Bændablaðið - 24.05.2017, Síða 44

Bændablaðið - 24.05.2017, Síða 44
44 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017 HROSS&HESTAMENNSKA Hestamannafélagið Léttir á Akureyri: Hver viðburðurinn á fætur öðrum Það hefur verið mikið um að vera hjá Hestamannafélaginu Létti á Akureyri undanfar- ið, Vormóti nýlokið, mótaröð æskunnar sömuleiðis og áður hafði félagið efnt til tveggja stórskemmtilegra viðburða, Bellutölts og Norðlensku hesta- veislunnar. Mótaröð æskunnar er stiga- keppni eins og í eldri mótaröð- unum og þar var hart barist til síðasta spretts. Leikar fóru svo að nafnarnir Egill Már Vignisson og Egill Már Þórsson höfðu sigur úr býtum í sínum flokkum og Auður Karen Auðbjörnsdóttir fór með sigur af hólmi í barnaflokki. Hestaveisla Norðlenska hestaveislan er heil- mikill viðburður, stóð yfir frá föstudegi til sunnudagsmorguns og hófst með sýnikennslu Huldu Gústafsdóttur á Hnokkasyninum Val frá Árbakka. Um kvöldið fór fram viðburðurinn Fákar og fjör, fjölbreytt og skemmtileg sýn- ing þar sem m.a. Bjarki Fannar Brynjuson úr hestamannafélaginu Hring á Dalvík var útnefndur Bjartasta vonin. Um 80 manns tóku þátt í ferðalagi um héraðið sem hófst í Líflandi, þaðan lá leiðin í Ferðaþjónustuna Skjaldarvík og að því búnu litið við í hesthúsinu á Skriðu og síðan í Garðshorn. Þar sýndu ábúendur, Birna og Agnar, hinn feykifallega Adrían frá Garðshorni sem þau ræktuðu undan Eldingu frá Lambanesi þar sem þau bjuggu áður. Um kvöldið var hin margrómaða Stóðhesta veisla sem hrossarækt.is stendur jafnan fyrir, en á hverju ári styrkir félagið gott málefni, að þessu sinni Umhyggju – félag langveikra barna. Kvöldið var vel heppn- að, mikil fjölbreytni í þeim hestum sem sýnd- ir voru. Bellutöltið Hið árlega Bellutölt var einnig haldið fyrir skömmu og óhætt að segja að keppnisandinn hafi verið í góðu lagi og baráttan mikil. Alls skráðu 45 glæsilegar meyjar sig til leiks. Háar tölur fóru ótt og títt á loft og oftast var það sex og yfir enda tilefnið ærið. Búningarnir voru líka hverjum öðrum glæsilegri enda kúrekaþema mótsins í ár og margar báru byssur í streng í keppninni. /MÞÞ Myndir / Léttir / Bjarney Anna - -

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.