýsingagjöf til almennings.
Í skilgreiningu AGA fyrir
grunni samtakanna segir að þau
snúist um framleiðslu á kjöti og
mjólk af jórturdýrum sem fóðruð
eru með grasi.
Grunnurinn að
starfseminni
hafi verið lagð-
ur af hópi vísinda-
manna, dýralækna,
bænda og sérfræðinga í búrekstri.
Þar er einblínt á fjóra meginþætti
sem eru skilyrði fyrir aðild að sam-
tökunum:
• Dýr séu einungis fóðruð á
grasi.
• Dýrum sé beitt í haga og ekki í
tengslum við fóðrunarstöðvar.
• Dýr séu aldrei meðhöndluð
með fúkkalyfjum eða vaxta-
hormónum.
• Öll dýr séu ræktuð á bandarísk-
um fjölskyldubúum.
Þessar skilgreiningar voru sam-
þykktar sem staðall fyrir grasfóðruð
dýr í desember 2016. Reglurnar úti-
loka líka að ræktendur noti erfða-
breytt fóður fyrir sín dýr.
Segir AGA að afurðir grasfóðraðra
dýra bæti heilsu fólks, innihaldi
meira af æskilegum fitusýrum eins
og Omega 3 og CLA fitusýrum og
séu ríkari af vítamínum og steinefn-
um. Þá leiði slík ræktun til aukins
heilbrigðis dýranna og minni þörf
verði á lyfjameðhöndlun.
Líka er bent á að grasfóðrun
dýra sé æskilegri fyrir umhverfið
og búskapur sem stundi slíkt vinni
einnig að endurnýjun náttúrugæða
og bættri umgengni um jarðveg og
lífríkið. Auk þess dragi slíkt úr losun
gróðurhúsalofttegunda og sér í lagi
kolefnis CO2.
Rökin fyrir því að vel stýrð haga-
beit stuðli að minni losun gróður-
húsalofttegunda er sú að þar verði
ákveðin kolefnisbinding í gróður-
þekjunni sem tapist þegar gefið sé
korn. Er þá bent á að við kornrækt
sé stöðugt verið að umbylta jarð-
veginum og við það losni mikið af
kolefni (CO2) út í andrúmsloftið.
Þá losi nautgripir sem að mestu eru
fóðraðir á korni meira af metangasi
en gripir sem fóðraðir eru eingöngu
á grasi.
Í rökum AGA fyrir ágæti gras-
fóðrunar segir að fjölskyldu-
búskapur í smáum skala skapi fjölda
starfa og styrki innviði dreifðra
byggða. Slíkur búskapur stuðli
líka að sjálfbærni í viðskiptum fyrir
komandi kynslóðir.
Reglur AGA lúta eingöngu
að ræktun jórturdýra. Þar
er um að ræða nautgripi,
buffalóa, geitur og sauðfé.
Einungis ræktendur sem
viðurkenndir eru af AGA
fá að nota merki félagsins
og aðrar skilgreiningar
um grasfóðrun á umbúðir
afurða sinna, á markaðs-
efni og vefsíður.
Ekki virðist vanþörf á að
breyta um stefnu að hætti AGA,
því að um 97% af öllu nautakjöti í
Bandaríkjunum kemur ekki af gras-
fóðruðum skepnum.
Samkvæmt nýjustu fréttum úr
lífræna geiranum í Bandaríkjunum
er 81 kúabú nú að framleiða lífræna
mjólk undir merkjum samvinnufé-
lagsins Organic Valley. Segir þar
að hrifning Bandaríkjamanna sé
mjög mikil yfir vörum úr kúm
sem ganga frjálsar um haga og
eru lausar við að vera fóðraðar
á hormónum og sýklalyfjum.
Ýmsir framleiðendur á
markaði reyna þó að mis-
nota gott orðspor lífrænnar
ræktunar hjá neytendum og
beita margvíslegum blekking-
um. Það er ekki ólíkt því sem
íslenskir garðyrkjubændur hafa
fengið að kynnast og framleiðend-
ur á íslenskum kjötafurðum. Til
að sporna við þessu hafa lífrænir
ræktendur í Bandaríkjunum verið
að taka höndum saman við AGA-
samtökin.
Losaraleg skilyrði FDA fyrir
skilgreindri grasfóðrun
Það eru aðallega tvær stofnanir í
Bandaríkjunum sem setja reglur og
staðla fyrir matvælaiðnaðinn. Það
eru FDA og landbúnaðarráðuneyti
Bandaríkjanna (USDA). Á árinu
2016 dró USDA til baka stuðning
við gæðaskilgreiningu vegna gras-
fóðraðra dýra. Það þýðir að skil-
greiningin grasfóðrað hefur ekki
neina sérstaka aðra merkingu en
það sem menn kalla náttúrulegt.
Þannig að þær kýr sem menn segja
að séu fóðraðar á grasi þurfa ekki
endilega að hafa verið í úthaga allt
árið um kring.
Í frétt um málið á vefsíðu Health
Care er vitnað til rannsóknar sem
gerð var 2011 þar sem komist var
að þeirri niðurstöðu að kjöt af
grasfóðruðum nautum var heilsu-
samlegra með tilliti til þess að það
innihélt meira af Omega 3 fitusýrum
en kjöt af nautgripum sem aldir voru
á korni. Um er að ræða svokallaða
hamingjusama nautgripi en kjötið
er líka sagt innihalda 60% meira af
Linoleic sýru og Omega 6 fitusýrum
sem hafa áhrif á fitubúskap, ónæm-
iskerfi og hjartaheilsu neytenda.
Þá er vísað í úttekt neytenda-
samtaka þar sem segir að kjöt af
grasfóðruðum nautgripum sé síður
líklegt til að innihalda fæðuborna
sjúkdóma sem borist geta í neyt-
endur.
Alvarlegar þversagnir
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna hefur reglur um hvaða
fæða getur staðið undir því að fá
skráningu sem lífræn undir opin-
beru merki NOP (National Organic
Program). Í fréttinni segir að þarna
Vaxandi áhugi virðist vera meðal almennings á aukinni sjálfbærni í landbúnaði og náttúruvænni búskaparháttum:
Grasfóðrun jórturdýra og hagabeit talin
gæfulegri en kornfóðrun í stórum stíl
– skilyrði fyrir skilgreiningum vegna grasfóðrunar t.d. í Bandaríkjunum þó sagðar alltof opnar og stangist á við lífræna framleiðslu
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Boðskapur bandarísku grasfóðrunarsamtakanna American Grassfed Asso-
ciation (AGA). Þarna er lagður á borð „sannleikurinn“ um hver munurinn sé
sem lokaðir séu inni á fóðurgjafarstöðvum og éti aðallega korn. Niðurstaðan
er að kjötið af frjálsu, hamingjusömu og grasétandi nautgripunum sé mýkra,
sé minna kólesteról og ekki séu nema 140 kaloríur í hverri máltíð. Hitt kjötið
Þá sé ekki mælt með reglulegri neyslu á slíku kjöti af heilsufarsástæðum.
Hamingjusamar grasétandi kýr í haga. Íslenskir nautgripir eru að langstærstum hluta fóðraðir á