Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Blaðsíða 17
félagslegu þjónustunni. Of mikil
áherzla á ytri fræðslu, meiri og beinni
nálgunar þörf. Aherzla á líknandi
meðferð.
L. M.R.: Kostnaðaruppstokkun
nauðsynleg, hagræðingar er þörf.
Taldi vissa samkeppni af hinu góða.
Almenningur ætti að taka þátt í mótun
forgangsröðunar.
M. F.: Auka þarf vægi og sjálf-
stæði heilsugæzlustöðva. Meta fyrst
þær kröfur sem við gerum til stofnana,
ákvarða svo fjármagn til þeirra.
G. B.: Samneyzlan þarf að hafa
forgang. Gaf lítið fyrir samkeppni þar
sem einn aðili - ríkið - borgar. Auka
þarf forvarnarstarf sem mest.
S.B.: Hamla þarf kostnaðarvexti
án þess að gæði séu minnkuð. Hugsa
um þjónustuna, ekki bara að reisa
byggingar. Greindi frá væntanlegum
bæklingi um rétt sjúklinga.
H. S.: Það gildir að fólki líði sem
bezt meðan það lifir í stað þess að
aðaláherzlan sé á viðhald lífs, hvernig
sem það er.
L.S.: Lagði ofuráherzlu á forvam-
arstarf sem í dag væri hverfandi
varðandi fjármagnsáherzlur okkar.
Utan enda má vitna í erindi sem
umræður, en í framhaldi af þessum
umræðum kom Jóhannes Bergsveins-
son yfirlæknir með ádrepu góða
varðandi sveltið í forvarnarmálum
varðandi áfengi og önnur fíkniefni.
Heilbrigðisþingi með umfangi slíku
verða seint gerð fullnægjandi skil, en
von mín sú að lesendur megi með
lestri þessum hafa eitthvert gagn. Til
þess eru orðin fest á blað að svo megi
verða.
H.S.
Leikendur Jóðlífs heldur betur í ham.
Af Hala-leikhópnum
- hressum vel
Hala-leikhópurinn hefur áður fengið verðuga umfjöllun hér í blaðinu, enda
er þar unnið hið ágætasta áhugastarf sem skilað hefur áhorfendum
skemmtan góðri og þátttakendum ómældri leikgleði og ánægju. Enn er Hala-
leikhópurinn að og hingað fékk ég einn félagann, Ama Salómonsson, og hann
kom hér með afbragðsglögga grein um starfsemina fyrr og nú. Arni lék einmitt
á liðnu hausti og býst nú til atlögu við Stórólf leynilögreglumann í næsta verki.
Hér á eftir verður tíundað það helzta frá haustinu og gægzt inn í framtíðina
með liðsinni Arna og félaga.
Á haustdögum sýndi hópurinn þrjá einþáttunga undir samheitinu: Á
furðuslóðum. Þetta voru þættirnir: Jóðlíf eftir Odd Björnsson; I undirdjúp-
unum eftir Pétur Magnússon frá Vallanesi og Á rúmsjó eftir Slawomir Mrozek
í þýðingu Bjama Benediktssonar frá Hofteigi. Þessar sýningar tókust vel með
afar góðum tilþrifum leikenda og skemmtu áhorfendur sér hið bezta, ásamt
því að þenkja ýmislegt um efnið og boðskapinn.
Guðmundur Magnússon leikari var leikstjóri þessara þátta. Ekki var látið
sitja við sýningar í Halanum heldur var haldið norður til Akureyrar og sýnt í
Deiglunni í Listagilinu og hápunkt má þó telja stofnfund sambærilegs félags á
Akureyri, sem Jón Hlöðver Áskelsson hafði undirbúið af dug og dáð ásamt
Guðmundi Magnússyni.
HLERAÐ I
HORNUM
Úr sagnasmiðju Vilhjálms Hjálmars-
sonar fv. ráðherra má margar góðar
sögur fá: Gömul kona eystra tók
allsérkennilega til orða og var ófeimin
að segja meiningu sína. Eitt sinn
mætti hún á götu ungum manni sem
leiddi lítinn dreng. Hún spurði
hvatlega hver ætti svona fallegt barn.
“Ég á það“, sagði ungi maðurinn
montinn. “Huh, ekki áttu það einn.
Ætli þú hafir ekki þurft að fá einhvers
staðar aðgang fyrst“, sagði sú gamla.
Og svo er það næsta verk sem væntanlega verður á fjalir komið, þegar
menn lesa þessar línur. Nú á heldur betur að halda á brattann og sýna
hið sívinsæla leikrit þeirra bræðra Jónasar og Jóns Múla Ámasona: Allra meina
bót. Leikstjóri þar er Edda V. Guðmundsdóttir.
Sérstakur velgjörðamaður Hala-leikhópsins, Steindór Hjörleifsson leikari,
hefur af miklum ötulleik safnað fyrir fullkomnum Ijósabúnaði fyrir Hala-
leikhópinn og haft árangur sem erfiði. Stærstu styrkveitendur em Framkvæmda-
sjóður fatlaðra og Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen. Nú á að vígjabúnað-
inn við næstu sýningu þ.e. Allra meina bót og hér er um glæsilegan búnað að
ræða, fullkominn vel og Hala-leikhópurinn verður því vel “upplýstur” í
framtíðinni.
Formaður Hala-leikhópsins nú er Helga Bergmann og aðrir í stjórn:
Guðmundur Magnússon, Valerie Harris, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Edda
V. Guðmundsdóttir.
Um leið og Árna er liðsemd þökkuð varðandi þennan pistil árnum við hér
á bæ Halaleikhópnum heilla í starfi og leik og hlakkað er til að sjá hversu
næsta sýning verður þeim allra meina bót í sem beztri merkingu. H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17