Bændablaðið - 24.05.2017, Side 51
51Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland - Fiat - Ford - Case - Steyr - Zetor - Fendt
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.
BAJA STZ
JEPPADEKK
Icetrack ehf. · Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is
www.mtdekk.is
Hljóðlátt heilsársdekk, með ótrúlega endingu
Sérhannað mynstur tryggir betra grip við allar aðstæður
Vörunr. Stærð Listaverð Afsl. Afsl. verð
1485 MT 245/70R17 STZ 42.690 50% 21.345
50731 MT 265/70R17 (32”) STZ 40.390 30% 28.273
50760 MT LT285/70R17 (33”) STZ 51.990 30% 36.393
50780 MT LT315/70R17 (35”) STZ 54.490 30% 38.143
50831 MT LT265/60R18 STZ 43.190 30% 30.233
50840 MT LT275/70R18 STZ 54.490 30% 38.143
Um árabil hefur verið talsverð
umræða í samfélaginu um opin-
bert eftirlit. Þeir sem mest hafa
látið til sín taka í umræðunni eru
ýmis hagsmunasamtök og stjórn-
málamenn.
Við sem sinnum eftirlitinu
höfum gjarnan setið hjá en hefðum
mátt taka meiri þátt í umræðunni.
Almenningur sem síðan nýtur góðs
af þjónustunni hefur ekki heldur
látið mikið í sér heyra hvað varð-
ar bætt og öruggara umhverfi og
matvæli. Einnig gleymist alveg í
umræðunni að fyrirtæki sem eru
undir eftirliti Heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga (HES) eru flest hver
ánægð með þá þjónustu sem þau
fá og leiðbeiningar án mikils til-
kostnaðar.
Skilaboð ráðamanna sem setja
leikreglur samfélagsins, sem
opinbert eftirlit framfylgir hafa
stundum verið misvísandi. Ýmist
eru skilaboðin að tryggja eigi
fyllstu gæði, heilnæmi og öryggi
og efla eigi eftirlitið. Þessi skilaboð
eru ráðandi þegar upp koma
alvarlegir misbrestir á borð við
Brúneggjamálið, en þess á milli er
rætt um íþyngjandi „eftirlitsiðnað“
þegar eftirlitsaðilar leitast við
að framfylgja regluverkinu og
rekstraraðilar eða hagsmunasamtök
þeirra eru ósátt við kröfur
regluverksins. Þá er sendiboðinn
skotinn. Heilbrigðisfulltrúar sem
vinna við heilbrigðiseftirlit sækjast
eftir skýru og skilvirku regluverki
og síður að það einkennist af
misvísandi skilaboðum um að
markmið laga og reglugerða
gildi stundum og stundum ekki.
HES hefur ávallt stutt breytingar
sem geta orðið til einföldunar
og að regluverk sé þannig að
eftirlitsaðilar og þeir sem þurfa að
fara að reglunum skilji hvað um
er að ræða.
Úttekt á Matvælastofnun vegna
Brúneggjamálsins
Í kjölfar Brúneggjamálsins
svokallaða lét atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið gera úttekt
á starfsemi Matvælastofnunar
(MAST), sem var birt nýlega.
Heildarniðurstaða þeirrar skýrslu
er að miklar athugasemdir eru
gerðar við starfsemi stofnunarinnar.
Um er að ræða stofnun sem klofin
var frá þáverandi Hollustuvernd
ríkisins fyrir rúmlega 10 árum og
á að fara m.a. með yfirumsjón og
samræmingu matvælaeftirlits í öllu
landinu. Í skýrslunni kom fram að
í umræddu máli hafi dýralæknir
MAST staðið sig vel en misbrestur
verið á verklagi yfirstjórnar MAST
og ráðuneytisins við vinnslu
málsins.
Í stað þess að skýrslan og
umræðan um hana hafi snúist um
þá misbresti var umræðan leidd
að óskyldu atriði, þ.e. framkvæmd
heilbrigðiseftirlits í landinu. Það
er rétt að taka fram að HES hefur
hvorki með velferð dýra í þauleldi
að gera né eggjaframleiðslu. Síðan
hefur umræðan um skýrsluna
jafnvel verið á þann veg að fyrst að
MAST gengur illa að framkvæma
hlutverk sitt sem eftirlitsstofnun
sé um að gera að færa allt
heilbrigðiseftirlit í landinu með
matvælum líka undir þá stofnun.
