Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Saga sauðfjárræktarfélagsins í Þistilfirði Innan skamms mun saga og starf sauðfjárræktarfélagsins Þistils í Svalbarðshreppi í Þistilfirði birtast á prenti, en Þistill mun vera elsta sauðfjárræktarfélag landsins sem starfað hefur samfellt. Í bókinni rekur Jón Viðar Jónmundsson á skemmtilegan og fróðlegan hátt aðdraganda að stofnun Þistils og starfsemi félagsins til dagsins í dag. Saga félagsins er í raun saga hyrnda fjárstofnsins á Íslandi því í gegnum fjárskipti og sæðingar er Þistilfjarðarblóð í flestum hyrndum kindum landsins. Í bókinni er fjöldi mynda, nýrra og gamalla og margar hafa aldrei komið fyrir almenningssjónir áður. Bókin ætti að höfða til allra sauðfjárbænda og annarra áhugamanna um sauðfjárrækt og sögu. Ætlunin er að bjóða fólki að gerast áskrifendur að bókinni og fá hana senda heim til sín að kostnaðarlausu ásamt greiðsluseðli. Nöfn þeirra birtast í bókinni nema fólk óski þess ekki. Almennt verð á bókinni verður 6.000 krónur en fyrir á s k r i f e n d u r 5.000. Þeir sem óska eftir að verða áskrifendur eru vinsamlegast beðnir um að senda nafn, k e n n i t ö l u , heimilisfang og hvort nafn á að birtast í bókinni í n e t f a n g i ð thistill1940@ gmail.is eða senda bréf t i l Soff íu Björgvinsdóttur, Garði, 681 Þórshöfn. /VH MENNING&LISTIR Vestfirska forlagið: Vestfirskar sagnir 4. hefti komið út Sagnabálkurinn Vestfirskar sagnir, sem Helgi Guðmundsson safnaði og skráði, hefur verið ófáanlegur í áratugi. Vestfirska forlagið gefur hann nú út á nýjan leik í heiðursskyni við Helga og útgefandann, Guðmund Gamalíelsson. Enda löngu tímabært. Fjórða heftið er farið í dreifingu hjá forlaginu. Þrjú hefti eru áður komin út. Gunnhildur Sumarliðadóttir á Sveinseyri í Dýrafirði kemur mikið við sögu í 4. heftinu. Harmsaga hennar er mörgum hugleikin. Gunnhildur var uppi á 18. öld, drukknaði á hörmulegan hátt og gekk aftur að sögn alþýðu. Henni er svo lýst að hún hafi verið kona fríð sýnum. En hæðin þótti hún og náði því ekki alþýðuhylli. Hún átti ekki miklum vinsældum að fagna á heimili sínu, enda talið að hún hafi verið kuldastrá fjölskyldunnar. Sumum finnst eflaust að hinar vestfirsku sögur og sagnir séu ekki merkilegar bókmenntir. En er það svo? Menn geta deilt um það eins og annað. Hér er um að ræða reynsluheim forfeðranna í harðbýlum landshluta. Margar af þeim frásögnum færir Helgi Guðmundsson í fyrsta skipti til bókar eftir skilgóðum heimildarmönnum. Sumar þeirra eru jafnvel frá upphafi byggðar í landinu. Það hlýtur að vera nokkurs virði, en margir telja þjóðsögur og sagnir einn af fjársjóðum Íslands sem við megum ekki gleyma og týna. m o r t e n a . s t r ø k s n e s Hafbókin eða listin að veiða risaháf isk á gúmmíbáti fyrir opnu haf i árið um kring „Meistaraverk, ekkert minna“ BERGENS TIDENDE H afbókin Hafbókin Út er komin hjá Bjarti Hafbókin – eða listin að veiða risaháfisk á gúmmíbáti fyrir opnu hafi árið um kring, eftir Morten A. Ströksnes. Gamlir vinir ásetja sér að veiða hákerlingu, sem heldur sig í djúpunum úti fyrir lítilli eyju, Skrova í Lófóten í Noregi. Leiðangur þeirra verður jafnframt uppspretta gjöfulla hugleiðinga um töfra fiskveiða og sögu hafsins, upprifjun ævintýra úr heimi sjóferða og sjómennsku og miðlar einnig fróðleik, ljóðlist og goðsögnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.