Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Blaðsíða 8

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Blaðsíða 8
að ræða. Allt frá því að vera örugg vitneskja um stopp niður í mjög óljóst hjálparkall. Þegar á staðinn kemur er strax ljóst hvort um stopp er að ræða. Verkaskipt- ing milli áhafnar er vel skilgreind. Ann- ar sjúkraflutningsmannanna tengir við- komandi við hjartarafsjá eða leggur stuðpatsana beint á brjóstkassann til að sjá þann takt sem viðkomandi sjúkling- ur er í ef einhver er. Hinn maðurinn fer strax að draga upp lyf eða aðstoða lækni við að „intúbera“ sjúklinginn, því það skiptir miklu máli að geta andað fyrir sjúklinginn eins fljótt og auðið er. Um leið og búið er að intúbera, byrjar annar sjúkraflutningsmaðurinn að anda fyrir sjúklinginn. Því næst snýr læknir- inn sér að því að koma upp nál til að hægt sé að koma viðeigandi lyfjum í sjúklinginn. Að þessu loknu hefst hin eiginlega endurlífgun, þá ventilerar einn, annar hnoðar og þriðji dregur upp og gefur lyf eða gefur rafstuð, allt eftir þörfum. Yfirleitt alltaf þegar um stopp er að ræða köllum við á annan sjúkrabíl til aðstoðar, því ekki veitir af mörgum þjálfuðum höndum við svona aðstæð- ur, því endurlífgun getur tekið langan tíma, allt upp í rúman klukkutíma og er mjög lýjandi. Ef sjúklingur svarar meðferð er hann fluttur á vakthafandi spítala. en ef við sjáum enga svörun þá er það oft að við hættum á staðnum og sjúkling- ur er úrskurðaður látinn. Það sem skiptir mestu máli til að endurlífgun beri árangur er hvort ein- hver sá viðkomandi fara í stopp og að endurlífgun hafi verið hafin strax þ.e. með því að blása og hnoða. Því minni tími líður þar til virk endurlífgun er hafin því meiri líkur á árangri. Hvert er þitt hlutverk í áhöfn bflsins? Þetta er viðkvæm spurning. Ekki gagnvart okkur læknum heldur sjúkraflutningsmönnunum. Mér finnst okkar hlutverk vera alveg ljóst. Stærsti hluti útkallanna eru sjúkdómar þannig að það er okkar að ákveða læknisfræðilega meðhöndlun sjúkl- ingsins. Við ákveðum hvort þörf er á að flytja sjúklinginn en sjúkraflutn- ingsmennirnir hafa þó loka orðið. Telji læknir ekki þörf á að flytja sjúkl- ing þá ber sjúkraflutningsmönnunum skylda til að sjá viðkomandi fyrir flutningi hvort heldur með lögreglu eða á einhvern annan hátt. En hvert er þá hlutverk sjúkraflutn- ingsmannanna? Læknir vinnur alltaf í nánu sam- bandi við sjúkraflutningsmennina. Allt sem við gerum er unnið í sam- vinnu.Ef vel á að vera þarf áhöfn bíls- ins að vinna sem einn maður. A því byggist góður árangur af störfum neyðarbílsins. Hvaða menntun hafa sjúkraflutnings- menn á neyðarbíl hlotið? I samvinnu Slökkviliðsins og Borgarspítalans hafa verið haldin svo- kölluð neyðarbílsnámskeið. Það fyrsta var haldið ’85 eða ’86, ég bara man ekki fyrir víst hvort árið það var. Þar voru gerðar stórauknar kröfur til manna frá því sem verið hafði. 8 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.