Allir sem vilja sjá að þetta
gengur ekki upp. Þáttur HES
varðandi matvælaeftirlit hér á landi
snýst fyrst og fremst um eftirlit
með veitingastöðum, mötuneytum,
matvælavinnslu og neysluvatni. Þar
er um heildstætt heilbrigðiseftirlit
að ræða á öllum þáttum er snerta
matvæli og öryggi þeirra, auk
hollustuhátta og mengunarvarna.
Í skýrslunni er verið að
bera saman fyrirkomulag
matvælaeftirlits í Danmörku og
Noregi en ekki við önnur lönd, s.s.
Svíþjóð, Finnland og Bretland þar
sem heilbrigðiseftirlit er líkara því
sem hér er. Fyrrnefndu tvö löndin
eru hins vegar undantekning frá
því. Jafnframt er rangt farið með
staðreyndir og um misskilning
að ræða varðandi einkavæðingu
matvælaeftirlits í Danmörku,
en fullyrt er að allt að 25%
matvælaeftirlits þar í landi sé á
hendi einkaaðila. Staðreyndin er
sú að fyrirtæki þar í landi sem
eru með vottuð gæðakerfi og fá
þar af leiðandi eftirlit frá óháðum
aðilum vegna slíkrar vottunar eiga
möguleika á að fá það metið og þar
af leiðandi minna eftirlit frá hinu
opinbera sem því nemur.
Flutningur verkefna frá ríki til
sveitarfélaga
Sú stefna hefur verið mörkuð af
stjórnvöldum síðustu áratugi að
flytja verkefni í auknum mæli frá
ríki til sveitarfélaga. Ákvarðanir og
val á verkefnum eru þá í höndum
þeirra sem þekkja vel til aðstæðna
og geta nýtt fjármagn og krafta
með markvissum hætti, þar sem
þeirra er helst þörf. Þvert á þessa
stefnu hefur færst í aukana að
ríkisstofnanir í opinberu eftirliti
hafi ásælst eða fengið verkefni
sem HES hefur haft með höndum.
Oftast eru ekki gefnar neinar
málefnalegar ástæður fyrir flutningi
verkefna, s.s. að eftirlitinu hafi ekki
verið sinnt, að það sé óhagstætt
eða að tilfærslan muni leiða til
sparnaðar. Slagorðið „einföldun“
hefur gjarnan verið notað. Enn
koma fram fullyrðingar um að
HES sé illa samræmt, gjaldskrár
og verkferlar ólíkir og að því leidd
rök að einföldun náist með því að
færa eftirlitið undir ríkisstofnun. Í
þessari umræðu vill gleymast að
ríkisstofnanirnar Umhverfisstofnun
(UST) og Matvælastofnun (MAST)
hafa lögum samkvæmt það hlutverk
að sinna samræmingu HES, en
báðar eru þær illa færar um að
sinna því hlutverki vegna skorts
á fjárveitingum og vegna aukinna
verkefna sem flutt eru til þeirra
án fjármagns og undirbúnings,
sbr. fréttaflutning um fiskeldismál
nýlega.
Síðan hefur komið í ljós að
eftirlitsheimsóknir sem framkvæma
átti vegna þessara verkefna hafi
jafnvel fallið niður svo árum
skipti eftir að verkefnin voru flutt
frá HES með tilheyrandi óöryggi.
Starfsleyfi hafa jafnvel ekki heldur
verið gefin út. Dæmi um verkefni
sem hafa verið flutt frá HES til
MAST er eftirlit með kjötvinnslum,
litlum fiskvinnslum, mjólkurbúum
og eggjaframleiðslu. Eftir það er
um tvöfalt eftirlit að ræða þar sem
HES fer áfram með mengunarhluta
eftirlitsins í stað bæði hans og
matvælahlutans áður. Skoði nú hver
fyrir sig einföldunina.
Þróunin er þvert á markaða
pólitíska stefnu. Núna liggur
fyrir Alþingi breytingarfrumvarp
á meginlöggjöf HES, lögum nr.
