Bændablaðið - 02.11.2017, Side 50

Bændablaðið - 02.11.2017, Side 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 201750 Hef verið hugsi um íslenskan landbúnað og ritað nokkrar línur til umhugsunar. Íslenskar landbúnaðarafurðir eru með hreinustu afurðum heims. Fáir velta fyrir sér upprunalandi innfluttra matvæla og hvernig framleiðslan þar fer fram með tilliti til lyfja, dýravelferðar og annarra sjúkdóma sem Ísland er laust við. Ekki er auðvelt að halda byggð í sveitum landsins þegar uppeldi ungdóms okkar miðar að því að gera þau að þrælum stórborga og fyrirtækja, helst eignalausa leiguliða sem rétt skrimta. Allt er svo gaman í borgum og allir geta orðið ríkir, þvílíkt bull. Auðvitað, eins og í öllum stéttum, eru misgóðir fagmenn. Í bændastéttinni hefur orðið mikil framþróun og með tilkomu bændaskóla og ráðunauta var hægt að leiðbeina og aðstoða þá sem það vildu. Einnig eru bújarðir misgóðar og henta ekki allar jarðir t.d. sauðfjárbúskap. Ríkið á með sinn banka að lána til uppbygginga á jörðum með lágum vöxtum því það skilar sér til baka. En það þarf að gera ungu fólki sem vill vinna þetta fjölbreytta og skemmtilega starf kleift að gera það. Það er ekki flókið. Þetta mætti t.d. skoða fyrir landbúnaðinn. 1. Ríkið hætti að selja jarðir, kaupi þær frekar og komi þeim í leigu til þeirra sem vilja stunda landbúnað. Verð á bújörðum er komið út í rugl en auðmenn sem vilja sölsa undir sig auðlindir landsins yfirbuðu allt. Banna á að selja jarðir sem eru í fullri framleiðslu til aðila sem kaupa þær og selja allt frá þeim og eru að seilast í vatn og fleiri gæði landsins. Hér áður fyrr í Búnaðarbankanum heitnum fengu menn jarðakaupalán þegar menn hófu búskap en auðvitað komust auðmenn yfir þann banka og þetta var lagt niður. Útlendingar sem kaupa jarðir eru einnig vandamál. Þeir kaupa jarðir og jafnvel heilu dalina og eru með fögur fyrirheit. En hafa þau staðist? Svona óvissuástand hentar landbúnaði illa. 2. Rafmagn er dýr þáttur í rekstri búa. Borga þarf bændum til baka þann mismun sem er á upphitun með rafmagni og hitaveitu. Ylrækt á að fá samning um rafmagn á lágu verði eins og stóriðja. Við getum framleitt sjálf miklu meira af matvælum þannig. Hvaða hagsmuni er verið að vernda þegar menn vilja ekki framleiða á Íslandi með íslensku rafmagni? Rafmagn sem er ekki notað í dag geymist illa, við erum ekki að safna rafmagni eins og olíuveldin gera með sínar olíur. 3. Tollar af landbúnaðarvélum og fleiru rekstrartengdu felldir niður. 4. Tryggja enn betra GSM samband og tengingu sveitanna við netið. Hér áður var sett rafmagn og sími til allra, hvað hefur breyst? Hlutir hafa batnað en betur má ef duga skal. Þetta er líka öryggismál og kostar, skiptir ekki máli. 5. Tryggja góða þjónustu við bændur, fræðslu og aðstoð við að koma á fót framleiðslu sem hæfir jörðinni, og matvælaöryggi sé tryggt með góðu eftirliti. Bændaskólinn er mikilvægur þáttur í undirbúningi nýrra og eldri bænda. Endurmenntun þarf að efla mikið og endurmeta grunninn í búnaðarnámi og tengsl framhaldsnáms í búvísindum. 6. Auka eftirlit með sláturhúsum. Hvernig er verðlag á slátrun í verktöku? Þarf þetta allt að vera gert á svona stuttum tíma þannig að flytja þurfi inn vinnuafl? Er hægt að liðka til þannig að þetta dreifist í fleiri smærri sláturhús þannig að vinnan við slátrun komi nær bændum? Slátrun sauðfjár mun á næstu árum breytast á þann veg að stærri hópur bænda fer að sækja auknar tekjur með að taka stærri hluta af verðmætakeðjunni með sölu beint frá býli. 7. Setja kolefnaskatt strax á innflutt matvæli, mengunin sem hlýst af flutningi matvæla er mikil. 