Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Side 6
Farsæl starfsemi
neyðarbíls tíu ára
Birgitta Birgisdóttir, læknir á neyðarbíl tekin tali
Á þessu ári eru liðin tíu ár frá því að rekstur neyðarbfls hófst hér í Reykjavík.
Til að forvitnast svolítið um upphafið og rekstur bflsins hafði ég samband við Birgittu
Birgisdóttur lækni á neyðarbfl. Tók hún erindi mínu vel og yfir kaffibolla með
tilheyrandi meðlæti ræddum við vítt og breitt um neyðarbflinn og það er honum fylgir.
Birgitta, segðu okkur frá upphafinu.
Neyðarbíllinn tók fyrst til starfa
þann 28.09. 1982, en formlega þann
01.10. 1982.
Frá upphafi hefur neyðarbíllinn
verið rekinn í samvinnu Slökkviliðs
Reykjavíkur, Lyflæknisdeildar Borg-
arspítalans og Reykjavíkurdeildar
Rauðakross Islands.
Hvað um þróunina þessi ár?
í byrjun var bíllinn mannaður tveim
slökkviliðsmönnum, lækni frá lyflækn-
isdeild og hjúkrunarfræðingi frá slysa-
deild frá kl 08 - 19 alla virka daga.
Með þessu formi var bíllinn rekinn
fyrstu fjóra mánuðina, þá lengdist
vakt læknis og hjúkrunarfræðings til
kl. 11.30. Þess utan sáu slökkviliðs-
menn um bílinn.
Þó svo tölur sýni hæstu tíðni útkalla
að deginum, þá engu að síður koma
mörg alvarleg tilfelli upp að nóttu til,
þannig að það er ótrúlega stutt síðan
sólarhringsvaktir allan ársins hring
komust á. Það var ekki fyrr en 01.01.
1989.
Nú svo gerist það að hjúkrunar-
fræðingarnir fara af bílnum í byrjun
janúar 89. Þá fyrst fóru hlutirnir að
þróast hvað snertir slökkviliðsmenn-
ina. Fram að þeim tíma að hjúkrunar-
fræðingarnir fóru af bílnum virkuðu
þeir nánast eins og burðardýr.
Hver er helsti búnaður bflsins í dag og Nei í sjálfu sér ekki. Að sjálfsögðu
hefur hann breyst mikið á þessum hefur búnaðurinn batnað með nýrri
tíma? og betri tækni svo sem eins og Life
6
SLOKKVILIÐSMAÐURINN