7/1998. Breytingar sem þar eru
boðaðar geta haft víðtæk áhrif
á starfsumhverfi HES og um
leið á gæði umhverfis og öryggi
almennings, auk þess sem um
aukið flækjustig getur orðið að
ræða með tilheyrandi kostnaði fyrir
atvinnulífið og sveitarfélög. Þetta á
einkum við um aðila í samsettum
rekstri, þ.e. rekstur sem fellur bæði
undir lög 7/1998, um hollustuhætti
og mengunarvarnir m.s.br., og þá
annaðhvort hollustuháttareglugerð,
nr. 941/2002, eða reglugerð nr.
785/1999, um starfsleyfi fyrir
atvinnurekstur sem getur haft í
för með sér mengun, og jafnframt
matvælalög, nr. 93/1995.
Dæmin sýna að hætt er við
að kostnaður, sérstaklega minni
fyrirtækja, rjúki upp við slíkar
breytingar. Eftirlitsgjald með litlu
á fiskeldi var rúmar 20 þús. kr.
á Norðurlandi vestra en eftir að
UST yfirtók starfsleyfisútgáfu og
framseldi eftirlitið til MAST, „til
einföldunar“ eins og lagt var upp
með, kostar eftirlitsheimsóknin
vel á annað hundrað þúsund
krónur. Annað dæmi má taka
sem er rekstur hótels í dreifbýli.
Í dag gefur HES út eitt kaflaskipt
starfsleyfi fyrir reksturinn, þ.e.
vatnsveitu, veitingastað, gististað
og sána, auk þess að hafa eftirlit
með umhverfismálum einnig.
Hagræðið er augljóst. Verði af
breytingu á lögum um hollustuhætti
og mengunarvarnir á UST að skrá
veitingasal og snyrtingar, gististað
og sána og tilkynna HES um þá
skráningu. HES gefur hins vegar
út starfsleyfi fyrir vatnsveitu
og veitingaeldhúsinu skv.
matvælalöggjöf. Einföldun eða
sparnaður? Nei, líkast til ekki.
Til einföldunar og betri nýtingar
fjármagns er nærtækast að flytja
aukin verkefni til HES sem hefur
yfir fjölbreyttri sérfræðiþekkingu
að ráða og mikilli reynslu við
eftirlit. Síðast en ekki síst er mikil
þekking hjá HES á nærumhverfinu
og viðbragðstími er stuttur.
Eftirlit og starfsleyfisútgáfa sem
búið er að taka frá HES ætti að
flytja aftur til baka og jafnframt
að skoða með opnum hug að
flytja þangað frekari verkefni
ríkisstofnana sem samrýmast vel
verkefnum HES. Hér má nefna
verkefni sem nú eru í höndum
Neytendastofu, Vinnueftirlits o.fl.
Fjölþætt nærþjónusta á einum
stað leiðir augljóslega til þess að
eftirlitsheimsóknir nýtast betur og
skilvirkni eykst.
HES telur mikilvægt að
yfirumsjónarhlutverk MAST og
UST sé skilgreint betur og að þær
stofnanir sinni sem minnstu eftirliti,
nema með HES til samræmingar og
leiðbeiningar. Til þess að geta rækt
það hlutverk þurfa stofnanirnar að
hafa fjárhagslegt svigrúm til þess
að sinna því sem ekki hefur verið
mögulegt hingað til. Til að tryggja
yfirumsjónarhlutverkið betur er
hægt að skoða sambærilega leið og
er að finna í lögum um mannvirki.
Í lögunum er Mannvirkjastofnun
fengið vald til íhlutunar í störf
byggingarfulltrúa ef sérstakar
ástæður kalla á.
Leiðarvísir Ríkisendurskoðunar
Ríkisendurskoðun hefur skrifað þó
nokkrar skýrslur um hvernig beri
að innleiða breytingar í opinberum
rekstri. Við þær breytingar að fela
sveitarfélögunum aukin verkefni er
mikilvægt að hafa þann leiðarvísi
Ríkisendurskoðunar sem áttavita.
Mikilvægt er að undirbúa allar
breytingar vel og hafa skýr
markmið og framtíðarsýn og
að ekki gleymist í hvers þágu
opinbert eftirlit er hverju sinni.
Það markmið þarf ekki alltaf að
samrýmast þörfum rekstraraðila um
að eiga auðvelt með að hefja og
stunda rekstur. Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga þjónustar almenning
og umhverfi og eiga þeir hagsmunir
að vera í fyrsta sæti.
Fyrir hönd Heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga:
Árný Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands
Sigurjón Þórðarson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Norðurlands vestra
Skilvirk stjórnsýsla
LESENDABÁS