8. Skoða þarf hvort kvóti sé rétta leiðin til að stýra framleiðslu. Horfa til greina sem ekki eru með kvóta t.d. hestabúskapurinn. 9. Bændasamtökin og bændur þurfa að móta og skerpa sína heildarstefnu fyrir alla landbúnaðarframleiðslu og semja við ríkið á grunni hennar. 10. Skoða þarf virðiskeðjuna bændur - afurðastöðvar- verslun. Er eðlilegt að bóndinn fái aðeins ca 30% af útsöluverði? Efla þarf samvinnu við verslanir en gæta að kúgun stóru verslanakeðjanna á framleiðendum. 11. Neytandinn verður að fá kjötið sitt í hentugum einingum, það er ekki nema von að fólk kaupi aðrar landbúnaðarvörur sem hægt er að fá í minni einingum. Stórt læri eða hryggur liggur óhreyft í kæliborðinu. Það kostar náttúrlega mikið og hentar í nokkrar máltíðir, en orðið afgangar er orðið eins og sorp og því er miklu hent af mat. Magnpakkningar eru of stórar. Hvar er sauðakjöt? Hvar er kindahakk? Kinda- gúllas? Og svo mætti halda áfram. Loks er farið að fást á veitingastöðum lambasteik, auðvitað selst ekkert ef það er ekki haft til sölu og í réttum einingum. Spyrja þarf, hvernig vill neytandinn vöruna? Eldaða eða óeldaða? Hefur verslun rétt á að skila öllu til baka ef ekki selst, tekur enga áhættu? Líklegast myndast mesti gróðinn við að flytja allt inn tilbúið af verksmiðjubúum og svo bara henda. Ljóst er að allar þjóðir styðja og styrkja sinn landbúnað enda vilja allir tryggja fæðuöryggi lands síns. Að leggja niður landbúnað á Íslandi eða koma honum í nokkur stór verksmiðjubú er þvæla. Þá kaupir einhver auðhringurinn það og verðið hækkar til neytenda. Dýravelferð minnkar þegar þetta er orðið verksmiðjubú og mikill gróði er eina takmarkið. Skoða þarf hluti eins og skattleysismörk hjá bændum. Hvernig eru tengsl landbúnaðarstefnu, byggðarstefnu og skatta? Við eigum strax að setja efri stærðarmörk fyrir bú í landbúnaði. Þessir hlutir eru orðnir að átakamáli og gott fyrir Ísland að setja strax mörk. Tæknibyltingin, loftslagsbreytingar, allt hefur þetta áhrif á landbúnaðinn og þarf að huga að. Bestu kveðjur. Þórður Bogason, búfræðingur. Styrkjum íslenskan landbúnað Fyrir nokkrum árum gekk ég í Fjárvís.Vissi ekki á þeim tíma að fleiri en starfandi bændur ættu kost á að færa skýrsluhald þar. En góðir vinir og miklir spekúlantar í ættum sauðfjár, hvöttu mig til að fara með mínar örfáu hobbíkindur þarna inn sem ég og gerði. Hef ég haft af bæði gagn og gaman. Einnig hafa þeir sem gáfaðri eru en ég í sauðfjárrækt, sagt mér að best væri ef allir fjáreigendur á landinu væru þarna inni, þá yrði nánast ekkert til af ættlausu fé og allar ættfræðifærslur skilvirkari. En nú er skipt um og skítur gefinn. Bændasamtökin hafa greinilega tekið þá ákvörðun að losa sig við okkur sem ekki erum félagsmenn í þeirra samtökum. Það er að sjálfsögðu þeirra mál en aðferðin sem notuð er finnst mér siðlaus. Ég á 11 kindur. Árgjald Fjárvís,sem innheimt hefur verið að vorlagi frá því að ég gerðist félagsmaður, var árið 2016, 7.150 krónur. Nú í októberbyrjun kemur árgjald 2017 inn í heimabanka. Hjá mér er það 24.580 krónur, eða 2.234 krónur á kind. Nú vil ég taka það skýrt fram að ég hef ekkert á móti einhverjum hækkunum en ríflega þreföld hækkun sem hent er fyrirvaralaust í hausinn á manni þegar árið er að verða búið finnst mér ruddaskapur. Úr því sem komið var hefði kannski verið eðlilegra að framkvæma þennan gjörning um áramót og gefa fólki kost á að hætta þá ef það vildi ekki borga þessa blóðpeninga. Ekki veit ég hversu margir eru þarna inni á sömu forsendum og ég en miðað við afurðaskýrslur í Fjárvís, sem öllum eru aðgengilegar, virðist mér það vera nokkur fjöldi fólks. En takk fyrir mig. Þetta var skemmtilegt meðan á því stóð. Kýs frekar að kaupa fóðurbæti fyrir þessar krónur, handa mínum prinsessum, árið 2018 en að eyða þeim í árgjald Fjárvís. Kristín Benediktsdóttir Kirkjubraut 56 Höfn Skemmtilegt meðan á því stóð LESENDABÁS Þórður Bogason búfræðingur. Við erum sauðfjárbændur á bænum Miðdal í Skagafirði og eins og allflestir í okkar geira erum við stöðugt með augun opin hvar sé hægt að hagræða fyrir búið. Það kom okkur því skemmtilega á óvart þegar við fengum spurninguna „má ég bjóða ykkur að fá tilboð í raforkunotkunina ykkar?“ frá Orkusölunni. Við höfum alla tíð greitt uppsett verð fyrir okkar rafmagnsnotkun. Fyrir einhverju síðan hættum við að fá einn reikning (Rarik) og fórum að fá tvo reikninga (Rarik og Orkusalan). Við gerðum okkur ekki grein fyrir því að reikningurinn sem við fáum frá Orkusölunni sé ekki skyldugreiðsla eins og rafmagnsreikningarnir höfðu alltaf verið, heldur ríki samkeppni í sölu á rafmagni og það sé hægt að velja af hvaða fyrirtæki maður kaupir raforku. Fyrir kunningsskap ákváðum við að skipta um raforkusala í sumar með okkar ársnotkun upp á um 100.000 kWst. Samkvæmt gjaldskrá Orkusölunnar vorum við að greiða 7,39 kr/kWst, eða um 740.000 kr á ári. En eftir að búið var að tilkynna söluaðilaskiptin byrjaði ballið – við fengum símtal stuttu seinna frá þjónustufulltrúa hjá Orkusölunni sem vildi endilega fá okkur aftur yfir í viðskipti og var til í að bjóða okkur 15% afslátt af verðskrá OG fyrsta mánuðinn frían. Það væri að skila okkur lækkun til næstu 12 mánaða upp á u.þ.b. 172.000 krónur! Þá komum við að stóru spurningunni: Af hverju voru þessi kjör ekki í boði fyrr en eftir að hafa skipt um raforkusala? Af hverju er ríkisfyrirtæki að mismuna sínum tryggu viðskiptavinum með þessum hætti og leggja svo á vöruna að það er hægt að bjóða jafngildi 22% afsláttar og bara ef þú ákveður að hætta viðskiptum? Mér er einnig kunnugt um að fjölmargir aðrir fyrrum viðskiptavinir Orkusölunnar fái sambærileg símtöl og við fengum og hvet alla raforkukaupendur Orkusölunnar að skipta um raforkusala til að fá tilboð um sambærileg kjör og okkur eru boðin. Nú sem aldrei fyrr verðum við sauðfjárbændur að leita allra leiða til að hagræða í okkar rekstri og er þetta eitt lóð á vogarskálarnar í þeim efnum. Eftir þessi samskipti okkar við orkusala þessa lands fannst okkur ekki annað hægt en að deila reynslunni með ykkur og hvetja alla bændur til að hagræða hjá sér. Því með því að vera meðvituð um þennan möguleika og nýta sér hann, eykur það samkeppnina á þessum markaði og vonandi hvatning til raforkusala til að gera enn betur. Með baráttukveðjum Ástþór og Svana sauðjárbændur í Miðdal í Skagafirði Bændur og kaup á raforku

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.