Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Side 40
NÝ LÖG UM BRUNAMÁL
SEM SAMÞYKKT VORU Á ALÞINGI ÞANN 18. MAÍ1992
í greininni verður aðeins stiklað á stóru og þá sérstaklega því
er lýtur beint að slökkviliðsmönnum sjálfum.
Með nýjum lögum um brunavarnir og brunamál er tóku gildi
þann 18. maí s.l. féllu úr gildi samnefnd lög nr. 72 frá 1982.
Undirbúningur og formlegt upp-
haf þessarar lagasetningar varð
með skipun félagsmálaráðherra Jó-
hönnu Sigurðardóttur þann 27.
janúar 1989 í 3ja manna starfshóp
til að gera heildarúttekt á stöðu
brunamála í landinu. í starfshópinn
voru skipaðir þeir Magnús H.
Magnússon fyrrverandi félagsmála-
ráðherra en hann var jafnframt for-
maður, Ingi R. Helgason hæsta-
réttarlögmaður og Hákon Ólafsson
byggingaverkfræðingur.
Starfshópurinn fékk erindisbréf
upp á að gera úttekt á brunamálum
í landinu, en þeim var skipt upp í 11
þætti. í starfi sínu átti starfshópurinn
að hafa sarnráð við Brunamálastofnun
ríkisins, Samband íslenskra sveitarfé-
laga og Landssainband slökkviliðs-
manna.
Það var svo í apríl 1991 sem félags-
málaráðherra lagði fram frumvarp til
laga um brunavarnir og brunamál. í
frumvarpinu birtust hugmyndir áður-
nefnds starfshóps en þetta frumvarp
náði ekki fram að ganga í tíð fyrrver-
andi ríkisstjórnar. Það var svo á
haustdögum 1991 að endurbætt frum-
varp var lagt fram eftir að tekið hafði
verið tillit til ýmissa ábendinga m.a.
frá LSS. Þetta frumvarp varð svo að
lögum nú í vor eins og að framan
greinir. Það er mat stjórnar Lands-
sambands slökkviliðsmanna að
með setningu laganna hafi verið
stigið heilladrjúgt framfaraspor í
þágu brunamálanna í landinu en að
sjálfsögðu ræður nú miklu hvernig
á verður haldið með framkvæmd
laganna.
Brunamál eru almennt ekki sá
málaílokkur sem eiga upp á pall-
borðið hjá stjórnmálamönnum.
Lög verða aldrei sett svo öllum líki
en með framgöngu félagsmálaráð-
herra Jóhönnu Sigurðardóttur í
þessum málum og setningu laganna
má segja að brotið hafi verið blað.
Stjórn Landssambands slökkvi-
liðsmanna telur rétt og skylt að
koma á framfæri þakklæti til félags-
málaráðherra af þessu tilefni.
Nokkur efnisatriði úr lögunum
Samkvæmt 1. gr. fer félagsmálaráð-
herra með yfirstjórn brunamála í land-
inu.
Um meginhlutverk Brunamála-
stofnunar er getið í 2. gr. en um önnur
helstu verkefni Brunamálastofnunar
er einnig getið í greininni svo sem afar
mikilvæg lagafyrirmæli í d. lið grein-
arinnar hvað varðar það hvernig stað-
ið skuli að menntun og þjálfun
slökkviliðsmanna. Þar segir að Bruna-
málastofnun skuli hafa forgöngu um
að fylgt sé fyrirmælum reglugerðar
um skyldubundna menntun slökkvi-
liðsmanna svo og ákvæðum um rétt-
indi og skyldur.
Eins og kunnugt er tók reglugerðin
gildi 19. apríl 1992. í reglugerðinni er
kveðið á um með afdráttarlausum
hætti hvaða kröfur skulu gerðar til
umsækjanda um störf slökkviliðs-
manna. Þá er náminu skipt upp í
fyrsta lagi grunnnám öðru lagi fulln-
aðarnám og síðan framhaldsnám.
Skýr námsrammi er settur fram um
efnislegt innihald námsins svo og hve-
nær hverjum áfanga skuli lokið.
I e. lið 2. gr. laganna er fjallað um
símenntun slökkviliðsmanna og eld-
varnar eftirlitsmanna og það að haldn-
ar skuli æfingar með slökkviliðinu.
í 3. gr. segir að ráðherra skipi fimm
manna stjórn Brunamálastofnunar, en
stjórnin var áður skipuð þremur aðil-
um þ.e. fulltrúa Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Landssambands slökkvi-
liðsmanna og Sambands íslenskra
tryggingafélaga. Nú bætast við fulltrúi
félagsmálaráðherra sem jafnframt
verður formaður og fulltrúi frá Bruna-
tæknifélagi íslands.
Um verksvið
brunamálastjórnar segir:
„Brunamálastofnun ríkisins hefur á
hendi eftirlit með öllum brunavörnum
og brunamálum í landinu.
Brunamálastofnun ríkisins skal
hlutast til um að farið sé í hvívetna
eftir lögum og reglugerðum um
brunavarnir og brunamál.
Brunamálastofnun ríkisins ber að
gera sjálfstæðar athuganir og úttektir
til þess að geta gert sér grein fyrir
ástandi mála, hvenær sem þurfa þykir,
með fullri vitneskju og í sem bestri
samvinnu við hlutaðeigandi bruna-
málayfirvöld.“
Stóraukið hlutverk
brunamálastjórnar
„Stjórn Brunamálastofnunar skal
hafa eftirlit með rekstri og starfsemi
stofnunarinnar og að fylgt sé ákvæð-
um laga og reglna sem um stofnunina
gilda. Stjórnin skal móta stefnu stofn-
unarinnar í samráði við brunamála-
stjóra, m.a. með því að samþykkja
starfs- og fjárhagsáætlun fyrir eitt ár í
senn.
Stjórnin ber ábyrgð gagnvart ráð-
herra.“
Þá segir um embætti brunamála-
stjóra m.a. að ráðherra skipar bruna-
málastjóra til sex ára en hann skal
veita stofnuninni forstöðu og bera
ábyrgð gagnvart brunamálastjórn.
10. gr. gerir ráð fyrir að slökkviliðs-
menn í hlutastarfi skipáðir samkvæmt
40
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN