Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Blaðsíða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
1. TÖLUBLAÐ
8. ÁRGANGUR 1995
Ritstióri og ábymðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot:
K. Fjóla Guðmundsdóttir
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
REYKJALUNDUR
Gerður Arnórsdóttir
Aðrar myndir:
Gerður Arnórsdóttir o.fl.
Frá ritstjóra
Nýtt ár er í garð gengið. Þetta blað kemur út í aðdraganda
alþingiskosninga, þar sem eins og áður verða útlínur lagðar að því
stjórnarmynstri sem mun á næstunni ná að ráða. Fólk velur sér
flokka og menn til að fylgja þeim málum eftir
sem þeim finnst mestu skipta. Öllu skiptir að
útkoman verði sú að vel starfhæf stjórn fái sem
fyrst komið að margvíslegum vandamálum og
nái að vinna verk til þarfa fyrir þjóðina.
Fyrir öryrkja þessa lands skiptir afar miklu,
hversu á heildarmálum þjóðarbús er tekið og
hversu þeirra mál eru sérstaklega meðhöndluð,
enda megingrunnur lífskjara þeirra bundinn því hvern sess
tryggingakerfið fær í fjárlögum og þar kemur margt til í flóknu og
margbrotnu kerfi.
Sannfæring ritstjóra er sú, að allir vilji vel að verki standa, allir
vilji veg öryrkja sem beztan. En svo verða allir af verkum dæmdir
og það er aðall þess lýðræðis sem við blessunarlega búum við.
Vissulega er Öryrkjabandalag íslands oft á vettvang kvatt, þegar
ráðum skal ráðið urn mál skjólstæðinga þess, enn betur mætti þar
þó gera, einkum í aðdraganda og við undirbúning ýmissa
meginmála.
Baráttumálin eru mörg svo víða á vegi og vettvangur þess að
viðra þau og vekja á þeim máls er þetta blað, sem m.a. fer til allra
þeirra er að löggjöf og lausn þjóðmála vinna. Því skýrari skilaboð
því fleiri, þeim mun betur von til að hlustað verði. Amað færi ég
öllum lesendum sem landslýð á ári nýju. Vísum leiðina, virkjum
fjöldann.
H.S.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra................................2
Skin og skúrir...............................3
Skilmæli á málþingi..........................4
Samstöðuhátíð á Sauðárkróki..................6
Ávarp á samstöðuhátíð........................8
Hlerað í hornum................. 8, 11, 13, 17,
................. 23,27, 33,35,37, 39,41,42
Eiga sveitarfélög að yfirtaka................9
Hvar eiga málefni fatlaðra heima?.......... 12
Hugað að heilbrigðisþingi.................. 14
Af Hala-leikhópnum.......................... 17
Reykjalundur 50 ára......................... 18
Blómlegt samstarf psoriasis.................20
Kynning.....................................21
Fjölskylduhátíð FEPEDA......................22
Gátuvísur Magnúsar..........................23
Börnin og fatlaðir..........................24
Molar til meltingar.........................26
Hugleiðingar um sambýli.....................27
Útskrift frá Starfsþjálfun fatlaðra.......28
„Hér er Myasthenia Gravis
sjúklingum trúað“.........................30
Af stjórnarvettvangi......................31
Úr fórum Guðmundar........................32
Af vettvangi Geðverndarfélags Islands....33
Rauða fjöðrin.............................34
Fréttir frá MND-félaginu..................35
Félag heyrnarlausra 35 ára................35
Hækjustandarinn handhægi..................37
Tölvufjarskipti blindra og sjónskertra...38
Rauðir úlfar - Lúpus - hvað er það?.......40
Samhugur..................................41
Stjórn ÖBÍ................................41
Viðhorf mitt til ellinnar.................42
Fréttir frá Tölvumiðstöð fatlaðra.........43
Góð gjöf..................................43
Sambýlisþankar............................44
Meinleg brot..............................44
Ljóð 3ja heyrnarlausra stúlkna............45
I brennidepli.............................46
2