Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Blaðsíða 42

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1992, Blaðsíða 42
samkomulagi sveitarstjórnar og Landssambands slökkviliðsmanna eða fulltrúa viðkomandi slökkviliðs- manna, hafa skal o.s.frv. 10. gr. Bætt verði inn eftirfarandi (svart letr- að) „skulu slysatryggðir við æfingar og önnur störf í þágu brunavarna í sam- ræmi við áhœttu starfsins, lágmark- strygging þeirra skal vera samkvæmt ákvæðum um slysatryggingar opin- berra starfsmanna. (sjá reglur nr. 30/ 1990 um skilmála slysatrygginga ríkis- starfsmanna). LSS telur brýnt hagsmunamál slökkviliðs- manna að þeir séu ávallt með beztu tryggingar á hverjum tíma þar sem líkur á slysum eru miklar í starfsgreininni, en flokkun trygginga á starfs- stéttum staðfestir þetta ennfrekar þar sem slökkviliðsmen flokkast í næsthæsta og hæsta áhættuflokk samkvæmt slysaskýrslum. Mikil- vægt er að samræmis sé gætt milli slökkviliðs- manna í fullu starfi og annarra slökkviliðs- manna. 23. gr. Brunamálastofnun ríkisins skal sjá um að rannsókn fari fram á orsökum elds- voða þegar eftir brunatjón. Bruna- rannsókn þarf ekki að fara fram séu orsakir kunnar eða tjón óverulegt. Rannsóknarlögregla ríkisins skal sjá um að lögreglurannsókn fari fram sé grunur um að um saknæmt athæfi hafi verið að ræða. Haft skal samráð við sérfræðinga brunamálastofnunar við slíka rannsókn. Rafmagnseftirliti rík- isins skal tilkynnt um slíkar rannsókn- ir. Brunarannsókn skal beinast að því að kanna, hver upptök eldsins hafa verið o.s.frv......................... 3. mgr. falli niður (23.gr. frh.) 4 m.gr. orðist svo. Afrit af ofangreindum gögnum skulu berast Rannsóknarlögreglu ríkisins. Brunamálastofnun ríkisins, hlutaðeig- andi slökkviliðsstjórum og vátrygg- ingafélögum, þegar rannsókn er lokið. Landssamband slökkviliðsmanna telur orðið fulltímabært að brunarannsóknir séu í höndum sérfræðinga í brunamálum þ.e. þeirra sem starfa alla jafna að brunavörnum og brunamál- um og hafa hlotið til þess menntun og starfs- reynslu. Með núverandi fyrirkomulagi vantar þennan mikilvæga hlekk hvað varðar bruna- rannsóknirnar þ.e. að þær tengist störfum eldv- arnaeftirlitsmanna, slökkviliðsstjóra, slökkvi- liðsmanna og annarra sérfræðinga í brunamál- um. Nú er lögreglumönnum gert að fara með þessar rannsóknir að stórum hluta til. Það er mat stjórnar LSS að mikil þörf sé á slíkum breytingum jafnhliða átaki í brunarannsóknum í landinu. 25. gr. Með greininni er í fyrsta skipti ákveð- ið fjármagn sérstaklega tileiknað menntunarmálum slökkviliðsmanna (þ.m.t. eldvarnaeftirlitsmanna) og fleirum og er það fagnaðarefni. Mikil- vægt er að tengja slíkan sjóð við heild- aruppbyggingu skóla- og fræðslustarfa á vegum Brunamálastofnunar ríkisins í málaflokknum. Lokaorð Landssamband slökkviliðsmanna lýsir sig sammála meginefni frumvarpsins að öðru leiti og telur fulltímabært að sett sé ný löggjöf um brunavarnir og brunamál. Reykjavík 1. mars 1992 F.f. stjórnar Landssambans slökkviliðsmanna Guðmundur Vignir Oskarsson formaður LSS mmm-OG emxsuMW Sýningaraðstaða LSS að Síðumúla 8 MÆ'gvíslegar Merkingar eru fáanlegar hjá forvarna- og fræðsludeild Hg KYNNTU ÞÉR HVAÐ FORVARNA OG FRÆÐSLUDEILDIN HEFUR AÐ BJÓÐA ÞÉR SKRIFSTOFAN ER OPIN ALLA DAGA FRÁ KL. 14.00-16.00 SÍMINN ER 672988 42 SLOKKVILIÐSMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.